Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Qupperneq 8
fimmtudagur 30. ágúst 20078 Fréttir DV
BAR•RESTAURANT•CAFÉ
Hafnargata 19 - Keflavik
www.rain.is - rain@rain.is
Tel: 421 4601
Glæsilegur matseðill öll kvöld,matreiðslumaður Daníel Sigurgeirsson
Forsala er hafin í síma 421 4601
á Ránni í Reykjanesbæ
29. ágúst - 1. september
Föstudagskvöld :
kl. 23:30
Sögur af Suðurnesjum
Dansleikur með
Vignir Bergmann
Rúnars Júlíussonar
kl. 22:00
hljómsveit
kl. 15:00 - 17:00
kl. 18:00
Kaffihlaðborð,
Hátíðarhlaðborðið Ljósin í berginu.
Örn Árnason og Jónas Þórir
Laugardagskvöld:
Skemmtidagskrá
Dansleikur með
kl. 22:00
kl. 23:30
hljómsveitinni
Vítamín
kl. 21:00
Fimmtudagskvöld:
Tónleikar
Blúsmenn
Andreu Gylfadóttur
Tíu stærstu útgerðarfyrirtæki á Íslandi ráða yfir meira en helmingi kvótans. HB Grandi er langstærsta
útgerðarfyrirtæki landsins með um 10 prósenta hlutdeild. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda
flokksins, segir þróunina alla vera á sama veg. Fáir en sterkir aðilar eignast kvótann. Framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar telur líklegt að núverandi reglum um 12 prósenta hámarkshlutdeild verði breytt.
ÞRJÚ FÉLÖG RÁÐA YFIR
FJÓRÐUNGI KVÓTANS
Tíu stærstu útgerðarfyrirtæki á Íslandi
ráða yfir meira en helmingi kvótans,
eða um 51,22 prósentum af úthlutuðu
aflamarki á nýju fiskveiðiári sem hefst
um helgina. Fimmtíu stærstu útgerð-
arfyrirtæki landsins ráða svo samtals
yfir rúmlega 82 prósentum af úthlut-
uðu aflamarki.
HB Grandi er líkt og síðustu ár
langstærsta útgerðarfyrirtæki lands-
ins, með rúma tíu prósenta hlutdeild
aflamarks eða um 30.306 þorskígildis-
tonn. Samherji er næststærsta útgerð-
arfyrirtæki landsins með 7,14 prósenta
hlut úthlutaðs aflamarks. Brim er
þriðja stærsta útgerðarfyrirtæki lands-
ins með 7 prósenta hlutdeild. Saman-
lagt eiga þessi fyrirtæki tæplega fjórð-
ung kvótans á nýju fiskveiðiári.
Önnur stærstu útgerðarfyrirtæki
landsins eru Þorbjörn hf með 5,13 pró-
senta hlutdeild, FISK-Seafood hf með
4,49 prósenta hlutdeild og Vísir hf. í
Grindavík, með 4,28 prósenta hlut-
deild. Þá eru Vinnslustöðin, Rammi,
Hraðfrystihúsið-Gunnvör og Skinney-
Þinganes einnig í hópi tíu stærstu út-
gerðarfyrirtækja landsins.
Reykjavíkurhöfn langstærst
Reykjavíkurhöfn er stærsta heima-
höfnin á næsta fiskveiðiári með sam-
tals um 15,21 prósenta hlutdeild af
úthlutuðu aflamarki. Vestmannaeyja-
höfn er næststærst, með 12,04 pró-
senta hlutdeild og Grindavíkurhöfn
er þriðja stærsta höfnin. Þessar þrjár
hafnir eru langstærstu hafnir lands-
ins með rúmlega 38 prósenta hlut-
deild. Hornafjarðarhöfn og Akureyr-
arhöfn eru fjórðu og fimmtu stærstu
hafnir landsins, báðar með ríflega
fjögurra prósenta hlutdeild. Þar á eftir
koma hafnir á Akranesi, Dalvík, Skaga-
strönd, Garði og Grenivík. Tíu stærstu
hafnir landsins hafa 62,65 prósenta
hlutdeild, en mikil breyting hefur orð-
ið þar á síðustu ár.
Fáir útvaldir hafa
yfirburðastöðu
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, segir
þróunina hafa alla verið á sama veg
undanfarin ár. „Það er alltaf meiri
samþjöppun og kvótinn færist á færri
hendur síðan frjálst framsal á afla-
heimildum var leyft, þessi þróun hefur
verið í mörg ár og þó hún sé ekki sér-
staklega hröð, er hún mjög markviss.
