Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Síða 11
DV Fréttir fimmtudagur 30. ágúst 2007 11
Forsætisráðherra Bretlands
Gordon Brown afhjúpaði styttu
af Nelson Mandela, Nóbelsverð-
launahafa og fyrrverandi forseta
Suður-Afríku, í gær. Styttan er
á torginu við þinghúsið í Lund-
únum. Meðal þeirra sem heiðr-
uðu Mandela við þetta tækifæri
voru Ken Livingston, borgarstjóri
Lundúna, og Richard Attenbor-
ough kvikmyndagerðarmaður.
„Það er okkur heiður að vera með
ykkur við afhjúpun þessarar styttu
í dag. Þótt þetta sé stytta af ein-
um manni, ætti hún að vera tákn
um alla þá sem barist hafa gegn
kúgun, sérstaklega í mínu heima-
landi,“ sagði Mandela í ávarpi til
fólksins sem safnast hafði saman
við athöfnina.
Líkt við Churchill og Lincoln
Forsætisráðherra Bretlands líkti
afrekum Mandelas við afrek Abra-
hams Lincoln, fyrrverandi Banda-
ríkjaforseta, og Winstons Churc-
hill, fyrrverandi forsætisráðherra
Bretlands. Sagði Brown að barátta
Mandelas gegn aðskilnaðarstefnu
og fátækt drægi dám af aðgerðum
Lincolns gegn þrælahaldi og stríði
Churchills gegn fasisma. Hann sagði
að „styttan yrði viti vonar sem sendi
þau skilaboð til allra sem lifðu við
óréttlæti hvar sem væri, að þjáning-
ar þeirra myndu ekki vara að eilífu,
yrðu aldrei til einskis, og á þeim yrði
sigrast“. Nelson Mandela er áttatíu
og níu ára gamall og á tímum að-
skilnaðarstefnunnar í Suður-Afríku
sat hann í fangelsi í tuttugu og sjö ár.
Nelson Mandela líkt við Lincoln og Churchill:
Hæstiréttur í Chile hefur kveð-
ið upp sinn fyrsta lífstíðardóm yfir
háttsettum embættismanni frá tím-
um einræðisherrans Augustos Pin-
ochet. Hershöfðinginn Hugo Salas
Wendzel var sakfelldur og dæmdur,
árið 2005, fyrir sinn þátt í morðum á
tólf andstæðingum einræðisherrans,
en hann var við völd frá 1973–1990.
Dómarar í málinu vísuðu frá áfrýjun
dómsins frá 2005. Salas var yfirmað-
ur leyniþjónustu sem stóð, árið 1987,
að baki drápum á mönnum sem
grunaðir voru um aðild að samtök-
um sem andsnúin voru stjórn lands-
ins. Samtökin voru kennd við Manu-
el Rodriques og voru staðráðin í að
berjast gegn stjórn Pinochet. Í sept-
ember 1986 gerðu samtökin mis-
heppnaða tilraun til að ráða hann af
dögum.
Skotnir með köldu blóði
Stjórnvöld héldu því fram á þeim
tíma að uppreisnarmennirnir hefðu
látið lífið í bardaga við öryggissveitir.
Þegar málið var rannsakað síðar kom
í ljós að þeir höfðu verið skotnir með
köldu blóði eftir að þeir voru hand-
teknir.
Augusto Pinochet steypti marx-
istastjórn Salvadors Allende árið
1973 og var talið til hróss að hafa lagt
grunninn að efnahags- og verslun-
arlegri uppbyggingu landsins. En í
stjórnartíð hans voru þrjú þúsund
andstæðingar hans teknir af lífi og
þúsundir að auki sættu pyntingum
og ofsóknum. Pinochet lést af völd-
um hjartabilunar í desember á síð-
asta ári, níutíu og eins árs að aldri.
Hann kom aldrei fyrir dóm.
