Byggingarlistin - 01.01.1956, Page 14

Byggingarlistin - 01.01.1956, Page 14
TILLAGA „TILRAUN" Arkitekt: Agúst Pálsson Landið sjálft á sína höfuðborg, eins verður Reykjavík að eiga sinn höfuðstað, og hún á hann, Tjörnina, hjarta borgarinnar þar inni í miðju bæjarins, í tengslum við helztu um- ferðaæðar, mesta þéttbýli og starfs- líf, hefur okkur verið gefinn þessi staður tilvalinn til útilífs og úti- skemmtana, til þess að geta notið út- sýnis og náttúrufegurðar aðeins nokkur fótmál frá önnum dagsins. Því verðum við að sýna þessum stað þá sæmd sem honum ber, gefa honum það sem hans er. Til þess unnt sé að gefa tjörninni og umhverfi hennar það framtíðar- útlit, sem þessum stað og hlutverki hans hæfir, verður að fórna nokkru af þeim byggingum sem nú eru í ná- lægð tjarnarinnar, til þess hvoru- tveggja að rýma fyrir nýjum bygging- um, sem hér eiga heima, og auka út- sýni frá þeim og öðrum sem fyrir eru. En sú kynslóð, sem tekst á heindur að leysa þetta mikilsverða hlutverk í þró- unarsögu Reykjavíkur, og reisa sér þar með minnisvarða, má ekki láta sér urn of í augu vaxa þann kostnað, sem þessu er samfara. Á meðfylgjandi teikningum er sýnt hvernig ætlast er til að þetta hlutverk verði leyst, og skýra þær sig að mestu sjálfar, en til viðbótar skal þá farið örfáum orðum um viss atriði. NorSurhlið tjarnarinnar Þær byggingar sem nú standa við norðvesturhorn tjarnarinnar eru ekki þannig úr garði gerðar að þær hæfi þeim stað, er því lagt til að byggt verði með Tjarnargötunni hótel og bíó og sunnan við þá byggingu skúr- bygging fyrir skautafólk. Templarahúsið hverfur á braut og Alþingishúsið fær útsýn yfir tjörnina og torgið að væntanlegu ráðhúsi. Hótel á þessum stað mætti vera 5—- 6 hæðir, er áætlað að hafa 160 her- bergi og helmingurinn fyrir tvo. Gistihús okkar íslendinga þurfa að vera sniðin fyrir fjöldann og ekki mjög dýr, því þeir ferðamannahópar sem leggja leið sína hingað til lands eru oftast félítið alþýðufólk sem dvel- ur aðeins skamman tíma og ekki til þessa að skoða lúxus hótel, heldur náttúrufegurð landsins. Umjerð Gert er ráð fyrir hálfhring-keyrslu fyrir framan ráðhúsið, þegar komið er að sunnan verðu frá með hliðsjón af aðliggjadi götum og til að tempra umferðahraðann. Milli Tjarnargötu og Suðurgötu komi fjölbýlishús. Tjarnargata breikkar í austur og fær gott samband við Bjarkargötu. Á tunguna nyrzt komi stytta. Suðurgata á að breikka í vestur. Undirritaður styður þær sam- þykktir að húsin sunnan Vonarstræt- is og húsin milli Laufásvegar annars vegar og Lækjargötu og Fríkirkjuveg- ar hins vegar hverfi og í staðinn komi opinberar byggingar og þá fyrst og fremst ráðhús og á þeim grundvelli myndast götur og torggerð. Á tjarnarbakkanum suður af Al- þingishúsinu er ætlast til að komi skýli fyrir fugla. Yrði sú leið valin að ekki yrði neinar byggingar sunnan Vonarstræt- is, breytir það hvorki breidd gatna, gatnaskipun eða öðrum byggingum í nágrenni, en skýli skautafólks komi þó í norðvesturhornið á tjörninni. Minnismerki verði sett upp við enda Templarasunds, á fyrirhuguðu torgi. Hljómskálagarðurinn ■ Vegir Vegir í hljómskálagarðinum eru fullmargir á svo litlu svæði. Vegur frá Bragagötu að Bjarkargötu liggur vel. Sömuleiðis vegur frá Hljómskála suð- ur að Hringbraut. Vegurinn meðfram Hringbraut liggur of nærri brautinni þar þarf að koma upphækkaður hlífð- argarður grasi gróinn. Gróður Hljómskálagarðurinn er þegar full- ræktaður laglegur blettur, þar sem hálfvilltur gróður getur fengið að njóta sín. Sú stefna er rétt; það er hin fyrsta krafa við al alræktun og allar aðgerð- ir í þeim efnum, að það sem rækta á fái að njóta sín sem bezt og af sem mestu frjálsræði. Það á að leyfa störinni að vaxa í kringum syðri tjörnina að brautinni við brúna. Urðina sitt hvoru megin við brúna mætti prýða með „Muscari botryoedes Perlehyacinth“. DÓMNEFNDARÁLIT: Tjörnin rýrð allmikið vegna vafasamra bygginga eins og bíós og hótelbyggingar, er loka fallegu útsýni að tjörninni. Byggingar meðfram Tjamargötu of mikl- ar. Staðsetning ráðhúss á þessum stað hefur áður verið sett fram í samkeppni. Opnun svæðisins að Alþingishúsinu góð, en hugsuð viðbygging vafasöm. Gerð tjarnarbakkanna athyglisverð. 12 BYCGINGARLISTIN

x

Byggingarlistin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Byggingarlistin
https://timarit.is/publication/1048

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.