Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Side 14
NÝR HPI SAVAGE X 4,6
Öflugasta útgáfan til þessa. Væntanlegur
aftur, tekið er við fyrirfram pöntunum.
Nethyl 2. Sími 587-0600. www.tomstundahusid.is
fimmtudagur 30. ágúst 200714 Hjólið mitt DV
Hvernig hjól átt þú?
„Ég á Giant Chinook-kvenreiðhjól
sem ég keypti mér hjá Borgarhjólum
á Hverfisgötu fyrir um það bil þrem-
ur árum. Þetta er sterklegt, klassískt
reiðhjól en bóndi minn keypti sér
karlútgáfuna á sama tíma. Hjólið mitt
er ríkulega búið aukahlutum því ég er
bæði með barnastól og körfu á því.“
Notar þú hjólið mikið?
„Já, ég nota það á hverjum degi.
Þetta er mitt samgöngutæki. Ég hef
hjólað mikið frá því ég var 14 ára
gömul en þá hjólaði ég gjarnan frá
Árbænum og niður í miðbæ, án þess
að blása úr nös.“
Hvenær notar þú það helst?
„Ég hjóla alltaf í vinnuna og með
börnin á leikskólann, ég fer í búðir og
fer í raun flestra minna ferða á hjól-
inu. Ég bý í ofanverðum Þingholtun-
um en vinn niðri við Tjörn svo það
er stutt að hjóla í vinnuna. Ég hjóla
auk þess mikið um Vesturbæinn, um
Laugardalinn og stundum út á Nes
og allt þar á milli.“
Myndir þú vilja nota það meira?
„Já, ég myndi vilja nota það meira.
Ef það væri gert átak í því að leggja
hjólabrautir meðfram stofnbrautum
og aðgengi hjólreiðamanna almennt
bætt í Reykjavík myndi ég eflaust nota
það meira en ég geri. Ég var í Þýska-
landi í sumar þar sem hjólreiða-
mönnum er sýnd ótrúleg tillitssemi
í umferðinni. Ég leigði mér hjól og
fann fyrir því hversu mikla virðingu
bílstjórar bera fyrir hjólreiðamönn-
um. Eitt skiptið var ég að hjóla upp
mjög bratta brekku. Ég var að hjóla á
götunni og rétt silaðist upp brekkuna.
Allt í einu tók ég eftir því að rétt á eft-
ir mér var strætisvagn. Í stað þess að
flauta á mig keyrði hann í rólegheit-
um á eftir mér þangað til ég var kom-
in alla leiðina upp. Þetta gæti aldrei
gerst í Reykjavík eins og umferðin er
núna. Við mættum öll taka meira tillit
hvert til annars á götum úti.“
Finnst þér aðstaða til hjólreiða
góð í Reykjavík?
„Það fer svolítið eftir því hvort þú
lítur á hjólið sem samgöngutæki eða
sportgræju. Hún er góð fyrir þá sem
vilja hjóla sér til yndisauka og líkams-
ræktar. Það er hægt að hjóla margar
fallegar leiðir á grænum svæðum í
borginni og meðfram strandlengj-
unni. Ef maður ætlar hins vegar að að
harkast í gegnum umferðina vantar
víðast hvar alveg hjólreiðabrautir svo
maður þurfi ekki að sikksakka milli
gangstétta og gatna. Þetta hefur þó
skánað mikið. Hjólapólitík er græn,
bætir andrúmsloftið, þrek og þol. Það
mættu flerii stjórnmálamenn hafa í
huga og hjóla í að gera borgina hjól-
væna.“
Oddný
Sturludóttir,
píanó-
kennari
og rit-
höfundur
Hvernig hjól átt þú?
„Ég á Cannondale-fjallahjól.“
Notar þú hjólið mikið?
„Já, ég reyni að nota þetta eins mikið og ég get.
Notkunin eykst og eykst með hverju árinu.“
Hvenær notar þú það helst?
„Ég reyni að sinna flestum mínum erindum á
hjólinu. Ég fer líka reglulega í hjólreiðaferðir erlend-
is. Ég var til dæmis að koma úr tveggja mánaða hjóla-
ferð um Noreg þar sem ég hjólaði þrjú þúsund kíló-
metra. Eftir slíkar ferðir verður höfuðborgarsvæðið
minna og minna. Það er líka mun skemmtilegra að
fara ferða sinna á hjóli, þá slepp ég við umferðar-
teppu, bílastæðavesen og stöðumælasektir. Þetta er
allt spurning um rétt hugarfar og góðan fatnað.“
Finnst þér aðstaða til hjólreiða góð?
„Hún er langt því frá því að vera góð en hún hefur
batnað mikið. Fólk er aðeins að átta sig á því að sam-
göngur snúast ekki einungis um bíla. Þörfin fyrir aðr-
ar samgönguleiðir er líka alltaf að aukast því gatna-
kerfið er sprungið. Svo þurfa jú allir að hreyfa sig.“
Freyr Franksson ljósmyndari
Hvernig hjól átt þú?
„Það er svo ómerkilegt að ég man ekki hvað það
heitir. Ég keypti það fyrir átta til tíu árum í Fálkanum
og það virkar ennþá vel.“
Notar þú hjólið mikið?
„Ég nota það mikið á vorin, sumrin og haustin en
nánast aldrei á veturna.“
Hvenær notar þú það helst?
„Ég fer ekki mikið í hjólreiðatúra. Ég hjóla meira
svona til vinnu og til að sinna ýmsum öðrum erind-
um.“
Hefur þú alltaf hjólað mikið?
„Já, ég hef alltaf hjólað ef ég hef átt hjól. Ætli ég
hjóli ekki svona tvisvar til þrisvar í viku. Ég hef aldrei
farið í neitt átak en mér finnst einfaldlega svo frá-
bært að hjóla.“
Finnst þér aðstaða til hjólreiða góð?
„Hún hefur batnað geysilega mikið. Sérstaklega
finnst mér muna miklu um þá gangstéttarkanta sem
flattir hafa verið út. En lengi getur gott batnað. Það
getur til dæmis stundum reynst erfitt að hjóla á milli
hverfa.“
Margrét Eiríksdóttir
kennari