Sýndarlögregla
Í tilraun til að koma í veg fyrir
ólöglegt athæfi á netinu hafa kín-
versk stjórnvöld ákveðið að kveðja
til starfa tvo „sýndarlögreglu-
þjóna“ til að fylgjast með netnotk-
un landsmanna. Stjórnvöld þar í
landi fylgjast með allri netnotkun
og öllum fjölmiðlum og netlögg-
urnar, ein kona og einn karl, koma
til með að birtast á tölvuskjá net-
notenda á þrjátíu mínútna fresti
„til að minna þá internet-eftirlit“.
„Sýndarlögregluþjónarnir “ verða
fótgangandi, á mótorhjólum eða í
bifreiðum.
Vinsælir í Bandaríkjunum
Um fjörutíu og fimm íslenskir fjár-
hundar voru samankomnir í Beav-
er Creek í Bandaríkjunum. Til-
efnið var tíu ára afmæli Samtaka
íslenska fjárhundsins í Banda-
ríkjunum. Í Bandaríkjunum eru
einungis um 600 til 700 íslenskir
fjárhundar. Forseti samtakanna,
Knox Rhine, segir hundana mjög
góðan félagsskap. „Þeir njóta sín
vel meðal fólks og kjósa félagsskap
manna fram yfir samneyti við aðra
hunda,“ sagði Rhine. Að hans sögn
eru þeir notaðir sem félagsskapur
fyrir einhverf börn og á barna-
heimilum.
Fimmtán ára grunaður
Fimmtán ára drengur er í haldi
bresku lögreglunnar vegna morðs-
ins á hinum ellefu ára gamla Rhys
Jones. Rhys Jones lést af völdum
skotárásar fyrir viku í Liverpool á
Englandi. Við rannsókn málsins
hefur lögreglan biðlað til almenn-
ings um upplýsingar og allt að tíu
einstaklingar hafa verið yfirheyrð-
ir. Þeim hefur öllum verið sleppt,
sumum án ákæru, öðrum gegn
tryggingu. Lögregluyfirvöld hafa
staðfest að drengurinn, sem nú er
í haldi, sé sterklega grunaður um
morðið.
vörðurinn telur hundrað tuttugu
og fimm þúsund menn og engin
áhöld eru um ögrunina sem felst
í þessum áformum.
Brottflutningur ekki líklegur
Í ræðu sinni sór Bush að fram-
fylgja annars umdeildri hernað-
arstefnu sinni í Írak og fullyrti að
þar væri merkjanlegur árangur
með tilliti til stjórnmála og örygg-
is. „Okkar áætlun er: Á hverjum
degi vinnum við að vörnum fyr-
ir bandarísku þjóðina. Við mun-
um berjast við þá (Íraka) þar svo
við þurfum ekki að berjast við þá
í Bandaríkjum Norður-Ameríku,“
sagði Bush. Fjöldi bandarískra
hermanna í Írak er um hundrað
sextíu og fimm þúsund og hvergi
í orðum Bush er að finna vísbend-
ingar sem benda til þess að brott-
flutningur sé áformaður.
Ræða George W. Bush í Nevada
er önnur tilraun hans á skömm-
um tíma til að snúa almenningi
til stuðnings við stríðsreksturinn í
Írak. Í ræðu í síðustu viku skírskot-
aði hann til stríðsins í Víetnam og
sagði að lífi milljóna saklausra
borgara yrði hætt ef Bandaríkin
drægju her sinn frá Írak.
Nelson Mandela heiðraður
Ekki eru öll kurl komin til grafar eftir ógnarstjórn Pinochets:
Lífstíðardómur í Chile
Ögranir á Báða
Bóga miLLi ÍranS
og BandarÍkjanna
Bush og Ahmadinejad sitja ekki á sátts höfði.
Byltingar-
vörðurinn í
Íran
Bandaríkin
íhuga að flokka
hann sem
hryðjuverka-
samtök.
Kjarnorkuver smíði kjarnorkuvopna
ekki á dagskrá, segir forseti Írans.
Fórnarlömb
stjórnar Pinochet
Þrjú þúsund manns
voru drepin í hans
stjórnartíð.
Styttan afhjúpuð „Þú verður á meðal
okkar um ókomna tíð,“ sagði
forsætisráðherra Bretlands.