Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Page 16
fimmtudagur 30. ágúst 200716 Sport DV
enski boltinn
Markvörður núMer eitt
arsene Wenger, stjóri arsenals, segir
að sæti Jens Lehman í byrjunarliðinu
sé tryggt en hins vegar sé hann ekki
ósnertanlegur. Lehman hefur verið
mikið á milli
tannanna á fólki
eftir að hafa
gert glórulaus
mistök í fyrstu
leikjum
arsenals. Hann
er meiddur og
lék ekki með
gegn sparta
Prag í gær. „Jens
er keppnismaður og er pirraður að
vera meiddur og ekki í liðinu. sumir
segja að meiðslin séu uppspuni en
ég fundaði með Lehman á föstudag
og hann er meiddur og er ekki á leið
frá okkur. Það er hins vegar enginn
ósnertanlegur. Ég hef hins vegar
mikla trú á Lehman. Ég keypti hann
þegar hann var 33 eða 34 ára og
gerði hann að markverði númer eitt.
síðan hefur hann haldið því sæti.
Blöðin blásið þetta upp en lífið
heldur áfram. Hann er hins vegar
mikill karakter, bæði andlega og
líkamlega. almunia er góður
leikmaður sem getur vel haldið
stöðunni. Hvort Lehman labbi beint í
liðið þegar hann snýr aftur veit ég
ekki. almunia fær núna séns og það
er hans að nýta þann séns,“ sagði
Wenger.
tíMinn að renna frá okkur
steve Bruce, stjóri Birminghams,
viðurkennir að tíminn sé ekki besti vinur
liðsins eins og staðan er núna. Liðið er að
reyna klófesta
Peter Luccin frá
atletico madrid á
tvær milljónir
punda en
félagaskipta-
glugginn lokast á
föstudag. „Við
erum að vinna í
hans málum en
það hafa komið
upp vandamál sem við erum að reyna að
vinna úr. Ég er enn sannfærður um að
hann komi en það þýðir ekki að vera
óþolinmóður. Við erum að falla á tíma og
verðum því að leysa alla vankanta sem
koma upp. Ef við fáum hann ekki verðum
við að fá einhvern annan því við erum illa
staddir með miðjustöðuna. Hann er
frábær fótboltamaður. Það er ekki hægt
að spila yfir 100 leiki með atletico ef
maður er ekki góður fóboltamaður. Hann
yrði frábær viðbót við okkar lið, gæfi
okkur eithvað extra,“ sagði Bruce.
eagles ánægður
Chris Eagles, leikmaður manchester
united, er ánægður með að vera kominn
að byrjunarliðs-
þröskuldinum hjá
liðinu. Eagles
spilaði sinn fyrsta
leik með man. utd
árið 2003 en hefur
síðan verið í láni
hjá Watford, sheff.
Wed. og NEC
Nijmegen í
Hollandi. Hinn 21
árs Eagles hefur spilað þrjá leiki það sem af
er tímabilinu enska eftir að hafa skorað
þrjú mörk í fimm leikjum á undirbúnings-
tímabilinu.„Það er frábært að vera við
byrjunarliðið. að taka þátt í undirbúningi
liðsins í hverri viku er magnað. Enska
deildin er mjög hröð og maður þarf að vera
virkilega á tánum til að aðlagast hraðanum
um leið. Ég er stoltur af að vera í þessu
félagi og nýt hverrar mínútu hér. Vonandi
tek ég virkan þátt í velgengni vetrarins.“
West HaM býður í sHorey
Íslendingafélagið West Ham hefur gert
reading tilboð í enska landsliðsbakvörð-
inn hjá reading, Nicky shorey, upp á 5
milljónir punda,
eða um 650
milljónir króna.
shorey vakti
mikla athygli
með nýliðum
reading í
úrvalsdeildinni
síðasta vetur,
spilaði mjög vel í
stöðu vinstri
bakvarðar og lék sinn fyrsta a-landsleik
ekki alls fyrir löngu þegar England mætti
Brasilíu snemma í sumar. Hann hefur
einnig verið orðaður við Newcastle í
kjölfarið á því að viðræður hans við
reading um nýjan samning sigldu í
strand. samkvæmt BBC þarf hins vegar
West Ham að hækka tilboð sitt í einar 6
milljónir punda, kringum 800 milljónir
króna, til að reading láti shorey af hendi.
Á föstudaginn mætir Hnefaleika-
félag Reykjaness dönsku úrvalsliði í
Hnefaleikahöllinni í Reykjanesbæ,
gömlu sundhöllinni. Fyrirliði danska
liðsins er danski meistarinn í veltivigt,
Kenneth Nemming, og mun hann
mæta Daníel Þórðarsyni í aðalbar-
daga kvöldsins.
