Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Blaðsíða 37
STEINN STEINARR:
HJjLPRÆÐISHERINN BIÐWR FYRIR
ÞEIM SYNDUGA MANNl
JÓNl SIGURÐSSYNI FYRRVERANDI KADETT
KÓR
Jón Sigurðsson, komdu til Herrans heim!
Nú er hátíð í nánd eins og forðum.
Hvort finnurðu ei lyktina af forrétti þeim,
sem Frelsarinn hefur á borðum?
Jón Sigurðsson, komdu til Herrans heim!
Hallelúja!
SÓLÓ
Vor faðir og Guð! Þetta fávísa barn
felum vér miskunnsemd þinni.
Hann er fátækur maður, sem fæti sparn
við frelsun og hamingju sinni.
Flæktur í Satans svikagarn
hann situr í myrkrinu inni.
Hann drakk, það er satt, og hann drekkur víst enn,
já, Drottinn vor, hvílíkur þorsti!
En hans kaldsára líf mætti kallast í senn
ein klækileg fangbrögð og rosti.
Og því getur verið, að þess háttar menn
myndu þreytast að öðrum kosti.
Hann er geystur í ástum og gimist það ráð,
sem greiðir oss leið til hins verra.
Vér vitum, að synd hans um lög og um láð
ei lætur þann vitnisburð þverra.
En ef til vill gæturðu af gæzku og náð
gleymt þessu sjálfur, vor Herra!
Hann er vegalaus sál, hann er vanmetakind
veðdregin lastanna sjóði.