Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Page 34
34 Nýtc S. O. S.--------------------------
komst hann loks út á götuna, ataður í
framan af andlitsfarða og varalit, hams-
laus af vonzku út af trúgirni sinni og ó-
förum.
Ekki tók betra við, þegar Binns kom
til Englands. í Liverpool beið hans á hafn-
arbakkanum Jiópur blaðamanna og ljós-
myndara. Með sérstakri varfærni tókst
lionum að sleppa undan þeim og fela sig
í afskekktu fylgsni, þangað til járnbrautar
lestin, sem liann ætlaði með, lagði af stað.
I fæðingarborg sinni, Petersborough i
Lincolnshire, komst hann þó ekki hjá sér-
stökum viðhafnarmóttökum. Göturnar
\oru við komu hans þangað troðfullar af
fagnandi aðdáendum, en á járnbrautarstöð-
inni hafði borgarstjórinn tekið sjálfur á
móti honum ásanrt ýmsum embættismönn-
um öðrum. Við ráðhús borgarinnar var
hann formlega boðinn velkominn með
ræðu, sem borgarstjórinn flutti.
Og Binns lýsti yfir því enn á ný í svar-
ræðu við þetta tækifæri, að hann teldi sig-
ekki með starfi sínu lrafa unnið til neinn-
ar vðurkenningar. „Hinar sönnu hetjur,“
sagði hann, „voru vélstjórarnir á Repu-
blic. Einn þeirra vann að því í sjó upp
undir hendur að gera nauðsynlegar ráð-
stafanir til þess að afstýra ketilspreng-
ingu.“
Binns átti hvorki á lífi foreldra né syst-
kyni, er tekið gætu þátt í þessum fagn-
aði. Hann hafði misst foreldra sína barn-
ungur og var alinn upp hjá ömmu sinni
eftir það. 14 ára gamall fékk hann vinnu
hjá járnbrautarfélagi einu. Þar varð hann
fyrir slysi og varð að liggja 6 mánuði á
sjúkrahúsi. Notaði liann tíman á meðan
til undirbúnings að loftskeytanámi.
Árið 1902 varð hann starfsmaður brezku
póststjórnarinnar, og þremur árum síðar
fékk hann starf hjá Marconifélaginu.
Eyrsta skipið sem hann sigldi á sem loft-
skeytamaður var „Kaiser Wilhelm der
Grosse“.
Eftir Republic-slysið var hann í 2 ár
loftskeytanraður á e.s. Adriatic, undir
stjcirn E. S. Smith, er síðar varð skipstjóri
á Titanic. Fjölmargir þeirra, er á því skipi
voru, fylgdu Smith skipstjóra er hann tók
við skipstjórn á Titanic, og var Binns því
kunnugur mörgum þeirra, er drukknuðu,
þegar Titanic fórst.
Eftir 1912 gerðist Binns lilaðamaður í
New York, unz lieimsstyrjöldin fyrri skall
á. Þá fór liann til Canada og tók að sér
kennslu við eina af flugdeildum hersins.
Eftir herútboðið var hann sendur til Ev-
rópu, en komst þó aldrei á vígstöðvarnar.
Þegar heim kom til New York aftur,
hóf hann blaðamanns-starf sitt að nýju
og gegndi því til ársins 1924. Eftir það
helgaði liann sig aftur loftskeytastarfinu.
Útgefanrli: Nýtt S. O. S., Vestmannaeyjum. Ritstjóri
og óbvrgðarmaður: Gunnar Sigurmundsson. — Verð
hvers heftis kr. 12,00. — Afgreiðsla: Brimhólabraut
24. Vestmannaeyjum. — í Reykjavík: Óðinsgötu 17A,
Sími 14(174. — Prentsmiðjan Eyrún h. f.
ORÐSENDING
TIL ÁSKRIFENDA!
Áskrifendum að ritinu, skal á það bent,
að síðan ritið hækkaði á s. 1. ári í 12 krón-
ur heftið hækkaði fasta áskriftarverðið í
100 krónur yfir árið, er greiðist fyrirfram.
Þeir, sem vilja fá ritið sent áfram jafn-
óðum og jrað kemur út, eru því beðnir
að senda áskriftargreiðsluna hið fyrsta.