Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Blaðsíða 51

Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Blaðsíða 51
TÓNLIST 45 söngur kominn á það stig hjá okkur, að hann jafnast fyllilega á við það bezta, sem til er á því sviði hjá nágrannaþjóðunum. Að þessu þarf ekki fleiri orðum að eyða. Þetta er við- urkennt um öll Norðurlönd. Söngstjórar þeir, sem að framan eru nefndir, höfðu og jafnframt annað kastið á sínum snærum blandaða kóra. Söngur þeirra var stundum mjög góður, sbr. hinn mikla söngflokk Sigfúsar Einarssonar, sem talinn var einhver bezti kórinn á norrænu söng- móti í Kaupmannahöfn 1929. Eftir að Páll Isólfsson var kominn heim frá Leipzig, stjóm- aði hann nokkrum sinnum blönduðum kór- um, sem fluttu kirkjulegar tónsmíðar eftir gömlu meistarana. Annars kvað mest að honum sem orgelsnillingi. Síðar tók hann forystuna í tónlistarlífi höfuðborgarinnar og hefir haft hana síðan. Þegar þrír tugir voru af öldinni, höfðum við eignazt nokkra góða listamenn; söngv- ara, píanóleikara, fiðluleikara og orgel- snilling, sem var í fremstu röð á heimsmæli- kvarða. Þessir menn voru þá famir að láta til sín taka í tónlistarlífinu. Allir áttu þeir það sameiginlegt, að þeir höfðu lært listina í útlöndum. Hljómsveit Reykjavíkur var stofnuð 1925 og stjórnaði Sigfús Einarsson henni fyrst og síðar Páll ísólfsson á árunum til 1930. Orðið ,,hljómsveit" er teygjanlegt hugtak. Og það er reginmunur á fullkominni sinfóniskri hljómsveit og þeirri, sem hér var að verki. Hljómsveit Reykjavíkur var á þessum árum í rauninni ekki annað en ,,salon-hljóm- sveit", því að í hana vantaði mörg hljóð- færi, sem í sinfóniskri hljómsveit eiga að vera. Hún gat því ekki flutt hinar fögru tón- smíðar í þeim búningi, sem tónskáldin höfðu klætt þær. Árið 1930 var hún enn ekki kom- in lengra á veg en það, að hún var ekki einfær um að annast undirleikinn á Hátíða- kantötu Páls Isólfssonar á Þingvöllum og varð þá að fá hljóðfæraleikara til aðstoðar frá Danmörku. Stofnun hennar var þó engu að síður merkisviðburður, sem markar spor í sögunni. Forráðamenn hennar vissu þá mæta vel, að hún var ekki annað en vísir að fullkominni sinfóniskri hljómsveit og hlaut að verða það um langan tíma. Hér var við erfiðleika að etja. Hljóðfæraleikar- amir urðu á þessum árum yfirleitt að leita til útlanda til að ná fullkomnun í listinni. Það var ekki líklegt, að margir vildu leggja í þann kostnað og eyða tíma í það, þegar ekki var annað í aðra hönd en ánægjan að leíka í hljómsveitinni endurgjaldslaust, eins og hljómsveitarmennimir urðu að gera til skamms tíma. Hér var úr vöndu að ráða. Menn sáu þá fram á nauðsyn þess, að stofnaður yrði tónlistarskóli í Reykjavík, sem veitt gæti kennslu á hljóðfæri, sem nauðsynleg eru í hljómsveit. Námið í tón- listarskólanum mætti jafnvel hafa í hjáverk- um með öðrum störfum eða námi í öðrum skólum. Þeir hlutu og að verða stöðugt fleiri, sem gerðu tónlist að ævistarfi, því að at- vinnuskilyrði fyrir hljóðfæraleikara fóru batnandi eftir því sem bærinn stækkaði, og hann var í örum vexti. Tónlistarskólinn var síðan stofnaður 1930. Hér hafa stuttlega verið raktir aðalþræð- imir í þróun tónlistar fram til ársins 1931. Kórsöngur var kominn á hátt stig, nokkrir söngvarar og hljóðfæraleikarar höfðu kom- izt langt í sinni grein, en hljómsveitin var þá ekki annað en vísir. Fram að þessu höfðu Islendingar ekki einu sinni verið einfærir um að halda uppi hljóðfæraleik á veitingastöð- um borgarinnar. Það varð að fá útlendinga til þess. Ég man, að Sigfús Einarsson hafði eitt sinn á þessum ámm orð á því, að skil- yrði fyrir fullkomna sinfóniska hljómsveit yrðu varla til, fyrr en Reykjavík hefði tvö- faldað íbúatölu sína, en fráleitt, að það yrði á þessari öld. Hann óraði ekki fyrir hinum mikla vexti bæjarins eftir 1940. Nú er íbúa- talan meira en tvöfölduð síðan og draumur- inn um sinfóniska hljómsveit orðinn að veru- leika. Það var og einkenni á þessu tímabili, að þjóðin var sérstaklega söngþyrst, meira að segja hungmð í músík, en ekki að sama skapi gagnrýnin. Hún gleypti við öllu, sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.