Byggingarlistin - 01.01.1956, Page 10

Byggingarlistin - 01.01.1956, Page 10
TILLAGA „VJE" Arkitekt: Gunnlaugur Halldórsson Preludium Við breytingar á Tjörninni og svæðinu umhverfis hana ber einkum að gæta þess, að varðveita það, sem er oss kærast og einkum einkennir þennan eftirlætisstað Reykvíkinga. Fáir mundu vist fagna því ef í stað Tjarnarinnar væru komnir grasi grónir vellir, og þó unnum við víst öll gróðrinum. Nei það er að mínu viti hið lifandi og fjölskrúðuga samband gróðurs og vatns, sem hænir að sér fuglana og veitir okkur stundar gleymsku frá striti daglegs lífs. Þar sem mætast asfalteraðir vegir og vatn erum vér aðeins áhorfendur — en þegar vér stöndum í gróður- lundi á Tjarnarbakkanum erum vér þátttakendur og njótum náttúrunnar. Þetta er einkum sagt til þess að beina athyglinni að því, hversu rangt er að farið norðan Skothússvegar. Gróðurinn er auðvitað góðra gjalda verður hvar sem hann er, en honum hefur verið bægt frá vatninu og veg- urinn skilur á milli. Hið ófrjóa sam- band vegar og vatns veitir oss enga ánægju, og því hefur það verið mark- mið mitt með þessum tillögum að stuðla að lífrænna sambandi Tjarn- arinnar við umhverfi sitt. Skipulag Nauðsynlegt er að athuga nokkuð skipulag bæjarins, þegar rætt er um framtíðarbúning Tjarnarinnar. Augljóst er, að greitt samband verður að vera milli austur- og vestur- bæjarhlutanna, og mikill hluti þeirr- ar umferðar á ekkert erindi um mið- bæjar- og tjarnarsvæðið, ef á öðru er völ. Hringbrautin hefur stórbætt þetta ástand og á eftir að létta mun meira á miðbænum. Sama gegnir annars veg- ar um Strandveg Skerjafjarðar og hins vegar um Tryggvagötu og hafn- arsvæðið. Þá er það skoðun mín, að til bóta væri að draga úr umferð hinna mörgu og ónauðsynlegu smágatna miðbæjarins, er tefja og þjappa sam- an umferðinni, mætti nefna Pósthús- stræti og Templarasund o. fl., til bóta væri að leggja niður alla bifreiðaum- ferð um þær götur og ef til vill fleiri, er að ónauðsynlegu dreifa umferð og teygja miðbæinn — en því er þess getið hér, að það mundi létta nokkuð á umferð meðfram Tjörninni. Þá er það Skothúsvegurinn, sem að vísu hefur nokkru umferðarhlutverki að gegna, en Hringbrautin hefur nú að mestu tekið við því, og mun gera í ríkara mæli. Tel ég misráðið að fram- lengja Skothússveginn til austurs, þar sem hið þrönga og ruglingslega gatnakerfi Þingholta er ekki fært um að taka við aukinni umferð — og heldur ekki æskilegt að beina þangað gegnumakstri. Skothússvegurinn er til stórlýta og truflunar á tjarnarsvæðinu. Ef bæta ætti úr um útlit hans, þyrfti að taka uppfyllinguna og gera létta bogabrú (smáboguni) og til muna mjórri en þá, sem nú er, ef útlitið á nokkru um að ráða. Einsýnt er af þessu, að þó nokkurt gagn sé enn að Skothússveg- inum, hefur hann að mestu lokið hlut- verki sínu. Hann lýtir Tjörnina og dreifir umferðinni verr en skyldi. Margur mun þó sjálfsagt sakna þess að geta ekki gengið um þessar slóðir. Ég hef því kosið að gera hólma úr fyllingunni með léttum bogabrúm úr tré á milli -— fyrir gangandi fólk. (í hólmum og á gróðursvæðum hugs- ast gerð 1—2]A m „hæðadrög“ til skjóls.) Byggingaruar og skipulag við Tjörnina Samkvæmt ofanskráðri prédikun ættu víst engar byggingar að vera um- hverfis Tjörnina, en ég hef fallið fyrir freistingunni — það er heldur ekki um marga staði að ræða, þegar koma skal fyrir ráðhúsi, nýju Alþingishúsi o. fl., en húsin, sem fyrir eru, eru flest timburhús og því hægt að flytja þau úr stað. Við norðurenda Tjarnarinnar á lóð I. 0. G. T. geri ég ráð fyrir, að byggt verði nýtt þinghús með skrif- stofuálmu milli þinghúsanna. I brekkunni milli Tjarnargötu og Suðurgötu er komið fyrir fjórum há- um byggingum, gætu verið skrifstof- ur ríkis og bæjar, eða bæjarins ein- ungis, í tveimur þeirra og hinar tvær gistihús og heimilið Hallveigarstaðir, en þá mundi ráðhúsið sjálft einkum gegna representativu hlutverki. Við suðurenda þessa svæðis er gert ráð fyrir allstórri byggingu og ráð- hús haft í huga, en ef því skyldi val- inn annar staður, t. d. á barnaskóla- lóðinni, kæmi til greina að ætla það svæði undir bústað forseta Islands, en gera verður ráð fyrir, að höfuðstaðn- um sé bæði skylt og ljúft að hafa stað á takteinum undir forsetabústað. Geri ég ráð fyrir, að þetta svæði verði Framh. á 29. bls. DÓMNEFNDARÁLIT : Lögun tjarnarinnar góð, skemmtileg og athyglisverð hugmynd að umlykja báðar tjarnirnar trjá- og grasgróðri (parki), en kostnaðarsöm framkvæmd vegna breytinga á götuni. Hæpið að fella niður brú þá, sem liggur yfir tjörnina, vegna bílaumferðar milli bæj- arblutanna, en bugmyndin annars skemmti- leg og athyglisverð að því, er snertir hólm- ana og göngubrýrnar. Hinar báu byggingar við Suðurgiitu vafa- samar, æskilegast væri, að engin byggð væri í Tjarnargötu-brekkunni, sérstaklega ef Tjarnargata yrði lögð niður. Tillögur norðan tjarnar atbyglisverðar, fallegra |>ó að opna svæðið að þinghúsinu. Hæðadrög og tilbreytni í landslagi at- hyglisverðar tillögur. Breyting á Fríkirkjuvegi til bóta fyrir um- ferðina, en rýrir lóðir við hann. Staðsetning ráðhúss hæpin ef Tjarnargata yrði lögð niður. Tillögur um gerð bakkanna ekki vel skil- greindar. 8 BYGGINGARLISTIN

x

Byggingarlistin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Byggingarlistin
https://timarit.is/publication/1048

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.