Daníel er með þeim allra bestu á
Íslandi. Hann var valinn hnefaleika-
maður ársins 2004 og vann til silfur-
verðlauna á Íslandsmótinu í fyrra.
Hann hefur aðeins tapað einu sinni
á ferlinum en þetta verður án efa erf-
iðasti bardagi Daníels enda Kenneth
gríðarlega góður.
Kenneth á 113 bardaga að baki og
hefur unnið 61. Þórður Sævarsson,
sem var félagi í HFR, mætti Nemming
þrisvar sinnum og bar eftirminnilega
sigurorð af honum í keppni í Kefla-
vik á Ljósanótt 2003. Nokkrum mán-
uðum síðar vann Kenneth sinn fyrsta
titil á Danmerkurmeistaramótinu
eftir hörkuæfingabúðir í Reykjanes-
bæ. Þórður er nú einn tveggja þjálf-
ara danska liðsins og hefur verið lyk-
ilmaður í því að velja saman liðið sem
mun mæta hans fyrri félögum. Þórð-
ur lagði hanskana á hilluna 2006 og
hefur síðan snúið sér að þjálfuninni
eingöngu og átti einmitt danskan
meistara á árinu. Hann er sá Íslend-
ingur sem hefur náð bestum árangri
erlendis.
Aðrir íslenskir keppendur verða
þeir Vikar Karl Sigurjónsson, Ágúst
Hilmar Dearborn, Viðar Freyr Viðars-
son, Davíð Freyr Atlason, Sigurbergur
Eiríksson, Hafsteinn Smári Óskars-
son, Pétur Ásgeirsson og Andri Már
Elfarsson. Sandgerðingurinn Andri
Már er yngstur keppenda og mun
mæta Dion, syni fyrrverandi heims-
meistara í atvinnuhnefaleikum,
Jimmi Bredahl, sem mætti einmitt
sjálfum Oscar de la Hoya árið 1994.
Fyrsti bardaginn hefst klukkan 18
og er miðaverði stillt í hóf. Hægt er að
nálgast miða í forsölu í sportbúð Ósk-
ars í Keflavík.
benni@dv.is
Nú liggja Danir í því
Danskt boxlið kemur til landsins og boxar í Keflavík:
skipuleggjandinn guðjón
Vilhelm er einn skipuleggjandinn.
Ísland sigraði Georgíu í frábærum körfuboltaleik þar sem sigurkarfan kom úr þriggja
stiga skoti í þann mund sem lokaflautan gall.
Íslendingar sigruðu glæstan liðs-
heildarsigur á Georgíumönnum í
Evrópukeppninni með einu stigi,
76-75. Jakob Örn Sigurðsson skot-
bakvörður íslenska liðsins skoraði úr
þriggja stiga körfu um það leyti sem
lokaflautan gall og tryggði sigurinn.
Íslendingar hófu leikinn af krafti
og voru greinilega staðráðnir í því að
halda uppi hröðum leik gegn Georg-
íumönnum Leikurinn var jafn fram-
an af þó að Georgíumenn hefðu haft
frumkvæðið. Nokkuð var um sókn-
armistök hjá báðum liðum í fyrri
hálfleik. Íslendingar voru óhræddir
að keyra upp að körfunni og reyndu
hvað þeir gátu að koma boltanum
framhjá hávöxnum varnarmönnum
georgíska liðsins þegar þeir færðust
nær körfunni. Auk þess freistuðust
Íslendingar til þess að skjóta nokkuð
af þrigga stiga skotum sem hittu fá í
fyrri hálfleik.
Leikmenn Georgíu eru mun há-
vaxnari en íslenska liðið og var við
ramman reip að draga hjá íslenska
liðinu að berjast um fráköstin við
þá. Það gekk hins vegar mjög vel í
fyrri hálfleik. Leikmenn voru dug-
legir við að halda Georgíumönnum
frá körfunni í vörninni og baráttan
skein úr andlitum liðsins hvenær
sem laus bolti var til þess að berjast
um. Sérstaklega var Páll Axel Vil-
bergsson drjúgur í þeim efnum.
Jafnræði var með liðunum fram-
an af leik og Logi Gunnarsson fór
fyrir sóknarleik íslenska liðsins og
skoraði fyrstu tólf stigin. Georg-
íumenn náður eilítilli forystu um
miðjan hálfleikinn en Íslendingar
jöfnuðu 33-33 og í hálfleik var stað-
an 36-38 Georgíumönnum í vil.
Íslendingar gerðu fyrstu körfuna
í síðari hálfleik og komust yfir 39-
38 en Georgíumenn svöruðu með
ákveðnum leik strax í upphafi.
NBA-leikmaðurinn Zacha Pachul-
ia lét meira til sín taka eftir að hafa
látið lítið fyrir sér fara í fyrri hálf-
leik.