Við sjáum það að um það bil tuttugu
aðilar hafa algjöra yfirburðastöðu í
sambandi við aflaheimildirnar.“
Guðjón telur ekkert í kortunum
benda til annars en að samþjöppun-
in muni halda áfram. Núverandi ríkis-
stjórn mun ekki breyta ríkjandi kvóta-
kerfi. „Við getum sett þetta í samhengi
við bankana. Þar eru fáir en mjög stór-
ir menn sem stjórna miklu. Það sama á
við um sjávarútveginn, því verðmynd-
un í honum stjórnast af nokkrum stór-
um stjórnendum. “
Hann telur að hlutföllin muni
breytast enn meira á næstunni, því
margir af hinum minni útgerðar-
mönnum hafi selt að undanförnu og
þær sölur skráist ekki fyrr en á næsta
fiskveiðiári.
Fyrirtækin stækka áfram
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar í Vestmannaeyjum, telur líklegt
að þessi þróun á eignarhaldi kvótans
haldi áfram á næstu árum. Hámark
í lögum um hlutdeild hvers útgerð-
arfyrirtækis er 12 prósent af heildar-
þorskígildi. HB Grandi er því kominn
langa leið með að stækka eins
mikið og fyrirtækið getur
gert samkvæmt núgild-
andi lögum.
Sigurgeir telur að nið-
urskurður á þorskkvóta
muni hraða þessari þró-
un enn frekar. Hann tel-
ur ekki að þróunin muni
snúast við þegar þorksveið-
ar komast aftur í fyrra horf.
„Ef þrjú fyrirtæki samein-
ast í eitt, vegna nið-
urskurðarins, tel
ég ólíklegt að þau
myndu aftur skipt-
ast þegar kvótinn
verður hækkaður
aftur,“ segir hann
og heldur áfram: „Það segir sig sjálft að
ef einn daginn hafa þrjú skip samtals
3000 tonna kvóta, en síðan er kvótinn
skertur niður í tvö þúsund tonn, blas-
ir við að ekkert vit er í að gera út þrjú
skip. Hitt er líka að skip og fiskvinnsla
eru alltaf að verða stærri og afkasta-
meiri sem þýðir einfaldlega færri ein-
ingar. Ef eitt skip gæti veitt tvö þúsund
tonn í staðinn fyrir tvö skip sem veiða
þúsund tonn hvort, væri það góð hag-
ræðing,“ segir hann.
Aðspurður hvernig hann meti þró-
unina í framtíðinni segir Sigurgeir
Brynjar: „Leiðin er sú að þetta mun
áfram færast til sterkra fyrirtækja
og það er mögulegt að í fram-
tíðinni verði stóru útgerðarfyr-
irtækin komin með hámarks
tólf prósenta hlutdeild líkt og
HB Grandi hefur nú nálgast.“
En munu reglurnar þá breyt-
ast? „Mér finnst mjög líklegt að
þessi fyrirtæki muni vilja hækka
kvótann.“
TÍU STÆRSTU ÚTGERÐARFÉLÖG
ÍSLANDS ÁRIÐ 2007
HB Grandi hf. – 10,06%
Samherji hf. – 7,14%
Brim hf. – 7,00%
Þorbjörn hf. – 5,13%
FISK-Seafood hf. –
Vísir hf. – 4,28%
Vinnslustöðin hf. – 3,70%
Rammi hf. – 3,52%
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. – 3,17%
Skinney-Þinganes hf.
– 2,73%
Aðrir
48,78%
Guðjón Arnar Kristjánsson „Við
getum sett þetta í samhengi við
bankana. Þar eru fáir en mjög stórir
menn sem stjórna miklu. Það sama á við
um sjávarútveginn, því verðmyndun í
honum stjórnast af nokkrum stórum
stjórnendum.“
Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson
Niður-
skurður á
þorsk-
kvóta
flýtir
þróun-
inni.
VAlGeIR ÖRn RAGnARSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Sjávarútvegur HB grandi er
langstærsta útgerðarfyrirtæki
landsins. reykjavíkurhöfn er
stærsta höfnin. Þrjú fyrirtæki ráða
fjórðungi kvótans.
BAR•RESTAURANT•CAFÉ
Hafnargata 19 - Keflavik
www.rain.is - rain@rain.is
Tel: 421 4601
Glæsilegur matseðill öll kvöld,matreiðslumaður Daníel Sigurgeirsson
Forsala er hafin í síma 421 4601
á Ránni í Reykjanesbæ
29. ágúst - 1. september
Föstudagskvöld :
kl. 23:30
Sögur af Suðurnesjum
Dansleikur með
Vignir Bergmann
Rúnars Júlíussonar
kl. 22:00
hljómsveit
kl. 15:00 - 17:00
kl. 18:00
Kaffihlaðborð,
Hátíðarhlaðborðið Ljósin í berginu.
Örn Árnason og Jónas Þórir
Laugardagskvöld:
Skemmtidagskrá
Dansleikur með
kl. 22:00
kl. 23:30
hljómsveitinni
Vítamín
kl. 21:00
Fimmtudagskvöld:
Tónleikar
Blúsmenn
Andreu Gylfadóttur