Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Síða 22
16
NÝTT HELGAFELL
eða fleiri, eiga að hafa aðsetur í ráðhúsinu,
og öll sú starfsemi, sem er þar í nánustum
tengslum við.
Bæjarstjórnin er hið fólkkjörna stjórnar-
ráð Reykjavíkurborgar. -Henni þarf að húa
veglegan bæjarstjórnarsal, bókasafn og
starfsherbergi bæjarfulltrúa. Og fólkið
sjáift þarf að eiga greiðan gang að því að
hlýða á mál fulltrúa sinna á rúnrgóðu og
vistlegu áheyrendasvæði.
Bæjarráð var stofnað 1932 og tók ‘við
störfum margra nefnda. Víða erlendis fer
mikið af bæjarmálastörfum fram í nefnd-
um. f ráðhúsi þarf að vera bæjarráðssalur
og nokkur nefndaherbergi.
Skrifstofur borgarstjóra, ein eða flein,
eiga heima í ráðhúsinu, svo og skrifstofur
borgarritara, ráðsmanna og annarra þeirra
forstjóra og fulltrúa, er standa í nánustu
sambandi við æðstu stjórn borgarinnar.
Æðsta stjórn bœjarins á að hafa aðsetur
í ráðhúsi, og þær skrifstofur, sem standa í
beinum og nánum tengslum við hana.
Ráðhús er einn sá staður, sem gestir líta
hvru auga, innlendir senr útlendir. Um
leið og ráðhúsið er samastaður hinnar æðstu
stjórnar borgarinnar og menningarmiðstöð,
gegnir það landkynningarhlutvetki og verð-
ur að sjá fyrir aðbúnaði til viðtöku góðra
gesta.
Ráðhúsið á að vera menmngarmiðstöð.
Meðal einkunnarorða eiga að vera: List og
saga. Ráðhúsið þarf að sýna sögu Reykja-
víkur, stærstu viðburði, mestu persónur,
þróun atvinnulífs og menningar, líðan fólks
og afkomu á ýmsum tímum, íbúafjölgun,
bæjarlandið og stækkun þess o. s. frv. Til
þessa á að nota beinar frásagnir á veggjum,
talnatöflur og línurit, en ekki sízt mynd-
listina. Hana þarf að leiða til öndvegis í
ráðhúsi Reykjavíkur ínnan húss og utan.
Listræn skreytmg á að prýða ráðhús vort
eins og títt er um ráðhús annarra þjóða.
Þar á að vera miðstöð fjölbreyttrar mynd-
listar. Málverk og höggmyndir munu
túlka þar og sýna landnám Ingólfs og Hall-
veigar, ínnréttingar Skúla fógeta, Jón Sig-
urðsson á þjóðfundinum. Hverskonar þjóð-
legur myndiðnaður þarf að vera þar, út-
skurður, myndvefnaður, útsaumur, hann-
yrðir íslenzkra kvenna í þúsund ár. I ráð-
húsi á að sýna íslenzku þjóðerm og þjóð-
levum verðmætum fullan sóma.
O
Ráðhúsið snertir ekki Reykjavík eina.
Upprum þjóðarinnar og upphaf Reykjavík-
ur fara saman. Ingólfur og Hallveig voru
fyrstu landnámsmenn íslands og fyrstu
byggjendur Reykjavíkur. Ein og söm eru
þau örlög, sem í ellefu aldir gengu yfir.
Samtvinnaðir eru hagsmunir Reykjavíkur
og annarra Islands byggða um manndóm
og menningu og örlög. Vilji menn túlka
sögu og menmngu Reykjavíkur, snertir sú
túlkun fyrr en varir allt Island. Þess vegna
verður ráðhús Reykjavíkur þjóðarhús,
menmngarsetur fyrir allt ísland.
Stærð og gerð
Skáli mikill verður inn af aðaldyrum og
getur hann um leið venð ráðhússalur. Þar
má hafa meiri háttar móttökur, alþjóðaráð-
stefnur, fundi Norðurlandaráðs, auk þess
sem ráðhússkáhnn yrði meginstöð mynd-
listarinnar.
Þekking er dyggð, sagði Sókrates forð-
um. Væri vel, ef andi hans, andi vizku og
fnðar, róði ríkjum í dag. íslenzkur almenn-
ingur er jafnan frjór jarðvegur fyrir fróð-
leik og þekkingu. I skála ráðhússins eða
öðrum vistarverum þess á að efna að stað-