Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Page 11

Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Page 11
ÞÆTTIR 5 irnar utan af sér, í þeirri vissu, að þeir mundu fá þær margfaldlega endurgoldnar. Nú er hins vegar lítið að treysta höfðingsskap valdamanna, svo að menn hafa gripið til þess ráðs að láta gjöfum sínum fylgja skjal- fest skilyrði um meðferð gjafarinnar, heiður eða embætti, sem gefandi skuli fá að laun- um eða önnur fríðindi honum til handa. Minnir slíkt óneitanlega á frumstæð þjóðfé- lög, þar sem öll verzlun átti sér stað undir því fagra yfirskini, að menn væru að skipt- ast á gjöfum. Kristilegra áhrifa gætir hins vegar í því, hve skylt menn telja sér að taka hverri gjöf með þökkum, hversu hvimleið sem hún kann að vera. Þekkja allir þá kvöl að þurfa að flíka óþolandi hlutum af tillitssemi við hugulsaman vin, sem aldrei má komast að hinu sanna. Það er ekki furða þótt kennt hafi verið, að sælla sé að gefa en þiggja. Ennþá verra er þetta þó viðureignar, þegar opinberar stofnanir eiga í hlut, þar sem slík viðkvæmni gagnvart tilfinningum manna leggur gefendunum allt vald í hendur. Mörgu má til leiðar koma með gjöfum, sem annaxs yrði seint samþykkt. Einn snjall maður valdi bústað þjóðhöfðingja vors með því að gefa ríkinu Bessastaði. Annar ákvað, að hluti þjóðminjasafnsins skyldi helgaður vax- myndum. Og seint verða taldar allar þær smekklausu gjafir, sem lýta opinberar byggingar hér á landi. Allt útlit er fyrir, að átök milli fylgismanna ólíkra viðhorfa í myndlist fari einkum fram á vettvangi gjafa í framtíðinni, þar sem hver keppir við annan um að gefa listaverk til uppstillingar á áber- andi stöðum. Það verður að stöðva þetta gjafaflóð með einhverjum ráðum eða finna leið til að vinza úr það, sem nýtilegt er. Til dæmis væri hægt að stofna gjafavarnanefnd til að neita gjöfum, sem ríkinu berast, en slíkt hlutverk virðist listaverkanefnd Reykjavíkur ætlað, og tekst henni vonandi að forða bæjarbú- um frá öðrum Skúla fógeta. En þegar á allt er litið, er víst, að ekkert ávinnst nema með forherðingu hjartans og fullu miskunnar- leysi gagnvart þeim, sem leggja meira á herðar þiggjanda en gjafir þeirra eru verð- ar. Er þá gott að minnast orða Egils, er hon- um var fenginn skjöldur sá, sem Einar skála- glam hafði gefið honum: „Gefi hann allra manna armastr! Ætlar hann, at ek skyla þar vaka yfir ok yrkja um skjöld hans? Nú taki hest minn; skal ek ríða eftir honum ok drepa hann." Varla var von til þess, að Guðlaugur brygðist svo hermannlega við, en þá hefði hann líka haft minni raun af gjöfum þeim, sem Þjóðleikhúsið hefur fengið. Ráðhús Reykjavíkur Varla hefur önnur ákvörðun vakið meiri og almennari athygli en staðsetning ráðhúss Reykjavíkur fyrir norðurenda Tjarnarinnar. Hitt sætti þó ekki minni tíðindum, að hún var samþykkt með atkvæðum allra fulltrúa í bæjarstjórninni. Enda þótt þessi ákvörðun væri tekin, að því er virðist ágreiningslaust í bæjarstjóm Reykjavíkur, má þó engan veginn draga af því þá ályktun að bæjarbúar séu almennt á éinu máli um staðinn, en vitað er miklu fremur að staðsetning ráðhússins mun verða mjög umdeild. Nýtt Helgafell sneri sér til borgarstjórans, Gunnars Thoroddsen, með tilmælum um að hann gerði í stuttu máli grein fyrir afstöðu sinni til þessarar þýðingarmiklu ákvörðunar og þó fyrst og fremst með þá ósk, að hann segði lesendum tímaritsins frá því hvernig hann hugsaði sér bygginguna. Það mun gleðja flesta, hversu borgarstjóranum er rík í huga hin menningarlega hlið stofnunarinn- ar, og raunar allt það, sem snýr að borgur- unum í þessu mikla máli. Eins og skiljanlegt er, gerir borgarstjórinn engar tillögur um gerð hússins og svip, nema að því leyti, að hann telur að hafa beri í huga þann einstæða atburð í veraldarsög- unni, er hinn fyrsti landnámsmaður kastaði frá borði öndvegissúlunum með þeirri ákvörð- un, að taka sér bólfestu þar sem þær ræki

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.