Heimilispósturinn - 12.09.1960, Qupperneq 13

Heimilispósturinn - 12.09.1960, Qupperneq 13
færir hún mér appelsínusafa, hvað sem ég er að gerá. Og klukkan fjögur á daginn færir hún mér annað glas. Þetta er samkvæmt fyrirskipun heimilis- læknisins, dr. Hepburn. Við erum ekkert sérstaklega gefin fyrir samkvæmi og nætur- klúbbaheimsóknir. En á laugar- dögum bjóðum við góðkunningj- unum oft heim til okkar. Þar röbbum við um leikhús og kvik- myndir og hlustum á nýjustu plötumar. Mig hefur langað til að læra að fljúga, en í því atriði er Audrey beinlínis sauðþrá. Við því leggur hún blátt bann, basta! Og eigi ég að vera hreinskilinn, þá er ég alveg sama sinnis varðandi ýmislegt, sem hún tekur sér fyr- ir hendur, og gengur út yfir líf og heilsu. Eins og til dæmis þegar hún átti að sitja hnakklaust hest í kvikmyndinni ,,The Unforgiven." Ég var dauðskelkaður, þvi að ég mundi eftir því, að hún hefði dott- ið af hestbaki og meitt sig. En í það skiftið varð ég að láta und- án, ég gat ekki eyðilagt ánægj- una fyrir henni. Ég mátti naga mig í handarbökin fyrir að hafa látið undan henni, þvi að hún varð fyrir slysi í Durango og varð að liggja mánaðartíma á sjúkra- húsi. Audrey gerir allt, sem hún mögulega getur til að koma i veg fyrir, að ég geri alfskonar kjána- strik i fljótfærni, og það er fyr- irtak, því að ég gæti hennar að sama leyti. Og það að við gætum hvors annars og vildum helzt alltaf vilja vera hvort hjá öðru, leiddi einu sinni til þess lengsta ferðalags sem ég hef nokkru sinni á ævi minni farið. Og það segir þó talsvert. Audrey var í Kongó, að leika í kvikmyndinni „Nunnan". Ég var að kvikmynda í Hollywood. Þetta var fyrsti aðskilnaðurinn okkar, og sá síðasti, að ég vona. Þann tima langar mig ekki til að upp- lifa aftur. En svo komst ég einn daginn að því, að við myndum geta verið saman í viku, ef ég legði land undir fót. Ég var í Suður-Ameríku við upptöku nokkurra atriða í „Green Mansions". Eftir sex vikna dvöl í frumskóginum ákvað ég að halda heim til Hollywood, með viðkomu hjá Audrey! Það þýddi það, að ég varð að fara til Bermunda og þaðan til Frakk- lands og loks til Róm. Audrey var rétt komin þangað frá Kongó, og við vorum þar saman í viku- tíma, þangað til ég varð að fara til Hollywood. Audrey kom nokkru á eftir, hún þurfti fyrst að ljúka við „Nunnuna". Að búa með Audrey í Kali- forníu er alveg eins og búa með henni hvar sem er annarsstaðar i heiminum. Sí-nýstárlegt, sí- spennandi, — og sí-fagurt út- sýni frá fögrum bústað. 1 Kaliforníu vorum við nefni- lega svo heppin að finna hús hátt uppi yfir Beverley-hæðum. Annarsvegar sjáum við inn til fjallanna, og hinsvegar út yfir sjóinn. Það var héma heima, sem Audrey fann, að hún var með barni. Það var heitasta ósk hennar að tffiða barnið í Sviss, hæst uppi í snæþöktu fjöllunum, þar sem giftum okkur. En skömmu eftir STJÖRNUSPÁ NÆSTU VIKU Vatnsberamerki, 21. jan.—19. febr. Þú skalt ekki hafa neinar áhyggjur, þótt einhver virðist vera gramur út 1 þig og reyni að vinna gegn áformum, sem þú hefur í huga, — láttu bara til skar- ar skríða, því að annars kynnirðu að missa af gull- vægu tækifæri. Laugardagurinn er happadagur, og í byrjun vikunnar gefst ýmsum undir fertugt ómetan- legt tækifæri. Fiskamerki, 20. febr.—20. marz. Varastu að vera of dulur, þú lumar á upplýsingum, sem einhver þarfnast. Vikan er tilvalin til að ganga í hjónaband, og þeim giftu verður hún til mikillar gleði. Það má búast við veizluhöldum, og þú ættir ekki. að neita heimboðum. Hrútsmerki, 21. marz—20. apríl. I þessari viku yerður þú að taka þýðingarmikla ákvörðun, og það skiftir miklu máh, að þú takir til- lit til gagnrýni, sem eldri kona lætur þér í té fyrri- hluta vikunnar. Yngra fólkið ætti að taka sig á í hegðun þessa vikuna, og það eru framundan smá- atburðir, sem geta komið illa niður. Nautsmerki, 21. apríl—20. maí. Þú skalt ekki hika við að segja meiningu þína, þú hefur rétt fyrir þér, og misstu ekki móðinn. Ætlir þú að ferðast, skaltu geyma það fram á föstudag. 