Nýtt S.O.S. - 01.08.1960, Blaðsíða 8
um í samræmi við dollarana, sem að baki standa. Lítið bara í kringum
ykkur, á okkar starf til dæmis, sjómennirnir eru eins og sandur á sjávar-
strönd; jafnvel skipstjórarnir eru ekki hátt rnetnir nú til dags. Ekki vildi
ég skipta um hlutverk við þann „gamla“ á þessu skipi! Hann á að skófla
inn peningum fyrir útgerðarfélagið, verður að horfa þegjandi upp á það,
að meira sé lagt á dallinn en hann þolir. Já, piltar góðir, hann er ekki
öfundsverður.“
„Jæja, svona slæmt verður það vonandi ekki hjá okkur,“ sagði Ver-
chere brosandi, „hitt er auðvitað rétt, að samkeppnin er afar hörð, en
samt er það nú svo, að heiðarleiki og dugnaður hefur oftast borið hærri
hlut.“
„Guð varðveiti æsku þína og bjartsýni, drengur rninn! En ef það ætti
einhvern tíma fyrir þér að liggja, að kornast að annarri niðurstöðu, þá
hugsaðu til þinna gömlu félaga. Og stundum kemur það vonda fyrr en
maður hyggur!“
„Komdu, barnið gott!“ sagði Macdonald og lagði handlegginn bróð-
urlega að herðunt síns unga starfsfélaga, „við skulum heldur líta á þenn-
an lifandi farm og hætta öllum heimspekilegum hugleiðingum. Vissum
hlutum getum við því miður ekki breytt.en þá tekur maður bara því,
sem að höndum ber. Kernur þú með, yfirloftskeytamaður?"
„Farið þið bara einir,“ sagði O’Loughlin og fór að lesa í tímariti, sem
hann hafði komið með, „ég hef séð svo marga farþega um ævina, að ég
hef engan áhuga fyrir slíku, þeir eru allaf sjálfum sér líkir.“
„Allt í lagi,“ sagði Macdonald og kinkaði kolli, „skemmtið yður vel!
Við komum bráðum aftui. Sælir á meðan, yfirmaður!"
STARF VÉLGÆZLUMANNA.
Mr. Adams, yfirvélstjóri, hafði ærið að starfa í vélarrýminu. Helzt
hefði hann kosið að geta verið allsstaðar samtímis og stjórna öllu sjálfur,
enda þótt hann vissi vel, að hann gat treyst sínum mönnum fullkomlega.
Gufuþrýstingur var á öllurn kötlum og eldurinn þurfti stöðugt sína
næringu.
Þeir, sem aldrei liafa verið á gufuskipi, geta ekki gert sér í hugarlund,
hversu vinnan í ketilrúmi á hinum gömlu kolakyntu skipum, er erfið
og lamandi. Um það veit enginn nema sá, sem sjálfur hefur staðið í
slíku víti.
8
Nýtt S O S