Árbók Reykjavíkurbæjar - Dec 1941, Page 196

Árbók Reykjavíkurbæjar - Dec 1941, Page 196
182 sín um, að fá verkfræðing sendan upp. Varð þá úr, að hingað var sendur verkfræðingur sumarið 1857, Fischer að nafni. Fischer taldi, að aflokinni rannsókn, að lokuð höfn myndi kosta um 50 þús. rd. -— Haustið 1857 fórst póstskipið „Sölöven“ (undir Svörtuloftum). Á öndverðu árinu 1858 var samið við útgerðar- mann C. P. A. Koch um póstsamgöngur við útlönd. Hófust nú póstferðir (6 á ári) með gufuskipi („Arcturus"). Árið 1860 lagði Koch til, að hér yrði byggð hafnarbryggja, er talið var að myndi kosta um 5000 rd. 1 bréfi til stjórnarinnar, dags. 26. okt. 1859, réði stiftamt- maður, samkv. yfirlýsingu frá verzlunarmönnum bæjarins, eindregið frá, að farið væri eftir til- lögu Kochs. Hins vegar mælti stiftamtmaður kröftuglega með útvegun ríkisstyrks til að byggja hér hafnarkví. Hafði hann þegar í bréfi til stjómarinnar, 14. nóv. 1857, borið fram til- lögur þar að lútandi. Fengist styrkurinn ekki, mælti stiftamtmaður þó með því 1859, að látið yrði nægja að byggja heppilega bryggju. Dóms- málaráðuneytið tilkynnti 20. april 1860, að það gæti á hvoruga tillöguna fallizt. Taldi ráðun. sig þurfa að fá álit hafnamefndar um bryggj- una, áður en hægt væri að taka afstöðu til þess máls. Hins vegar mun kostnaðurinn við bygg- ingu lokaðrar hafnar hafa vaxið stjóminni í augum. — Þegar á næsta ári gat stjórnin bent á leið, sem til bráðabirgða leysti hið opinbera frá frekari aðgerðum í hafnarmálinu. 1 bréfi til stiftamtmanns, dags. 5. júlí 1861, tilkynnti dóms- málastjómin, að kaupm. J. C. Knudtzon og C. F. Siemsen hefðu skriflega boðið hinu opinbera ókeypis afnot af skipabryggjum þeirra. Áður hafði W. Fischer kaupm. boðið slík afnot af bryggju, er hann hafði látið gera, gegn 50 rd. gjaldi árlega í viðhaldskostnað. 1 ofannefndu bréfi ráðuneytisins er stiftamtmanni i sjálfs- vald sett, hvort þvi tilboði yrði tekið. Leið nú all-langur tími, þangað til hafnarmálinu væri hreyft aftur af alvöru, en eftir það áttu fram- kvæmdimar enn langan aðdraganda. — Árið 1896 fóm kaupm. og verzlunarstj. bæjarins þess á leit við hafnam. og bæjarstj., með bréfi dags. 7. febr., að hingað yrði fenginn áreiðanlegur hafnarvirkjafræðingur, til að gera áætlun um kostnað við hæfilega hafnarkví, sem betur myndi fullnægja þörfum bæjarins en hafskipa- bryggja. Hafnarstj. kom þessari málaleitan á framfæri við landsstjómina, sem útvegaði hing- að verkfræðing frá Kaupmannahöfn, Paulli að nafni. Árið 1877 hafði annar verkfræðingur (Rothe) verið fenginn í sama skyni. Paulli rann- sakaði höfnina og hafnarstæði hér sumarið 1896. Lagði hann til, að byggð yrði lokuð, vatnsheld skipakví, 18 feta djúp (frá Zimsens-bryggju vestur að bryggju Geirs Zoega), er skip fæm inn í og út úr við flóð. Utan um kvina átti að byggja tvo bogadregna skjólgarða, annan út frá Grandabótinni, en hinn frá Batteriinu, með 250 feta breiðu innsiglingaropi. Var áætlað