Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Page 32
Íslandsprenti hefur verið synjað
um framlengingu greiðslustöðvun-
ar við Héraðsdóm Reykjaness. Stærsti
kröfuhafinn, KBA Nordic, eignarréttar-
aðili prentvéla fyrirtækisins, lagði fram
við fyrirtöku málsins staðfestingu þess
efnis að fyrirtækið hygðist taka til sín
allar prentvélarnar. Meginrök synjun-
arinnar eru byggð á því að með því að
vélarnar séu teknar sé búið að kippa
fótunum undan áframhaldandi rekstri
Íslandsprents. Forsvarsmenn fyrirtæk-
isins eru ósáttir við úrskurðinn og telja
ólöglegt að tekið sé tillit til erindis KBA
á meðan greiðslustöðvun sé í gangi.
Skuldir Íslandsprents nema hundr-
uðum milljóna. Meðal kröfuhafa eru
helstu stjórnendur og eigendur Ís-
landsprents sem gera kröfur í fyrirtæk-
ið upp á tæplega 23 milljónir. Stærsta
krafan er gerð af framkvæmdastjóra
fyrirtækisins, Hilmari Sigurðssyni, eða
rúmar 18 milljónir. Af 8 lykilmönnum
í fyrirtækinu eru 6 á skrá yfir lánar-
drottna.
Hætt er við því að gjaldþrotaferli
blasi við Íslandsprenti á næstunni sem
yrði stærsta gjaldþrot prentiðnaðarins
hér á landi. Sú beiðni getur verið lögð
fram af félaginu sjálfu eða einhverjum
af fjöldamörgum kröfuhöfum. Eina
leiðin til bjargar er að fá inn nýtt hlutafé
og selja núverandi húsnæði því skortur
lausafjár er meginvandinn. Eigendur
Íslandsprents hafa hins vegar stofnað
nýtt fyrirtæki á nýrri kennitölu, sem
ber heitið Eldur og ís, sem er einnig
skráð undir starfsemi offsetprentunar.
Þeir sækjast jafnframt eftir lóð í Reykja-
nesbæ. trausti@dv.is
„Jú, það má segja að tilboðið hafi
lent í vitlausri skúffu hjá okkur,“ seg-
ir Jóhann Birkir Helgason hjá tækni-
deild Ísafjarðarbæjar. Bærinn bauð
út akstur skólabifreiðar í Dýrafirði.
Aðeins tvö tilboð af þremur voru
opnuð á tilsettum tíma. Lægsta til-
boðið hafnaði í vitlausri skúffu í
stjórnsýsluhúsinu og varð því út-
undan.
„Þeir eru greinilega ekki meiri
bógar en svo þarna á skrifstofunni
að þeir finna ekki pappírana,“ seg-
ir Jón Reynir Sigurðsson sem átti
lægsta tilboðið í aksturinn. Jón
Reynir hefur nú fengið lögfræðing
til liðs við sig til að greiða úr flækj-
unni. Aksturinn hefur verið boðinn
út á nýjan leik.
Endaði í rangri skúffu
Jóhann Birkir segir að ákveðið hafi
verið að bjóða verkið út aftur vegna þess
að athugasemdir hafi verið gerðar við
fyrra útboðið. „Tilboðið frá Jóni barst til
okkar í venjulegum pósti og vegna mis-
taka á bæjarskrifstofunni endaði það í
rangri skúffu. Þegar við höfðum opnað
hin tilboðin tvö áttuðum við okkur á því
að eitt tilboð vantaði,“ segir hann.
Jóhann segir að þrjú tilboð hafi bor-
ist eftir að útboðið var auglýst öðru
sinni, tvö frá þeim sem buðu áður og
eitt nýtt. Nú er unnið að samningagerð
en niðurstöður hafa ekki verið kynntar.
Engar haldbærar skýringar
Jón Reynir segir að sex vikum eft-
ir að menn áttuðu sig á að hann hefði
átt lægsta tilboðið hafi verið ákveðið að
ganga til samninga við hann. „Þá kem-
ur upp úr kafinu að lögfræðingur bæj-
arins vill að farið verði í annað útboð.
Ég hef ekki fengið neinar haldbærar
skýringar á þessu,“ segir hann.
Í nýja útboðinu skilaði Jón Reynir
sama tilboði og hann gerði í fyrri um-
ferðinni. Hann segir að nú sé hans til-
boð ekki lengur það lægsta. Hann segist
ekki hafa heyrt frekar frá bæjaryfirvöld-
um vegna málsins. „Ég þarf ekkert að
vera að munnhöggvast við þá. Lög-
fræðingurinn minn sér um þetta.“
Bæjarstjóri tvísaga
Jóni Reyni barst bréf frá Halldóri
Halldórssyni, bæjarstjóra á Ísafirði, þar
sem sagði að þar eð tilboð hans hefði
ekki borist með ábyrgðarpósti væri
engin lögfull sönnun fyrirliggjandi um
að tilboðið hefði borist á réttum tíma.