Georgíumenn náðu fljótlega 9
stiga forystu 50–41 með því að keyra
á Íslenska liðið. Þá kom til sögu
Magnús Gunnarsson og gerði mik-
ilvæga þriggja stiga körfu auk góðrar
stoðsendingar á Jakob Örn Sigurðs-
son sem gaf þrjú stig og Íslendingar
héldu sér inni í leiknum eftir erfiðan
þrjðja leikhluta og staðan 52–55.
gríðarleg spenna í lokaleik-
hlutanum
Síðasti leikhlutinn byrjaði hægt
en Íslendingar sýndu góðan varn-
arleik sem fyrr í leiknum. Þakið ætl-
aði að rifna af húsinu þegar Jakob
Örn Sigurðsson kom Íslandi yfir 59-
58 með þriggja stiga körfu og aftur
þegar Magnús Gunnarsson setti nið-
ur aðra slíka stuttu síðar. Á þessum
tímapunkti voru rúmar sex mínútur
eftir og spennan í hámarki. Georgíu-
menn tóku leikhlé til þess að ráða sín-
um ráðum í stöðunni 64-63 fyrir Ís-
land. Spennandi leikur og rafmagnað
andrúmsloft í húsinu. Georgíumenn
bjuggust líklega við því að vinna leik-
inn en vissu að það myndi standa
tæpt úr þessu.
Þegar tvær mínútur voru eftir var
staðan jöfn 72-72 og allt gat gerst.
Georgíumenn gerðu næstu körfu og
Brenton missti boltann í næstu sókn.
Íslendingar fengu hann aftur þegar 35
sekúndur voru eftir. Þriggja stiga skot
Jakobs Arnar Sigurjónssonar geig-
aði, Íslendingar náðu frákastinu en
Brenton Birmingham missti boltann
út af. Íslendingar fengu boltann aft-
ur í stöðunni 74-76 fyrir Goergíu. Logi
Gunnarsson fékk vítaskot og skoraði
úr fyrra skotinu en klikkaði vísvitandi
af vítaskoti þegar 6 sekúndur voru
eftir. Friðrik Stefánsson barðist fyrir
boltanum og slóg hann út til Jakobs
Arnar Sigurðssonar sem negldi niður
þriggja stiga körfu um leið og flautan
gall og liðið ærðist af fögnuði. Þvílík
dramatík og lokatölur 76-75.
liðsheildarsigur
„Þessi lokakarfa endurspeglar
hugarfar leikmanna og það að við
náðum að halda þeim undir átta-
tíu stigum er mjög gott. Það var svo
gaman að sjá hvað það voru margir
sem voru að leggja sitt af mörkum.
Alltaf þegar við virtumst eiga erfitt
í leiknum kom einhver nýr og steig
upp og það endurspeglaði hugarfar
leikmanna í leiknum. Allir sem spil-
uðu stóðu sig vel. Logi dró vagninn í
upphafi, Palli var frábær í fráköstun-
um og Kobbi og Maggi breyttu leikn-
um í síðari hálfleik,“ segir Sigurður
Ingimundarson, þjálfari landsliðs-
ins.
„Ég er að sjálfsögðu stoltur af
sigurkörfunni en þetta var fyrst og
fremst liðssigur. Það eru ekki mörg
tækifæri sem maður fær á ferlinum
til þess að skora svona sigurkörfu og
þetta var frábært,“ segir Jakob Örn
Sigurðsson sem skoraði úrslitakörfu
leiksins.
„Þetta er náttúrlega frábært og án
vafa einhver sætasti sigurinn á mín-
um ferli. Að ná þessu svona var frá-
bært. Liðið í heild sinni lagði sig fram
í kvöld en við höfum oft spilað bet-
ur án þess að vinna. Sóknarleikurinn
var miklu betri en úti í Finnlandi og
vörnin small saman þannig að ætli
við verðum ekki bara betri næst,“
segir Páll Axel Vilbergsson.
viðar guðjónsson
blaðamaður skrifar: vidar@dv.is
Stig ÍSlandS:
Logi gunnarsson 17
Jakob Örn sigurðsson 16
Brenton Birmingham 13
Páll axel Vilbergsson 9
fannar Ólafsson 6
magnús gunnarsson 6
Helgi már magnússon 4
friðrik stefánsson 3
Brynjar Björnsson 2
Stig georgÍu:
tyrone Ellis 17
manuchar markoishvili 16
Zaza Paculia 15
Vladimer Boisa 14
gerorge tsintsadze 9
Viktor sanikidze 3
david ugrekhelidze 1
ÆVintÝRin
GeRAst enn
tryggði sigurinn
Jakob Örn sigurðsson
skoraði sigurkörfuna um
leið og lokaflautan gall.