1 vikulokin gætirðu komizt í smáklípu í sambandi við tilfinningamál. En vikan er hagstæð í ástamálmn. Tvíburamerki, 21. maí—21. júní. Hryggbrot eru að vísu leiðinleg, en er ekki bezt að hugsa sem svo, að það hefði getað farið ver? Þú færð verkefni að glíma við, sem þú gætir haft tekjur af, og þú skalt einbeita þér að því. Unglingarnir und- ir tvítugu eiga í erfiðleikum vegna ástamála annara í þessari viku, og fólk yfir fertugu má búast við á- nægjulegum atburðum, sem koma mjög á óvart. Krabbamerki, 22. júní—22. júlí. Það er vissara að varðveita góða skapið í lengstu lög, annars gætirðu misst af gullnu tækifæri á mánu- daginn. Það má búast við því, að einhver reyni að gera þér gramt í geði, og ef þú lætur það heppnast, má búast við, að það hafi alvarlegri afleiðingar síðar í vikunni. Happadagur vikunnar er miðvikudagur, og þá jafnvel helzt í peningamálum. Ljónsmerki 23. júlí—22. ágúst. Þessi vika gæti orðið þér mesta leiðindavika, ef þú ert of hörundsár, en ef þú hinsvegar getur slegið öllu upp í grín, mun það koma þér mjög í hag. Þú færð vandamál við að etja varðandi konu, og þar gefst þér tækifæri til að vekja á þér aðdáun með úrræðum þín- um. Föstudagur er happadagur. Meyjarmerki, 23. ágúst—22. sept. Einhverjir ánægjulegir atburðir gerast innan fjöl- skyldunnar, og þú hefur þau afskipti af þeim, að þér verður í hag. Eitthvað, sem er að brjótast í þér gagn- vart kunningjunum, getur haft leiðindi í för með sér, ef þú hlýtir ekki hollráðum beztu vina. 1 þessari viku má búast við heppni í periingamálum. Metaskálamerki, 23. september—22. október. Slepptu ekki tækifæri, sem þér býðst fyrrihluta vikunnar, enda þótt þér kannske finnist ekki mikið til þess koma. Vikan er hagstæð í hverjum þeim tilgangi, sem miðar að því að koma fjárhagnum í lag, hvort heldur er um að ræða atvinnutilboð eða framtíðar- horfur. Eldra fólk fær í vikunni tækifæri, seiri hefur í för með sér heppni í peningamálum. Sporðdrekamerki, 23. okt.—21. nóv. Góð vinkona þín er helzt til mikið með kunningja þínum, og í þessari viku mátt þú búast við vandræð- um í því sambandi, sérstaklega ef um veizlu eða sam- kvæmi er að ræða. Þú færð tækifæri til að endumýja gamlan kunningsskap, láttu þér annt um hann. Og svo er fimmtudagurinn happadagur. Bogmannsmerki, 22. nóv.—22. des. Þú verður að færa smávegis fórn í þessari viku, og þér verða góð ráð dýr; eldri maður, sem er ná- kominn heimili þínu, kann ráð við flestu. Hinsvegar eru horfumar á áhugamálum þínum hinar ákjósan- legustu, og þú skalt ekki hika við að koma þeim í kring sérstaklega hvað snertir. f járhaginn. Steingeitarmerki, 23. des.—20. jan. 1 byrjun vikunnar færð þú hugmynd, sem'að vísu er ekki ný, en i þetta skiftið geturðu framkvæmt hana eftir föstudaginn. Segðu ekki of mikið, en vertu heldur ekki of leyndardómsfullur. Þeir, sem fæddir em í janúar og fólk 18—45 ára munu eiga ánægjulegan laugardag, þótt með óvæntu móti verði. að við komum þangað, veiktist Hvers óskum við okkur í fram- hnettinum, þar sem við eignumst ég, að Audrey gyllir líf mitt með hún skyndilega að naeturlagi, og tíðinni? Að sjálfsögðu hlökkum hvarvetna nýja vini. En hvort sinu dásamlega skapi og ást. Er varð að fara samstundis á sjúkra- við afar mikið til þess að eign- heldur við vöknum á heimili okk- það ekki mesta hrósið, sem eig- hús. Læknarnir fengu ekkert að ast bam. Við vitum að starf okk- ar í fjöllunum, eða einhversstað- inmaður getur gefið konu sinni? gert; við misstum barnið okkar. ar leiðir okkur um nýja staði á ar úti á hjara veraldar, þá veit = FILLIIMfti m FELIX heimilispósturinn i-13

x

Heimilispósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1016

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.