Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Side 5

Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Side 5
Nýtt S. O. S. 5 tollvarðanna. Það skiptir engn máli. „Klukkustund er liðin, Sir“, segir vika- clrengurinn og er kominn liálfa leið upp .á þilfarið. Ray Rosen hættir við að blóta. Hann hefur sofið fjórar klukkustundir, og nú vekja þeir hann aftur. Já, það væri þó sannarlega ástæða til að taka upp í sig. En skipstjórinn á Joe Lane þekkir sína menn. Hann þekkir manninn, sem húkir uppi í varðturninum og hann hefur arn- araugu. Honurn er óhætt að treysta. Joe Kingston heitir liann og er ungur í starf- inu. Félagar hans á skipinu stríða honum með því, að faðir lians hljóti að hafa ver- ið Indíáni, vegna þess hve skörp sjón hans er. Barkskipið hefur klukkustundar for- hlaup, en það þýðir, að ekki verður unnt -að elta skipið uppi, að minnsta kosti ekki meðan tunglið lýsir upp Mexikóflóann. Ef þetta óþekkta skip hefur eitthvað að fela, þá mun það nota tækifærið og hverfa undir morguninn, er tunglsins nýtur ekki og halda svo til strandar næstu nótt og þá annars staðar. Og þeir hafa eitthvað ■ óhreint í pokahorninu, hví skyldu þeir annars sigla ljóslausir? Rosen skipstjóri er nú fullklæddur, liann bindur sjóhattinn undir kverk og þrammar svo út á þilfarið. Það er kalt úti og hált á þilfarinu. Öðru hvoru gengur sjór yfir þilfarið. Joe Lane liggur djúpt í sjó, varla meira en meters borð fyrir skútunni miðskips. Skipstjórinn kennir kuldahrolls, er hann gengur afturá á fund stýrimannsins. Skref hans eru löng ■og vaggandi. Frívaktin kemur nú upp á þilfar með mikilli háreysti. „Ef þeir bölva ekki ennþá hressilegar ■ en ég áðan, þá er ég illa svikinn,“ hugs- ar skipstjóri og glottir við. Tollþjónust- an er enginn leikur og er ekki á færi ann- arra en hraustra karla og harðduglegra sjómanna. Skipstjóri fer nú í brúna og skyggnist ;ikaft um eftir ókunna skipinn, sem ólík- legt er þó, að hafi færzt nær. Jú, þetta er þrísiglt skip. Það sést nú greinilega í stóra sjónaukanum. Þetta er barkskip og þeir hafa öll segl uppi, eins og þeirn liggi lífið á, að ná til strandar þessa nótt. „Við ættum að ná þeim, þegar myrkur er komið,“ hugsar skipstjórinn. En það verður víst ekki því að heilsa. Heldur hefur dregið sundur með skipun- um. Hnotuskel á móti glæstu þrísigldu skipi. — Það er ekki smáræðis munur. En þetta smáræði sem munar heit- ir „Joe Lane“, það jafngildir hverju þrísigldu skipi. „Slökkvið ljósin!" skipar skipstjórinn. „Hver maður á sinn stað! Dragið upp inn- og út brandaukaseglin! Rifið stórseglið og fokkuna!" Hratt fótatak á slingrandi þilfarinu. Það syngur í rá og reiða. Hugur allra snýst um það, að láta dólginn ekki sleppa. Og nú blæs sterklega í bæði stærstu seglin á skútunni og er nú runninn á hana mikill skriður. Og þegar framseglin skrafa við

x

Nýtt S.O.S.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.