Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Síða 26
26 Nýtt S. O. S.
sat Binns því að heita mátti á bersvæði
við starf sitt.
Yfir skipinu grúfði þokan og niðadimm
nóttin. Binns hafði að sjálfsögðu ekki hug-
mynd um það fyrst í stað, hverju tjóni á-
reksturinn kynni að hafa valdið annars
staðar á skipinu. Talsímasambandið við
stjórnpallinn var rofið eftir áreksturinn,
svo að ekki var hægt að fá þaðan upplýs-
ingar um ástandið. Binns var þó ekki í
vafa um, hvað gera skyldi, og greip til
sinna ráða. Án þess að liika hið minnsta,
sendi hann á eigin ábyrgð hjálparbeiðni
sína, CQD, út í ljósvakann.
Siasconsett í Massachusett var sú strand-
arstöðin, sem næst var slysstaðnum. Jack
Irwin sat þar á verði, dottandi við tækin,
sem höfðu í langan tíma verið þögul eins
og gröfin. Eldurinn í ofninum var kuln-
aður út fyrir löngu og kuldinn orðinn svo
napur í hinum skjóllitla klefa hans, að
hann neyddist að lokum til að hrista af
sér svefnmókið og lífga upp í ofninum að
nýju.
Hann var nýbyrjaður á þessu verki, þeg-
ar neyðarmerki Binns hljómuðu frá við-
tækinu út í herbergið. Irwin kastaði frá
sér kolaskóflunni og hljóp að tækjunum.
Nú var ekki um neitt að villast. Eitt
hinna tröllauknu farþegaskipa White-
Star-línunnar var í háska statt vegna á-
reksturs, og annað skip, sem enn var ekki
kunnugt um livað hét, þurfti ef til vill
einnig á hjálp að halda af sömu ástæð-
um.
í Florida voru ekki loftskeytatæki, og
hafði ekkert heyrzt frá skipinu, síðan á-
reksturinn varð, og það hvarf að nýju út
í þokuna og náttmyrkrið.
Binns gat fyrst í stað Iivorki gefið upp-
lýsingar um stað skipsins né skýrt frá þeim
skemmdum, sem áreksturinn hafði valdið.
Bað hann Irwin því að bíða, meðan hann
aflaði sér vitneskju um þetta og nota tím-
ann á meðan til að þagga niður öll við-
skipti, er truflað gætu samband þeirra
síðar.
Binns skýrir þannig frá þessu sjálfur:
,,Eg hafði nýlega sent tilkynningu um
þetta til Irwins, þegar þjónn kom með
fyrirspurn um það frá Sealby skipstjóra,
ltvort loftskeytatækin væru í lagi. Taldi
ég réttast eftir atvikum að tala sjálfur við
skipstjórann og fór með þjóninum upp á
stjórnpallinn til fundar við hann.
Loftskeytaklefinn var aftarlega á skip-
inu, og var erfitt ímyrkrinu að brjótast
í gegnum brotaleifarnar víðsvegar á þil-
farinu. Farþegarnir höfðu hópazt saman
í nánd við stjórnpallinn til fundar við
hann.
Eg tilkynnti skipstjóranum að loftskeyta
tækin væru í Iagi og tekizt hefði að ná
sambandi við land. Bað Iiann nrig þegar
að leit upplýsinga um, hvort skip mundu
vera nálægt okkur og kvaðst bráðlega
senda mér nánari fyrirmæli. Fór ég því
næst niður í loftskeytaklefann og hafði náð
sambandi við Irwin, þegar t. stýrimaður
kom til mín með skeyti, sem var á þessa
leið: „Republic hefur orðið fyrir árekstri
af ópekktu skipi 26 sjómilur suðvestur
af Nantucket. Þarfnast lrjálpar!“
Irwin endursendi skeytið ásamt neyðar-
merkinu CQD svo að fleiri skip gætu
heyrt það en þau, sem voru innan hins
takmarkaða svæðis, sem loftskeytatækin í
Republic náðu yfir.
Við skeytið bætti hann frá eigin brjósti:
„Gerið allt sem mögulegt er skipinu til
aðstoðar!“
Binns kveðst að þessu loknu hafa sparað
sem mest hann mátti raforku stöðvarinnar
og notað tækin lítið, unz komið var fram