Heimilispósturinn - 12.09.1960, Blaðsíða 11
ÁSTIN ER LJÚSRAUÐ
rauðlr og barmar sundlaugarinnar,
og í botn hennar er letrað trölla-
letri: ÉG ELSKA ÞIG, JANA!
önnur minni laug er i garðinum,
handa Mikka yngri til að vaða í.
Hvarvetna um garðinn eru
marmarastyttur af Amor með
örvabogann, og svo er þarna
þriggja metra há Kristsmynd úr
marmara. Yfir útieldstœðinu er
gríðarstórt hjarta úr steini. Þess
skal líka getið, að heilmörgum
hjörtum, máluðum og höggnum,
er dreift víðsvegar um húsið.
Enn er ósagt frá gólfteppun-
um; þau eru alltof þykk og mjúk
til að viðlit sé að ganga á þeim.
Og af þvi að þau eru hvít, verða
gestimir vitanlega að fara úr
skónum frammi í forstofu, áður
en þeir ganga inn í helgidóminn.
Bleiki liturinn er ríkjandi inn-
anhúss, enda þótt sá hvíti slagi
hátt upp i hann. Inni í setustof-
unni er Steinway-flygill, hvitmál-
aður og gylltur, og skreyttur
margvíslegum hjörtum.
Húsið er á þrem hæðum, og vit-
anlega er lyfta á milli hæða, svo
íbúamir þurfi ekki að leggja á sig
óþarfa göngur. Lyftan var þeim
færð að gjöf, svo og fjölmargt
annað, en flest hafa þau orðið að
kaupa, og skömmu eftir að þau
eignuðust húsið og hófu umbæt-
ur á því, rótaði Mikki upp öllum
garðinum með lánaðri jarðýtu,
til þess að geta komið sundlaug-
inni fyrir. Upphaflega kostaði
húsið með lóðinni þau ekki nema
um hálfa þriðju milljón ísl. króna,
en talið er að það myndi kosta á-
líka mikið að fjarlægja menjarn-
— Þetta þýðir vist það, að við-
gerðin á þakinu dragist eitthvað
fyrst um sinn?
ar um ástir þeirra, ef einhver
keypti húsið og hyggðist búa í þvi.
En á því er víst engin hætta.
Samkvæmt erfðaskrá, sem þau
hafa gert og er geymd hjá
lögfræðingi einum i Hollywood,
má alls ekki selja eignina, heldur
skal hún haldast i ættinni að ei-
lífu...
Þannig er þá umhorfs heima
hjá þeim Jayne Mansfield og
Mickey Hargitay, og hafa þau
hjón verið óspör á að leiða ljós-
myndara um alla króka og kima
í húsinu til að sýna þeim dásemd-
imar, en menn brugðið misjafn-
lega við, þótt margt held-
ur afkáralegt og sumt beinlínis ó-
smekklegt og ljótt. En hvað um
það, þau hjónin segjast aldrei mögulegt er að hafa þannig í
hafa séð neitt dýrðlegra, og kalla laginu, — sundlaugina, baðkerið
þetta „minnismerki ástar þeirra," og arininn.
enda allt í þeim dúr. Það er Húsið er auðþekkt langar leið-
skaði að geta ekki birt myndimar ir, umgirt háum, ljósrauðum múr-
í eðlilegum litum, þvi að eins og garði, veggir hússins eru Ijós-
allir vita, þá er ástin ljósrauð á
litinn, og fyrir þá litbiindu, sem
koma til að skoða, hafa þau hjón-
in gert alla hluti hjartalaga, sem
HEIMILI5PDSTURINN