Búskapur hins opinbera 1995-1996 - 01.11.1997, Page 37
8.2.1.4 Þvinsaó samnimaskerfi
I þessu kerfi er um opinbera Qármögnun að ræða. Megineinkenni þess er að þriðji
aðili - opinber aðili - gerir samninga við óháða framleiðendur. Fjármögnun og
framleiðsla á fræðsluþjónustu er með öðrum orðum aðskilin. Með þessu fyrirkomu-
lagi er ýtt undir hagkvæmni í rekstri sé samningur milli greiðenda og framleiðenda
með tilskildum hætti. Þá gefur þvingun kerfísins fullan aðgang að þjónustu og skapar
jöfnuð.
Mynd8.5. Þvingaó samningskerfi.
í þessu kerfi hefur nemandinn líklega minna um framboð á fræðsluþjónustu að segja
en í frjálsu kerfi þar sem hann er greiðandinn. Valfrelsi hans er því að líkindum eitt-
hvað minna sem þýðir minni fjölbreytni. Á móti kemur að fleiri njóta menntunar en
viss líkindi eru þó á að um ofljárfestingu í menntun verði að ræða á efri skólastigum
miðað við það hvað telst þjóðhagslega hagkvæmt. Þá eru líkur á að aðhald nemenda
að þjónustuframboði skólastofnana og gæðum þess verði ekki eins öflugt og í frjálsu
samningskerfi. Sömuleiðis getur það leitt til þess að þriðji aðilinn verður aðeins létt-
vægur greiðandi að fræðsluþjónustu en ekki virkur samningsaðili að þjónustukaupum.
En til að auka aðhald má hins vegar búast við að greiðandi þjónustunnar, þ.e. hið
opinbera, þrói gæðaeftirlit af einhverju tagi.
Þetta kerfí er í vaxandi mæli að ryðja sér til rúms í hinum vestræna heimi þar sem
íjármögnun og rekstur á dæmigerðri opinberri þjónustu er aðskilinn og gerðir eru
samningar milli aðila um þjónustukaup26.
8.2.1.5 Þvingad sambœtt kerfi
Algengasta form menntakerfis er svokallað þvingað samþætt kerfí þar sem opinber
aðili sér um bæði fjármögnun og rekstur menntastofnana. Kerfið er íjármagnað með
skattlagningu. Nemandinn hefur visst val á milli menntastofnana, að minnsta kosti á
hærri skólastigum. Gagnstætt beingreiðslukerfi, þar sem greiðslur fylgja nemendum,
eða samningskerfi, þar sem greitt er íyrir tiltekna samningsbundna þjónustu, er í
26 Útfærsla þessa kerfis getur verið með margvíslegum hætti, s.s. bein þjónustukaup hins opinbera á
tiltekinni fræðslu, greiðslur á nemanda í tilteknu námi og útboð á þjónustu svo að eitthvað sé nefnt.
35