Heimilispósturinn - 12.09.1960, Qupperneq 5

Heimilispósturinn - 12.09.1960, Qupperneq 5
.. SITT AF HVERJU ÚR SKEMMTANALÍFINU.. m PLÖTIIR 06 HLJÖMSVEITII Nokkrar nýjar hljómplötur hafa komið á markaðinn síðustu vik- urnar. Ber þar fyrst og fremst að telja tvær plötur, sem Ragn- ar Bjamason söng inn á í Dan- mörku fyrir nokkrum vikum og komu á markaðinn i júní-byrjun. Á fyrri plötunni eru lögin „Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig“ og „Komdu í kvöld". Fyrra lagið er gamalt amerísk lag og hið síð- ara íslenzkt lag eftir Jón Sig- urðsson. Báðir textamir á plöt- unni eru eftir Jón. Fyrri textinn er hálfgerð endaleysa en hinn síð- ari miklu skárri. Ragnari tekst vel á plötunum, enda hafa fáar íslenzkar plötur selzt betur en þessi. Hún hefur verið leikin í útvarpinu allt að því á hverjum degi frá útkomudegi hennar og er það algjört einsdæmi. Á síðari plötu Ragnars er ítalskt lag, sem ekki hefiir náð að verða vinsælt og síðan fyrsta lag sem Ragnar semur sjálfur. Jón Sigurðsson hefur gert texta við lag þetta, en nafngift á því er einstaklega klaufaleg, því það er nefnt „Rokk og cha-cha-cha". En hvað um það, lagið hefur náð nokkrum vinsældum, en platan ekki náð líkt því eins mikilli útbreiðslu og hin fyrri. Söngur Ragnars á báð- um þessum plötum er mjög góð- ur. Hann syngur ófalskt og texta- framburður til fyrirmyndar, þó hann sé kannske full linmæltur á stöku stað. Guðbergur Auðunsson hefur simgið inn á aðra plötu sína, að þessu sinni tvö amerísk rokklög „Stuck on you“ og „Adam and Eve“, sem hlotið hafa íslenzku nöfnin „TJti á sjó" og „Adam og Eva" en báða íslenzku textana hefur Jón Sigurðsson gert. Guð- bergur er músikalskur söngvari, ekki með mikla rödd, en hann syngur mjög rhythmískt og gæti, ef hann kærði sig um komist I röð okkar fremstu dægurlaga- söngvara, en Guðbergur hefur öðrum hnöppum að hneppa. Hann er að læra auglýsingateiknun í Danmörku og hyggst leggja það fyrir sig er heim kemur. Galli er það að textaframburður Guð- bergs er mjög óskýr, þetta er mikill galli á þessari skemmtilegu plötu, sem annars er vel sungin og undirleikurinn einstaklega góð- ur. Mun þar vera á ferðinn norsk hljómsveit, en platan var tekin upp erlendis eins og plötur Ragn- ars, en með Ragnari er dönsk hljómsveit sem gerir starfinu hin beztu skil. Enn er ný plata komin út, eru það lögin „Þórsmerkurljóð" og „Mústafa" með hljómsveit Svav ars Gests. Hljómsveitin kynnti bæði þessi lög hér á landi I út- varpsþættinum „Nefndu lagið" á síðasta vetri og vöktu þau strax athygli og náðu vinsældum. Sig- uröur Þórarinsson jarðfræðingur gerði vísumar við Þórsmerkur- ljóð, og teljast þær með því bezta af því tagi, sem, sem komið hef- ur á plötu í langan tíma. Það mun vera Sigurdór, sem syngur vís- umar og er söngur hans æði lit- brigðalaus miðað við hvað hon- um hefur tekist vel upp er hann hefur sungið rokklög á dansleikj- um. Þetta er hans fyrsta plata og fáir smiðir I fyrsta sinn. Múst- afa er með texta eftir Jón Sig- urðsson, hann gerir orðið texta við hvert það lag er kemur á plötu. Þetta em hálfgerðar gam- anvísur og sungnar sem slikar. Lag^ð er austurlenzkt og einsöng- ur á plötunni á líklega að likjast austurlandamönnum er þeir söngla. Þessi hlið plötunnar er öllu líflegri en hin fyrri. Þó er hljóðfæraleikur og söngur all loð- ið á plötunni og er þar kannske um að kenna plötuupptökunni. Til- raun er gerð með kvennakór, að- allega í fyrra, laginu. Virðist sú tilraun ekki koma að því gagni sem skyldi. Söngur þeirra kemur sem úr fjarska og er ekki nógu líflegur. Fleiri nýjar plötur eru væntanlegar á markaðinn úr inn- lendu músíklífi á næstunni og verður minnzt á þær þegar þar að kemur. Allmiklar breytingar standa fyrir dyrum í hljómsveitunum í Reykjavík næstu vikumar. Enn er ekki ljóst hvemig sumar þeirra verða en líklegt er, að Magnús Pétursson hljómsveitar- stjóri í Lídó hætti þar og gerist píanóleikari í tríói Hrafns Páls- sonar bassaleikara í Leikhúskjall- aranum. Þriðji maðurinn þar verður Edwin Kaaber gítarleik- ari, sem leikið hefur á Akureyri í nokkur undanfarin ár. Kristinn Vilhelmsson bassaleikari og hljómsveitarstjóri úr Leikhús- kjallaranum mun að sögn fara í Tjamarcafé og með honum Reyn- ir Sigurðsson vibrafónleikari og síðan einn maður í viðbót, sem enn hefur ekki verið ráðinn. Hvort Framsóknarhúsið verður rekið næsta vetur og hverjir leika þar er alveg óákveðið en hvorki munu þeir Gunnar Ormslev né Magnús Ingimarsson fara þangað, en þeir vom þar hljómsveitarstjórar sinn- hvom veturinn sem húsið hefur verið rekið. KK sextettinn mun hætta sveitaferðum sínum í septemberbyrjun og snúa sér að Keflavíkurflugvelli á laugardög- um. Þar hefur verið talsverð vinna fyrir íslenzkar hljómsveit- ir undanfarið. 