Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Síða 23
Hugsandi skattborgarar hafa
áhuga á meðferð skattfjár og hvort
vel sé farið með það. Það er ofur eðli-
legt enda greiðir miðlungsheimili
sjálfsagt um þrjár milljónir króna í
tekju- og neysluskatta ár hvert.
Af þessum sökum hafa skattborg-
ararnir áhuga á stóra Grímseyjar-
ferjumálinu, óháð samgönguvanda
milli lands og eyja.
Þeir hafa áhuga á því hvort hundr-
uðum milljóna króna er kastað í
verkefni sem auðveldlega hefði mátt
leysa með margfalt minni kostnaði
eins og bent hefur verið á í DV.
Á Alþingi sitja kjörnir fulltrúar
þjóðarinnar og semja meðal ann-
ars fjárlög. Þau mæla fyrir um það
hvernig verja skuli skatttekjum rík-
isins. Vitanlega eiga kjörnir fulltrúar
almennings að hafa eftirlit með því
hvernig skattpeningunum er var-
ið og hvort það sé gert í samræmi
við lög. Þar kemir Ríkisendurskoð-
un til skjalanna, en hún er önnur af
tveimur eftirlitsstofnunum Alþingis.
Hin er umboðsmaður Alþingis, en
embætti hans stendur meðal annars
vörð um réttindi og hagsmuni borg-
aranna frammi fyrir valdastofnunum
ríkisins.
Ráðherraræðið
Þegar Árni Mathiesen fjármála-
ráðherra eða Sturla Böðvarsson,
fyrrverandi samgönguráðherra, snú-
ast til varnar í Grímseyjarferjumál-
inu, setja ofan í við Ríkisendurskoð-
un eða vísa aðfinnslum og gagnrýni
embættisins á bug, er framkvæmda-
valdið að byrsta sig gagnvart löggjaf-
arvaldinu. Sýna Alþingi tennurnar.
Stundum hafa íslenskar ríkis-
stjórnir hundsað vilja Alþingis með
öllu, stundum varla nennt að hafa
það með í ráðum. Þess utan hefur
Alþingi verið notað sem afgreiðslu-
stofnun fyrir ríkisstjórnir hverju sinni
þar sem ráðherravaldið skiptir meira
máli en málefnaleg rökræða eða
samningaviðræður um meirihluta-
stuðning þings við stjórnarfrumvörp
eins og gerist víða um lönd.
Þeir sem venjast því að geta kom-
ist til áhrifa og velsældar í krafti
flokkshollustu en ekki verðleika og
kunnáttu eru jafnframt líklegri en
aðrir til þess að fara á svig við lög og
reglur. Það var að minnsta kosti mat
sérfræðinga sem komu hingað til
lands fyrir um fimm árum á vegum
GRECO-nefndar Evrópuráðsins, en
hún fylgist með spillingu í aðildar-
löndunum.
Ráðherrar mega sannarlega bera
hönd fyrir höfuð sér og umfram allt
upplýsa áform sín og gjörðir á gagn-
sæjan hátt. Þeir mega líka reyna að
skilgreina veruleikann fyrir okkur
hin, réttlæta gjörðir sínar og gera þær
áferðarfallegri en þær í rauninni eru.
Má nefna Byrgismálið? Ríkisborg-
araréttinn og mál Jónínu Bjartmarz?
Mannaráðningar í Hæstarétt?
Árið 2007 ættu íslenskir ráðherrar
hins vegar að varast að halda að frétt-
ir og umræða um íslenskan stjórn-
málaveruleika séu enn með þeirra
eigin skilmálum eða að þeir haldi í
alla spotta og komist upp með hvers
kyns valdníðslu og valdhroka.
Að axla ábyrgð
Telja má líklegt að meirihluti sé
nú fyrir því á Alþingi að auka heim-
ildir þingsins til eftirlits og rannsókna
ef þurfa þykir. Rétt eins og menn eru
kallaðir til ábyrgðar í rekstri fyrir-
tækja ættu stjórnmálamenn og emb-
ættismenn að lúta slíkum aga. Það
yrði mjög til bóta fyrir íslenskt stjórn-
arfar sem einkennst hefur af klíku-
stjórnmálum og vaxandi ráðherra-
ræði.
Ráðherrar njóta stundum gjörða
sinna og vaxa af þeim. Af hverju ættu
þeir ekki einnig að falla með þeim
þegar svo ber undir?
Þegar borgaraleg ríkisstjórn Fre-
driks Reinfeldts hafði verið við völd í
átta daga í Svíþjóð sagði Maria Borel-
ius viðskiptaráðherra af sér embætti.
Fjölmiðlar upplýstu síðastliðið haust
að hún hefði komið sér undan því að
greiða afnotagjöld af sjónvarpi um
langa hríð.
Tveimur vikum síðar sagði Cecilia
Stegö Chilo menningarmálaráðherra
af sér þegar fjölmiðlar greindu frá því
að hún hefði ekki greitt afnotagjöld
af sjónvarpi í 16 ár. Auk þess var upp-
lýst að hún hefði keypt sér heimilis-
aðstoð án þess að telja launagreiðsl-
ur fram til skatts.
Laila Freivalds, utanríkisráð-
herra í ríkisstjórn Görans Persson,
sagði af sér vegna harðrar gagnrýni
á viðbrögð sænskra stjórnvalda við
flóðunum í Taílandi, en þar fórust
hundruð Svía á jóladag 2005. Hún
þótti einnig hafa brotið gegn tjáning-
arfrelsinu með því að reyna að hindra
birtingu efnis á opinberri vefsíðu.
