Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Page 36

Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Page 36
36 Nýtt S O S eina neyðarmerrkið, senr tekið hefur verið mark á í gengum loftskeytin og ekkert merki annað hefur lilotið viðurkenningu. Ýmsa örðugleika áttu loftskeytamennirn- ir við að stríða fyrst í stað, enda voru tækin miklu ófullkomnari en nú tíðkast. Broslegt dæmi um það, hvað fyrir gat kom- ið í þessum efnunr er eftirfarandi dæmi: Um borð í farþegaskipi einu á leið til Nerv York stóðu skipstjórinn og loft- skeytamaðurinn hjá viðtækinu, og lrorfðu nreð eftirvæntingu á, nreðan það var að rita niður á pappírsræmuna hin dularfullu tákn sín. Skipstjórinn, senr átti von á áríðandi skeyti frá eigendum skipsins, taldi víst að skeytið væri að koma, og beið jress óþreyjufullur að loftskeytamaðurinn réði fyrir sig rúnirnar, sem skipstjórinn botnaði auðvitað lrvorki upp né niður í. En því nriður fór það á sömu leið með loftskeytanranninn. Hann gat ekki með nokkru móti áttað sig á því lrrafnasparki, senr franr konr á pappírsræmunni. Eftir tilmælum skipstjórans kallaði hann á önn- nr skip, sem nálægt kynnu að vera, og bað þau að endurtaka fyrir sig skeytið, en árangurinn varð sá, að rnerkin á papp- írsrænrunni urðu ennþá torráðnari. Vantrúaður á loftskeytamanninn og tæki hans, fór skipstjórinn leiðar sinnar. Eina skýringin, sem vesalings loftskeyta- maðurinn gat hugsað sér á þessu dular- fulla fyrirbrirgði var sú, að sennilega nryndu merkin vera frá einhverju af her- skipum flotans, sem væru að tala sanran á dulmáli. í New York voru viðtækin gaumgæfi- lega atlruguð. Konr þá í ljós, að inn í þau hafði komizt skordýr eitt, senr lrljóp þar fram og aftur og hafði með lrreyfingum sínunr liaft áhrif á straunrrofa tækisins, er tengdur var við sjálfrita þess. Það voru lrreyfingar dýrsins, sem valdið höfðu lrin- unr óræðu rúnum á pappírsræmunni! Það er ábyrgðarmikið starf að vera loft- skeytanraður á skipi og reynir oft á karl- mennsku og þor og oft verða þeir að fara sínar eigin götur jafnvel gegn fyrirskip- ununr skipstjóra, og bjarga þar nreð fjölda mannslífa, svo sem eftirfarandi frá- sögn sýnir. Það var í heimsstyrjöldinni fyrri. Lát- laus skothríð dundi á brezka skipinu Ben- ledi frá þýzkunr kafbáti. Venjulega reyndu kafbátarnir fyrst að skjóta niður loftnetin, svo að ekki væri hægt að kalla á lrjálp. Ein nrínúta gat því þýtt líf eða dauða. Loftskeytamaðurinn var að lrefja viðskipti sín við amerískt herskip sem var skanrmt í burtu, þegar skipstjórinn kom inn í loft- skeytaklefann og skipaði loftskeytamann- inunr að konra þegar að bátunum. Loft- skeytamaðurinn kinkaði kolli til nrerkis unr að hann lrefði Ireyrt skipunina, en liélt áfranr að senda skeyti. Allir yfirgáfu skipið nema lrann. Kaf- báturinn virðist annaðlrvort ekki lrafa veitt viðskiptununr við ameríska herskipið at- hygli eða talið líklegt, að Benledi væri konrinn að því að sökkva, því að hann lrvarf næstunr sanrstundis. Þegar svo síðar var konrið inn í loft- skeytaklefann á Benledi, sat loftskeyta- nraðurinn þar enn nreð höndina á sendi- lyklinunr, en síðasta skotið frá kafbátnum irafði orðið honunr að bana. Á borðinu fyrir franran lrann lá skeytið frá hjálp- arskipinu. Hann lrafði orðið að greiða það nreð lífi sínu. GERIZT ÁSKRIFENDUR! Utanóskrift’in er: NÝTT S 0 S, Pósthólf 195, Vesfmannaeyjum.

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.