að mann- virki þetta myndi kosta um 4,6 milj. kr. Bæjar- stjóm og hafnam. treystust ekki til að leggja út í svo kostnaðarsamt fyrirtæki, og féll hafn- armálið niður um hríð. — Árið 1905 var málið aftur tekið fyrir af bæjarstjórn, sömuleiðis að undirlagi kaupmanna. Á fundi 7. des. fól hún hafnarn. að útvega hæfan sérfræðing í hafnar- málum, frá Noregi eða Skotlandi, til að rann- saka hafnarsvæðið á ný, og koma fram með til- lögur. Nefndin sneri sér til hafnarstj. Kristianíu, Gabriel Smith. Kom hann hingað sjálfur sumar- ið 1906. Að aflokinni rannsókn lagði hann fram, á bæjarstjórnarfundi 24. ágúst 1906, bráða- birgða-álit. Taldi hann heppilegast að hækka grandann út í Örfirisey, byggja garð þaðan í áttina til Batteriisins og annan á móti frá Batteriinu, þannig að hæfilegt innsiglingarop myndaðist á milli þeirra. Bæjarstjórnin féllst á þessa tilhögun, og samþ. á fundinum, að fá frá hafnarstjóranum nákvæma áætlun um hafnar- byggingu á þeim gmndvelli. — Nákvæm áætlun um hafnarbygginguna frá Gabriel Smith, ásamt teikningum og fylgiskjölum, lá fyrir í árslok 1909 (dags. í Kristianíu í nóv.). Áætlanimar voru tvær. Kostnaðurinn samkv. hærri áætl. var 1602 þús. kr., en þeirri lægri 852 þús. kr. Hærri áætlunin var gerð á þeim grundvelli, er að ofan er lýst, og gert ráð fyrir 180 m. breiðu innsiglingaropi. Lægri áætlunin var miðuð við sams konar garð eftir grandanum út í Örfirisey og i hærri áætluninni, en styttri garð í austur frá Örfirisey, og að garðinum frá Battariinu var sleppt. — Hafnarnefnd lagði fram skrif- lega greinargerð um hafnarmálið, dags. 30. des. 1910 (undirrituð: Páll Einarsson, Jón Þorláks- son og Tryggvi Gunnarsson). Greinargerðin er í tveimur köflum: 1. Nefndarálit i hafnarbygg- ingamáli Reykjavikur. 2. Frumvarp til hafnar- laga fyrir Reykjavík. Nefndin lagði mjög ein- dregið til í áliti sinu, að reynt yrði að hrinda hafnarbyggingarmálinu í framkvæmd á grand- velli hærri áætlunar G. S. Færðu nefndarmenn fram mörg þungvæg rök fyrir mikilvægi hafn- arinnar, ekki aðeins fyrir Reykjavík, heldur landið í heild. Töldu þeir að höfnin myndi mjög efla innlenda verzlun og iðnaðarstarfsemi, en mesta þýðingu myndi hún hafa fyrir efling fiskveiðanna, er auka mætti ,,takmarkalaust“. — Með tilliti til mikilvægi hafnarinnar fyrir landið, taldi nefndin hæfilegt, að landssjóður legði fram helming hins áætlaða byggingar- kostnaðar, eða 800 þús. kr. Var í framvarpi til hafnarlaga gert ráð fyrir þeim styrk. Þá gerði nefndin uppkast að kostnaðaráætlun fyrir höfn- ina, þar sem miðað er við 800 þús. kr. stofn- kostnað, og áttu árleg útgjöld samkv. því að vera 67 þús. kr. Tekjur hafnarinnar þurftu því að nema þeirri upphæð. Nefndin ætlaðist til að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222

x

Árbók Reykjavíkurbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Reykjavíkurbæjar
https://timarit.is/publication/1047

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.