Nýtt S.O.S. - 01.08.1960, Qupperneq 36
Hann dró mislitan vasaklút upp úr vasa sínum og þurrkaði. svitann
a£ enninu.
Blaðakóngurinn rétti honum ávísun orðalaust.
Þessar myndir voru sendar út um allan heim með síma og flugpósti,
þær voru birtar í blöðum og tímaritum um allan heim og frásagnir þær,
sem myndunum fylgdu oft stórum ýktar.
Vestris-slysið vakti gífurlega athygli og umtal. Rannsókn slyssins stóð
yfir í 40 daga, eða tveim dögum lengur en rannsókn Titanic-slyssins.
SJÓDÓMURINN.
Bjart sólskin féll á ská inn um gluggana á salarkynnum sjóréttarins.
Umsjónarmaðurinn var fyrir réttinum. Hann var spurður að því, hvort
hann áliti, að skipið hefði ekki verið ofhlaðið.
„Nei,“ svaraði maðurinn með nokkrum mótþróa. „Það kemur mér
ekki heldur neitt við. Eg átti bara að sjá um, að ákveðið vörumagn færi
með skipinu."
„En þér hljótið þó að hafa veitt því athygli, að efsta hleðslumerkið
var komið í kaf, en samt létuð þér halda áfram að hlaða skipið."
Vitnið yppti öxlum.
„Vörurnar verða að komast á áfangastað; það er æðsta boðorðið."
„Öryggið er æðsta boðorðið!" sagði dómarinn ísköldum rómi. „Hafði
þá skipstjórinn ekkert við þessa hleðslu að athuga?“
Örstutta stund hikaði vitnið, svo muldraði það: „No“ milli saman-
bitinna tannanna.
Dómarinn leit á hann hvössu augnaráði.
„Eg mundi ekki segja þetta svo afdráttarlaust í yðar sporum.“
„Á að skilja þetta svo, að þér leggið ekki trúnað á orð mín?“ spurði
umsjónarmaðurinn snakillur.
Dómarinn svaraði ekki spurningunni en hélt áfram:
„Carey skipstjóri átti langan starfsferil að baki og hafði aldrei orðið
fyrir óhappi fyrr en nú. Hann var of reyndur sjómaður til þess að hafa
tekið þessum vinnubrögðum möglunarlaust. Sennilega liggja mistök hans
í því, að hafa ekki tekið af skarið."
„Ef hann hefði látið hætta að hlaða skipið, hefði ég verið síðasti maður
til þess að fara ekki að þeim óskum,“ svaraði umsjónarmaðurinn ergilegur
Nýtt S O S