Byggingarlistin - 01.01.1956, Qupperneq 26
Kaare Klint, Danmörk
NOKKUR ORÐ
Ejtir
SKARPHÉÐINN JÓHANNSSON, arkitekt
Alvar Aalto, Finnland
Finn Juhl, Danmörk
í ýmsum löndum hefur verið háð
hörð barátta fyrir bættum húsbúnaði
og ekki hvað sízt húsgögnum. Mark-
miðið hefur verið að fá húsgagna-
framleiðendur til þess að framleiða
góða og smekklega vöru, þar sem tek-
ið er tillit til þess tíma, sem við lifum
á, lifnaðarhátta og lífsviðhorfs. Víð-
tæk fræðslustarfsemi, bæði í ræðu og
riti, og umfangsmiklar sýningar eru
haldnar árlega og stundum oft á ári,
þar sem fólki er gefið tækifæri til þess
að kynnast því bezta, sem er á boðstól-
um af húsgögnum og öðrum hlutum,
sem heimili viðkemur. Þetta er ómet-
anlegt og hefur haft sín góðu áhrif.
1 þessu sambandi vil ég sérstaklega
minnast á nokkra húsgagnasmiði í
Kaupmannahöfn, sem árlega, nú um
30 ára skeið, hafa haldið sýningar,
sem vakið hefur athygli ekki aðeins í
þeirra eigin landi, heldur víða um
heim. Á þessum sýningum koma fram
nýjungar þessara framsæknu hús-
gagnasmiða, sem hefur haft geysileg
áhrif á bættan híbýlabúnað.
Smiðirnir í Höfn hófu í byrjun ná-
ið samstarf við þá húsgagnateiknara
og arkitekta, sem eru færir um að
teikna húsgögn, með þeim árangri, að
nú er húsgagnaframleiðsla Dana til
fyrirmyndar fyrir aðrar þjóðir. Sinni
eigin þjóð hafa þeir kennt að meta
það sem fagurt er og vel gert.-*
Einum manni öðrum fremur eiga
Danir þetta mest að þakka, og er það
Kaare Klint prófessor. Hann var sér-
stæður hæfileikamaður, öruggur,
strangur, óvæginn við sjálfan sig og
aðra. Snillingur forms og efnis, sem
aldrei gleymdi hagnýtri þýðingu hlut-
arins.
Hér er verkefni fyrir framsækna ís-
lenzka húsgagnasmiði. Þeir ættu að
Robin Day, England
Charles Eams, U.S.A.
Gunnar Eklöf, SvíþjóS