Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Blaðsíða 15
DV Sport fimmtudagur 30. ágúst 2007 15
Sport
Fimmtudagur 30. ágúst 2007
sport@dv.is
Dyer fótbrotinn
íslenska körfuboltalandsliðið vann GeorGíu 76–75 með körfu á lokasekúndu leiksins. bls. 16.
Fjórir leikir fara fram í 15. umferð
Landsbankadeildar karla í knatt-
spyrnu í kvöld. FH tekur á móti KR í
Kaplakrika, Breiðablik heimsækir ÍA
á Akranes, HK fær Fylki í heimsókn
og Fram og Keflavík mætast á Laug-
ardalsvelli.
Íslandsmeistarar FH hafa hikstað
að undanförnu og hafa aðeins fengið
tólf stig af 21 mögulegu í síðustu sjö
leikjum sínum í deildinni. FH-ingar
hafa í nógu að snúast því liðið mæt-
ir Breiðabliki í undanúrslitum VISA-
bikars karla á sunnudaginn. Þrátt
fyrir það segir Heimir Guðjónsson
aðstoðarþjálfari að FH ætli ekki að
hvíla neina lykilmenn gegn KR.
„Við erum með lið sem er í keppni
á öllum vígstöðum. Þá er álag og það
er bara partur af þessu. Menn verða
bara að standa undir því, það er ekk-
ert flóknara. Leikmenn eru í góðu
formi og ég kvíði því ekkert þótt við
eigum erfiðan leik við KR og annan
erfiðan á sunnudaginn við Breiða-
blik,“ sagði Heimir.
KR rær lífróður á botni deildar-
innar. Fyrir tímabilið hefðu flest-
ir búist við því að leikur FH og KR
í 15. umferð yrði mikilvægur leikur
í toppbaráttunni. Því fer hins vegar
fjarri þar sem KR er klárlega það lið
sem hefur komið mest á óvart, með
slökum árangri sínum. FH vann
fyrri leik liðanna á tímabilinu 2–0
með mörkum frá Ásgeiri Gunnari
Ásgeirssyni og Guðmundi Sævars-
syni.
ÍA tekur á móti Breiðabliki á
Akranesvelli. Bæði lið eru að berj-
ast um Evrópusæti á næstu leiktíð.
Skagamenn komust á mikið skrið í
júlímánuði en hafa örlítið misstigið
sig í síðustu leikjum.
Breiðablik er jafntefliskóngur
deildarinnar hingað til. Liðið hef-
ur gert sjö jafntefli í fjórtán leikj-
um og er þremur stigum á eftir ÍA.
Breiðablik verður án varnarmanns-
ins sterka Guðmanns Þórissonar í
leiknum, þar sem hann tekur út leik-
bann eftir að hafa fengið rautt spjald
gegn Víkingum í síðasta leik.
Breiðablik valtaði yfir ÍA í fyrri
leik liðanna. Lokatölur urðu 3–0
þar sem Magnús Páll Gunnarsson,
Kristján Óli Sigurðsson og Nenad
Zivanovic sáu um að skora mörkin.
Keflavík mætir með vængbrot-
ið lið í Laugardalinn þar sem lið-
ið mætir Fram. Ómar Jóhannsson
markvörður og Branislav Milisevic
eru meiddir og Baldur Sigurðsson
og Símun Samuelsen eru í leik-
banni. Keflavík hefur verið í frjálsu
falli niður töfluna að undanförnu
og hefur ekki unnið leik frá 27.
júní.
Fram berst fyrir lífi sínu í deild-
inni og má vart við því að tapa leik.
Fram virðist vera á uppleið ef marka
má spilamennsku liðsins í síðustu
tveimur leikjum, þar sem það gerði
3–3 jafntefli við FH og vann öruggan
3–0 sigur á HK.
Fylkir og HK mætast í Árbænum.
Fylkir er í fjórða sæti deildarinnar
með markatöluna 15:15. Það er því
hægt að segja að Fylkismenn hafi
nýtt sín mörk vel í sumar.
HK er í sjöunda sæti með fimmt-
án stig og getur farið langleiðina
með að tryggja sæti sitt í deildinni
með sigri. Liðið var hins vegar ekki
sannfærandi í síðasta leik og tapaði
0–3 fyrir Fram. Hólmar Örn Eyjólfs-
son verður ekki með HK þar sem
hann tekur út leikbann. dagur@dv.is
15. umferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu hefst í kvöld með fjórum leikjum:
Mikilvægir leikir jafnt á toppi sem og botni
Ævintýralegur
sigur
Lemstraður ásgeir gunnar ásgeirsson
varð fyrir hnjaski í síðasta leik. Hann
verður hins vegar klár í slaginn í kvöld
gegn Kr.
Arsenal vann auðveldan sigur