Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Qupperneq 13

Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Qupperneq 13
Nýtt S. O. S. 13 Hann leggst afturábak í stólinn, hann horfir hlutlaust á einfalda, þiljaða káetu- veggina og það er aðeins reykurinn, sem hlykkjast úr langri reykjarpípunni hans, ^sem gefur til kynna, að enn leynist líf í hreyfingarlausum líkama æðsta stjórn- anda Joe Lane, sem sveigist ljúflega fyrir léttum vindi og heldur sína stefnu. Ladd stýrimaður sér hann sitja í þess- um skorðum, er hann horfir inn unr glugga stýrishússins. Hann kinkar kolli og glottir. Hann hall- ar sér fram á kulborða, hallast upp að sex punda fallbyssunni, en yfir henni er segl- dúkur til þess að verja hana bleytu. Ladd kannast vel við þessar einkennilegu stell- Ingar skipstjóra síns. Ladd stýrimaður er 48 ára gamall, ættaður frá Connecticut. Hann var bátsmaður áður fyrr, en síðan eru liðin hvorki meira né minna en tutt- ugu ár. En aldrei hafði hann kynnzt slíkum skipstjóra sem Ray Rosen. Tíu ár samfleytt höfðu þeir verið saman til sjós, en aldrei hafði skipstjórinn innt að því einu orði, hvort honum þætti Ladd betri sjómaður eða veiðimaður. Sá orðrómur gengur fjöllunum hærra, að hafi Ray Rosen á annað borð komið auga á smyglaraskip, þá væri skynsamlegast fyrir skipstjórann að sigla til næstu iiafnar og gefa sig fram af frjálsum vilja, því að lokum mundi Rosen skipstjóri hremrna hann. Líklega býr hann yfir eðlishvöt hættulegs rándýrs og gerir líka sínar ráð- staíanir eins og af eðlislivöt. Og honum skjátlast sjaldan, nei, raunar aldrei, leið- réttir stýrimaðurinn í huganum. Hann ýtti frá sér tjörguðum segldúkn- um og gengur vaggandi skrefum á kul- borðshlið. í skjóli við lúkarsreisnina og bátana luikir vaktin. Stýrimaðurinn geng- ur fram hjá mönnunum og upp stuttan, brattan stigann í fremri lyftingu. Hér er ríki stórskotaliðsins. Hér stendur tólf punda fallbyssan undir blaktandi fram- seglum. „Það er sama sagan,“ lmgsar stýrimað- urinn. „Þetta er meira fyrirmyndarskip- ið. Hraðskreiðasta og bezta skipið, sem ég hef nokkru sinni siglt á. Og það sigl- ir fyrir hinn góða málstað. Fyrir frelsi og mannréttindi!" Hann labbar í hægðunr sínum niður á þilfarið. Joe Lane skríður drjúgum. Fjórt- án mílur heldur stýlimaðurinn og hann er viss í sinni sök. Og þó munaði nú minnstu með það einu sinni. Það var fyrir sjö árum og þá hét skipið þeirra ekki Joe Lane heldur „Cambell". Þá var austanáttin ríkjandi í langan tíma. Veðrið var svipað og það var þennan dag, sex til sjö vindstig. Nótt- ina 4. ágúst hafði sézt til ferða ókunnugs skips af sömu stærð og „Cambell“, skonn- orta var þetta, og það sem verra var, gang- hraði var næstum liinn sami. Átján klukku- stundir stóð eltingarleikurinn úti fyrir ströndinni og Cambell tókst að sigla í veg fyrir skonnortuna, svo hún komst ekki út á opið haf. Loks komst Cambell í skot- mál. Stöðvunarskotinu var hleypt af, er sýnt var, að flaggmerkjunum var í engu sinnt. En það var ekki fyrr en annað skot tastti í sundur þilfarið, að piltarnir hinumegin sáu þann kost vænstan að gefast upp, því ekki var við lambið að leika sér. Vindur hafði farið vaxandi síðustu klukkustundirnar, það var kominn storm- ur. Það var því ógerlegt að setja út bát til þess að fara með handtökuskipun út í ókunna skipið, sem snéri nú upp í vindinn, en hafði ekki dregið upp þjóð- fána. Nafn skipsins og heimahafnar þess

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.