Byggingarlistin - 01.01.1956, Síða 31
skjólveggur. Á vegg þennan, sem
klæddur væri með flísum úr íslenzkum
bergtegundum, mætti t. d. höggva
myndir úr sögu Reykjavíkur.
Á torgi því, er myndast við norð-
austurenda Tjarnarinnar, austan ráð-
hússins, er gert ráð fyrir að stytta Ing-
ólfs Arnarsonar komi.
Við Tjarnargötu, næst Tjörninni,
komi gangstígur, en milli hans og ak-
brautar komi flísalagðir reitir með
kjarrgirðingum á milli. Á reitum þess-
um sé komið fyrir bekkjum og „skulp-
tur“.
Tjarnarbrúin:
í þessari tillögu er gert ráð fyrir að
rífa Tjarnarbrúna og uppfyllingarnar
báðum megin brúarinnar, en byggja
í hennar stað mjórri brú, sem stæði á
stólpum og væri aðeins ætluð gang-
andi fólki. Núverandi brú skiptir
Tjörninni í tvennt, en með þessari
breytingu vinnst það á, að Tjarnar-
svæðið fengi léttari blæ og betri heild-
arsvip.
Það er augljóst, að framkvæmd
framtíðarskipulags Tjarnarsvæðisins
tekur langan tíma og því ástæðulaust
að láta núverandi mannvirki á svæð-
inu, þótt þau hafi talsvert fjárhagslegt
gildi, hafa nokkur áhrif á endanlegt
skipulag þess. Það skiptir mestu máli,
að engin ný hús verði byggð á svæð-
inu hér eftir, nema í samræmi við það
skipulag, sem því verður endanlega
ákveðið, og því nauðsynlegt, að það
sé gert af framsýni og stórhug.
Fegrun og útlit Tjamarinnar
TILLAGA „Vje"
Framli. af bls. 8.
hækkað sem nemur „ráðherrabrekk-
unni“, en gróðurreiturinn haldi á-
fram meðfram Tjörninni, en á vestur-
bakkanum séu einnig grasreitir með
birkilundum allt norður að umferðar-
braut, en háu húsin eru opin neðst —
á súlum — og svigrúm því 35—50 m
á breidd.
Milli hinna háu bygginga sé byggt
í stöllum upp eftir brekkunni, með
bílageymslu neðst — ekið inn að
A. EINARSSON & FUNK Tryggvagötu 28 . Sími 3982 . Símnefni: Omega
Miðstöðvartæki . Vatnsleiðslutæki . Dælur . Hreinlætistæki Byggingarvörur . Eldfæri . Linoleum
Munið
IVORA M A G A S IIV Pósthússtrœti 9 . Reykjavík
NÝJA BLIKKSMIÐJAN
Höfðatúni 6 . Reykjavík . Símar 4672 og 4804
□
Hraðfrystitæki . Hjólbörur með gúmmíhjóli
Lofthitunar- og loftræstingarlagnir með tilheyrandi
Alúminíumveggpípur ó hús . Alls konar blikksmíði
□
Stærsta blikksmiðja landsins
SÖGIN H.F.
Höfðatúni 2 . Reykjavík . Símar 5652 og 6486
□
Vér tökum aff oss smíði flestra tréhluta liúsa og höfum góff skilyrffi til þess
aff gera góða framleiðslu viff sanngjömu verði.
Astæðumar til þessa eru, aff vér höfum:
Góffa iðnaðarmenn
Góðan húsakost
Góðar vélar
Góffa timhurþurrkun
Góð hráefni
Að jafnaði höfum vér fyrirliggjandi
Hurðarstærðir Opstærðir miðaff við karmtré úr
Innihurðir 2,02X0,80 2,10X0,87 1%"
2,02X0,70 2,10x0,77 —
2,02X0,60 2,10x0,67 —
Útihurðir 2,02X0,80 2,15x0,90 2"
2,02X0,90 2,15x1,00 —
□
Ennfremur höfum vér fyrirliggjandi eldhússkápa viff flestra hæfi.
Gjöriff svo vel og reyniff viðskiptin.
BYGGINGARLISTIN
29