Mona Sahlin, núverandi leiðtogi
sænskra jafnaðarmanna, sagði af sér
sem aðstoðarforsætisráðherra árið
1995 í stjórn Ingvars Carlsson. Hún
hafði misnotað opinbert greiðslu-
kort og greitt svart fyrir gæslu barna
sinna.
Ritt Bjerregård hin danska varð
einnig að segja af sér fyrir margt
löngu vegna óhófs í ráðherraemb-
ætti. Hún er nú borgarstjóri í Kaup-
mannahöfn.
Af þessu sést að tilefni til að falla
með gjörðum sínum eru margvísleg
en ekki endilega stórkostleg.
Ef Ríkisendurskoðun segir satt um
ólögmæta og illa meðferð hundruða
milljóna króna í Grímseyjarferju-
málinu er spurning hvort íslensk-
um skattborgurum finnst það minni
glæpur en að kaupa Toblerone fyr-
ir opinbert kreditkort líkt og Mona
Sahlin gerði á sínum tíma og varð
henni að falli.
Hvað ungur nemur, gamall temur Svanur Freyr, yngri bróðir Stevens Shannen, hélt fast um kókflöskuna sína og fylgdist með hvernig bróðir hans
þambaði úr sinni flösku. Bræðurnir voru staddir á Ingólfstorgi í miðborg Reykjavíkur í blíðviðri um daginn og lék sá eldri ýmsar kúnstir á hjólabretti. myndin
P
lús
eð
a m
ínu
s
Plúsinn í dag fær Lúðvík
Gizurarson, en niðurstöður úr
DNA-rannsókn hafa leitt í ljós
að 99,9% líkur eru á því að
Hermann Jónasson hafi verið faðir
Lúðvíks. Þar með sér fyrir endann á
langri baráttu hans til þess að fá
faðerni sitt viðurkennt.
Spurningin
„Ég hallast að því að
framtíðin sé í kútter
Sigurfara. Honum
verður vonandi komið
á flot innan tíðar.
Kútter Haraldur heyrir
hins vegar sögunni til,“
segir Gunnar Sigurðsson, starfandi
bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Akranes-
kaupstaður hyggur á endurbyggingu
kútters Sigurfara sem hluta mótvægisað-
gerða gegn minni þorskkvóta. Meiningin
er að flytja skipið landleiðina frá
byggðasafninu á Akranesi, til Stykkis-
hólms, þar sem það verður gert upp.
Kútternum verði svo siglt til heimahafnar.
LIGGUR FRAMTÍÐIN Í
KÚTTER SIGURFARA,
GUNNAR?
Sandkassinn
Að skrifA um lífið og tilveruna í
svona kassa er furðulegt. Hvað er
hægt að skrifa um? Gatnafram-
kvæmdir, Landsbankadeildina
eða eitthvað sem er leiðinlegt. Ég
les sjaldan svona pistla, eiginlega
aldrei og kann því ekkert að gera
svona. Þegar ég les þetta er yfir-
leitt verið að gagnrýna en ég ætla
að vera skrýtni gæinn og hrósa
öllum.
Hrós númer eitt fær KFC hér á
Íslandi fyrir að vera með bestu
hamborgara á Íslandi. Tilboð
númer sex eftir
nótt þar sem
áfengi hefur
verið haft við
hönd er yndis-
leg máltíð og er
þynnkumáltíð
hjá mér númer eitt.
Hrós númer tvö fær KSÍ fyrir að
bjóða upp á ótrúlega dýnamískar
veitingar á blaðamannafundum.
Í gær var til dæmis blaðamanna-
fundur og, jú, það var humar
með öllu tilheyrandi. Þetta er í
annað sinn sem KSÍ býður upp á
humar í sumar. Reyndar er HSÍ
líka með góðar veitingar á sínum
fundum en handboltavertíðin
er ekki byrjuð og því bíð ég með
hrós til þeirra.
Hrós númer þrjú fær því Sport-
húsið, því undirritaður er loksins
byrjaður að hreyfa sig.
Hrós númer fjögur fer til Henrýs
Birgis, kollega míns á Fréttablað-
inu. Hann er orðinn ofurbloggari
og eyddi meðal annars sumarfrí-
inu í að sanna að moggabloggið
er lélegt. Ég les sjaldan eða aldrei
blogg. Hins vegar er ég með síð-
una hans Henrýs í favorites hjá
mér og skoða
hana reglulega.
Einu sinni gerð-
ist undirritaður
svo frægur að
vera í föstudags-
getrauninni hjá
honum. Það
voru góðir tímar.
Reyndar er Gillz
byrjaður aftur að blogga og ætli ég
láti hann ekki fá Hrós númer fimm
því þar sá ég þáttinn Innlit/Útlit
þar sem Ásgeir Kolbeinsson gerði
lítið úr eldhúsinnréttingu.
Hrós númer sex fer síðan til
konunnar minnar og dóttur. Ég
sá nefnilega Raymond, sem fær
hrós númer
sjö, en hann er
íþróttafrétta-
maður. Hann
hrósaði Debru
í blaðinu sínu
og hún táraðist.
Kannski tárast
konan mín
þegar hún les
þetta. Hver veit.
Benedikt Bóas prófar sig
í svona skrifum.
Afglöp og ábyrgð
JóHANN
HAUKSSoN
útvarpsmaður skrifar
Árið 2007 ættu íslenskir
ráðherrar hins vegar að
varast að halda að fréttir
og umræða um íslenskan
stjórnmálaveruleika séu
enn með þeirra eigin skil-
málum.
DV Umræða FIMMtudAGuR 30. áGúSt 2007 23
DV fyrir
25 árum
Útvatnaður saltfiskur án beina til að sjóða
Sérútvatn. saltfiskur án beina til að steikja
Saltfisksteikur (Lomos) fyrir veitingahús