Byggingarlistin - 01.01.1956, Blaðsíða 16

Byggingarlistin - 01.01.1956, Blaðsíða 16
TILLAGA „HARPA" OverSlaunaður uppdróttur Það sem gerir borgir og bæi líf- vænlega, er það umhverfi sem þeir eru byggðir í, og það sem enn kann að vera óskemmt af náttúrufegurð innan takmarka þeirra. Hinn blindi vöxtur bæjanna gngur þó oftast í þá átt að rýra þessi náttúruverðmæti, vegna þess að mann vantar alltaf yfirsýn yf- ir framþróunina, og hagsýnissjónar- mið einstaklinga ráða frá degi til dags. Það er því góðs viti þegar menn fara að staldra við og gefa þessum hlutum gaum, því af og til er nauð- synlegt að gera eins konar keisara- skurð á framkvæmdum liðinna ára, ef takast mætti að bjarga fjöregginu. Það sem gefur Reykjavík líf og feg- urð, er auk fjallahringsins, sjórinn og tjörnin. Vonandi fara menn bráðum að gefa strandlengju Seltjarnarness- ins meiri gaum en verið hefur — en það er önnur saga — og nú snúum við okkur að tjörninni og umhverfi henn- ar. Það hafa verið uppi raddir um það að miðbærinn væri að flytjast, en það er óhætt að gera ráð fyrir að þungamiðja bæjarins flyzt aldrei, því hún verður alltaf, frá mannlegu sjón- armiði, tjörnin. Þess vegna er eðli- legt að hreinsa til í kringum hana og skilja aðeins eftir þau hús sem geta verið drög að þeirri menningarmið- stöð sem bæinn vantar, en þau eru: Dómkirkjan, aðsetur Alþingis, og miðstöð menningarlífsins í landinu — háskólahverfið, og búa þeim hæfi- legt umhverfi. En ef þetta á að tak- ast, verður ekki komist hjá róttækum aðgerðum. Eðlilegt er að menningarmiðstöð bæjarins sé í tengslum við almennan hvíldar- og skenuntistað bæjarbúa. í þessari tillögu er gert ráð fyrir að garður þessi takmarkist af Suðurgötu og Melavegi að vestan allt suður að Skerjafirði, en Kirkjustræti og Aust- urvelli að norðan, og Lækjargötu og Fríkirkjuvegi framlengdum suður að sjó, að austan. Þar sem garður þessi kemur að sjó, verði gengið frá al- mennri baðströnd. Byggingar sem eðli sinu samkvæmt ættu heima í þess- ari menningarmiðstöð, mætti þá reisa í norðurhlið garðsins meðfram Mela- vegi, í áframhaldi af háskólahverfinu. Næst háskólahverfinu að norðan, í brekkunni vestan tjarnarinnar, þar sem hæst ber, hef ég ætlað ráðhúsi bæjarins stað. Allar byggingar innan þessa svæð- is aðrar en þær sem þegar eru taldar, hverfa. Þar af leiðir að tjörnin fær aftur þýðingarmesta hlutann af um- liverfi sínu, sem er hin gr^ðursæla hrekka upp frá henni að vestan. Við norðurenda tjarnarinnar þar sem Alþingi þegar á heima, eiga eins og fyrr segir öll hús að hverfa önnur en Dómkirkjan og Alþingishúsið, en þar rís að nýju bygging, þar sem hin ýmsu ráðuneyti hafa aðsetur. Meðfram Lækjargötu og Fríkirkju- vegar austan tjarnarinnar verða hygg- ingar erlendra sendiráða, einstök hús á stórum lóðum. Milli Fríkirkjuvegar og Hringbrautar, þar sem nú er Hljómskálagarðurinn, verður byggt það hótel, sem bæinn vantar. Fyrir norðurenda Menningar- garðsins eru þá aðsetur Alþingis og ríkisstjórnar, og fyrir hinum endan- um blasir við aðsetur æðsta valds þjóðarinnar, forsetasetrið. Heildarsvipur garðsins tel ég að eigi að vera eins náttúrfegur og hægt er, og i samræmi við það hef ég reynt að gefa tjörninni sína upprunalegu lögun, og til þess að tengja hana á- framhaldi garðsins, hef ég sett litla tjörn fyrir framan háskólaskeifuna, og gefur það einnig betra samband milli skeifunnar og garðsins. Bakkar tjarnanna verða grasi grónir að vatns- borði, en styrktarhleðsla undir vatns- borði, til að verja sigi. Á bökkunum á ekki að vera annar gróður en sá sem eðlilegt er að lifi við slík skilyrði. (Ekki einærar skrautjurtir í tilbúnum beðum.) í hlíðinni vestan tjarnarinn- ar á að vera sem fjölbreyttastur trjá- gróður, en umfram allt beinvaxnar bjarkir. Gangstíga hef ég ekki sýnt, utan meðfram tjörninni, þar sem ég tel rétt að afmarka ekki slíkar götur fyrr en reynsla hefur sýnt hvar þeirra er þörf. Ljósker í miðjum Fríkirkjuvegi. En sérstaka lýsingu aðra en þá sem kemur frá götuljóskerum og bygging- um, tel ég ekki æskilega meðan sól og máni eru við líði. í sambandi við þessar breytingar á umhverfi tjarnarinnar, hef ég einnig gert nokkrar breytingar á gatnakerfi miðbæjarins, eins og sjá má á upp- drættinum, og eru þær helztar að Suð- urgata er lengd norður í Grófina og Vesturgata er færð niður í Trvggva- götu. 14 BYGGINGARLISTIN

x

Byggingarlistin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Byggingarlistin
https://timarit.is/publication/1048

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.