1 sumar hafa m. a. leikið þar af og til hljómsveit Sigrúnar Jónsdóttur, Guðmundar Finnbjörnssonar og Svavars Gests. Ungir hljóðfæraleikarar I. BERTRAM MOLLER 1 ráði er að Ragnar Bjarnason fari aftur utan (og verður jafn- vel farinn þegar þetta birtist) til að syngja inn á nýjar plötur, ekki færri en sex lög. Þær tvær plötur, sem Ragnar söng inn á í Danmörku fyrir nokkrum vikum hafa náð gífur- legri sölu og ákaflega miklum vinsældum. Lagið „Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig" var í Fer Ragnar Bjarnason aftur utan til að syngja inn á plötur? efsta sæti á vinsældalista þáttar unga fólksins í hvorki meira né minna en sjö vikur og var leikið í hverjum einasta óskalagaþætti og léttmúsikþætti útvarpsins á sama tíma. Söngur Ragnars á þessum plöt- um er mjög góður og þá ekki hvað sízt undirleikur og útsetn- ing laganna, en það annaðist dönsk hljómsveit og hafði þó sér til aðstoðar Kristján Kristjáns- son hljómsveitarstjóra, sem stadd- ur var úti um leið og Ragnar. Blaðið hitti Ragnar að máli og ætlaði að afla sér frétta um væntanlegar plötur. Hann sagði, að það væri ekki endanlega geng- ið frá því hvaða Iög hann mundi syngja inn. Það kæmi jafnvel til greina nýtt lag eftir Jón Sigurðs- son og svo væri ekki loku fyrir það skotið, að hann myndi syngja inn lag, sem Ólafur Gaukur hafði nýlokið við að semja. Hitt mundu líklega verða erlend lög með nýj- um íslenzkum textum. En, bætti Ragnar við, þú skalt ekki minnast á þetta strax, því ef það tefst að ég komist út, þá verður ekkert af því að sinni, þar sem ég hefi annað í bígerð í miðjum september, sem aftrar því að ég komist út. Og hvað er það? spurðum við þá. Við skulum geyma að segja frá því. Nú þarf ég að skreppa út í bæ og sækja nýjan danslaga texta. Eigum við bara ekki að sleppa þessu öllu? Jú jú, við sleppum þessu ''ira öllu. Segjum ekki orð um reitt. Og látum svo hin blöðin verða á undan okkur með fréttina. Nei, kall minn — alls ekki. Siunir hljóðfæraleikarar eru gæddir þeim kostum, að þeir setja einkennandi svip á hverja þá hljómsveit, sem þeir leika með. Einn þeirra hljóðfæraleikara, sem er gæddum þessum hæfileik- um er úr hópi þeirra ungu pilta, sem komið hafa fram síðustu eitt eða tvö árin, þetta er gítarleikar- inn og söngvarinn Bertram Möll- er. I tæplega tvö ár hefur Berti leikið í fjórum hljómsveitum og hann hefur aðeins verið í hljóm- sveitinni í örfáar vikur þegar hún hefur tekið þeim stakkaskiptum, að hægt hefur verið að tala um einkennandi stíl fyrir hljómsveit- ina. Nærtækasta dæmið um þetta er Falcon-sextettinn. Berti hafði að- eins leikið með hljómsveitinni í örstuttan tíma þegar hún var farin að vekja athygli, og nokkr- um vikum síðar var Falcon-sex- tettinn orðin einhver vinsælasta hljómsveit imga fólksins og var þar við rótgrónari unglingahljóm- sveitir að keppa. Berti lék fyrst í hljómsveit sem pianóleikari, var það reyndar með Falcon, sem þá hét öðru nafni og var að nokkru leyti skipaður öðrum mönnum. Síðan hreyfst Berti af gitamum og þá fyrst fór hann að vekja athygli þó ungur væri og nú er Berti, aðeins 18 ára gamall, talinn vera einna lík- legastur þeirra ungu pilta, sem fram hafa komið undanfarið, til að hasla sér völl við hliðina á okk- ar hæfustu hljóðfæraleikurum. Berti hefur lært á gítar hjá sjálfum sér og orðið að snúa öllu kerfinu við, því hann er örvhentur og snéri strengjunum við á gítarn- um, hefur efsta strenginn þar sem dýpsti strengurinn ætti annars að vera o. s. frv. Ekki má gleyma því, að Berti er jafnframt mjög góður söngv- ari, það er eiginlega ekki hægt að segja efnilegur lengur, þvi hann hefur sungið það mikið und- anfarið að hann hefur skapað sér sinn sérstaka stíl. Honum tekst bezt upp í rólegum lögum þar sem hin háa rödd hans nýtur sín hvað bezt. Og hefur hið gamal- kunna lag „Only you" verið hans þekktasta lag. Það er sama hvað Berti kynnir af nýjum lög- um alltaf vilja aðdáendur hans heyra „Only you". Berti Möller hefur verið í Verzlunarskólanum undanfarna vetur en hyggst nú hefja prent- nám og ætlar að sjálfsögðu að spila áfram með Falcon, þvi músíkkin er hans líf og yndi. HEIMILISPÓSTURINN 5

x

Heimilispósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1016

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.