Nýtt S.O.S. - 01.08.1960, Blaðsíða 35
Hann skrifaði upp öll tilboðin og náði svo sambandi við einn þekkt-
asta blaðakónginn.
Og það fór svo, að þessi gallharði kaupsýslumaður náði varla andanum,
er hann heyrði upphæðina, sem maðurinn krafðist fyrir myndirnar sínar.
„Þér þurfið ekki að kaupa filmuna, herra minn, ef yður er hún of
dýr,“ sagði maðurinn ofur rólega. „Þessi vara selzt hvar sem er.“
„Jæja, allt í lagi,“ sagði blaðakóngurinn. „Sem betur fer skeður ekki
svona lagað á hverjum degi — en þér græðið vel á neyð annarra!" gat
hann ekki stillt sig um að segja í bitrum tón.
Nú var löng þögn. Þá var sem sjómaðurinn ætlaði að svara árásinni
með aflmiklum sjómannshnefa sínum. Hann var ógnandi á svip, hann
herpti saman varirnar svo að þær urðu eins og mjótt strik. Þegar hann
hófst í allri sinni stærð veik mjósleginn blaðakóngurinn undan eins og
ósjálfrátt.
„Eg ætla aðeins að bæta svolitlu við, herra minn,“ sagði sjómaðurinn
með áherzlu. „Eg skil vel, að yður gremst það, að greiða mér svona
mikla peninga, þó þeir séu í rauninni ekki yðar peningar. Þér hafið
líklega ekki keypt þessar myndir til þess að líma þær í fjölskyldualbúm
yðar, heldur til þess að birta sem uppsláttarefni — til þess að auka söl-
una á blaðinu yðar. Hvaðan fáið þér laun yðar, sem líklega eru ekki
neitt smáræði? Fyrir hvaða fé eru blaðahallirnar reistar — og svo fram-
vegis, ha? Fyrir það fé, sem þið græðið á slysum og óhamingju, sem þið
eltið uppi um allar jarðir eins og fjandinn sé á eftir sál manns!"
Og svo ásakið þér mig fyrir það, að ég nota eitt tækifæri, en þið byggið
allt ykkar líf á slíkum tækifærum. Eg hef engum manni gert mein með
því að taka þessar myndir, en þær geta gert sitt til þess að skýra viss
atriði í sambandi við siglingar nútímans!
Og enn eitt: koppurinn minn er sokkinn. Eg veit ekki, hvort útgerð-
arfélagið hefur þörf fyrir mig lengur. Með peningunum, sem ég fæ fyrir
myndirnar, get ég séð fjölskyldu minni farborða fyrst um sinn.
Þetta getið þér skrifað sem texta með myndunum mínum. Eg krefst
engrar aukagreiðslu fyrir hann. En reynið ekki að troða illsakir við mig,
af öfund eða illgirni eða öðrum hvötum. Eg er friðsamur maður að eðl-
isfari, en ég get bitið frá mér, ef því er að skipta!
Jæja, nú hef ég létt á hjarta mínu. Nú er bezt fyrir yður að koma með
mér, annars gæti ég tekið til athugunar, að selja einhverjum keppinaut
yðar myndimar fyrir tvöfalt verð.“
Nýtt S O S
35