Björn Jóhannesson, lögmaður Jóns,
mótmælir þessu í bréfi til bæjaryfir-
valda. Hann bendir á að Jóni hafi borist
bréf frá bæjarstjóranum þann 2. ágúst,
þar sem ástæðan fyrir því að tilboðið
var ekki opnað á sama tíma og önnur
tilboð, er sögð sú að það hafi verið lagt í
ranga skúffu. sigtryggur@dv.is
fimmtudagur 30. ágúst 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
Fréttaskot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins.
Skúffelsi er þetta...
BÆJARSTARFSMENNIRNIR
TÝNDU LÆGSTA TILBOÐINU
Bæjaryfirvöld á Ísafirði urðu af lægsta tilboði í skólaakstur vegna misgánings:
Dansað á austurvelli Litagleðin og dansinn ríkti á Austurvelli í gær þegar danshátíðin Reykjavík Dance Festival var kynnt.
Nútímadansinn fær að njóta sín á hátíðinni. DV-MYND STEFÁN
Stærsti kröfuhafinn tekur til sín prentvélar Íslandsprents:
Synjað um lengri greiðslustöðvun
Vantar fimm
ný klósett
Sex manna starfshópur á
vegum Reykjavíkurborgar hef-
ur komist að þeirri niðurstöðu
að fimm salerni vanti í miðborg
Reykjavíkur. Þar að auki þurfi að
merkja og kynna betur nokkur
þau salerni sem þegar eru til stað-
ar í borginni.
Starfshópnum, sem starfaði
ásamt verkefnisstjóra, var falið að
fara yfir stöðuna í almennings-
salernismálum í miðbænum og
gera tillögur til úrbóta. Lagt er til
að nýjum klósettum verði kom-
ið fyrir í Hljómskálagarði og við
göngustíg í Nauthólsvík á sumrin.
Að auki verði fimm heilsárskló-
sett, við Tryggvagötu, Laugaveg
52, Austurvöll, við Esjurætur og
við göngustíg við Ægisíðu.
Krefst bóta
frá ríkinu
„Ég á ekki von á öðru en ég fái
þessar bætur,“ segir Holberg Másson.
Í gær fór fram munnlegur málflutn-
ingur í skaðabótamáli Holbergs gegn
íslenska ríkinu.
Málið snýst um ólögmæta hand-
töku Holbergs og krefst hann nokkur
hundruð þúsunda króna í skaða-
bætur. Ríkið fór fram á að málinu
yrði vísað frá og fór því munnlegur
málflutningur fram í gær. Holberg var
handtekinn í febrúar árið 2006 vegna
rannsóknar á fjársvikamáli sem hann
reyndist svo ekki tengjast.
„Það er gert ráð fyrir því að niður-
staða fáist í málið í næstu viku en þá
verður það flutt. Það verður fróð-
legt að sjá hver niðurstaðan verður,“
segir Holberg og er bjartsýnn á sigur
í málinu.
Allsgáðir
geimfarar
Rannsóknarnefnd á vegum
bandarísku geimferðastofnun-
arinnar NASA þvertekur fyrir að
geimfarar hafi nokkurn tíma flog-
ið geimflaugum undir áhrifum
áfengis.
Rannsóknin hófst eftir að
óháð nefnd hélt því fram í júlí að
það hefði tvisvar komið fyrir að
geimfarar hefðu farið út í geim-
inn þrátt fyrir að vera undir áhrif-
um áfengis. Samkvæmt reglum
NASA er geimförum bannað að
neyta áfengis síðustu tólf klukku-
tímana áður en þeir fara í loftið.
Öryggisstjóri NASA stýrði
nýju rannsókninni og ræddi við á
annan tug manna um hvort fyrri
ásakanir ættu við rök að styðjast.
Hann segir að svo sé ekki.
„Þeir eru greinilega
ekki meiri bógar en svo
þarna á skrifstofunni
að þeir finna ekki
pappírana.“
stjórnsýsluhúsið á Ísafirði Lægsta
tilboð í skólaakstur í Dýrafirði var ekki
tekið með í reikninginn. Það gleymdist í
rangri skúffu. Mynd Siggi G
sigtryggur ari jóhannsson
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
Erfiðir tímar Héraðsdómur Reykjaness hafnaði framlengingu greiðslustöðvunar og
eignarréttaraðili prentvéla hyggst taka til sína allar vélarnar.
Jón og Gunna ekki
í viðskipti
Almenningur getur ekki fært við-
skipti sín úr banka sínum í Straum-
Burðarás þrátt fyrir að bankinn sé
kominn með viðskiptabankaleyfi.
Samkvæmt upplýsingum frá bank-
anum verður ekki boðið upp á hefð-
bundna viðskiptabankaþjónustu.
Fólk verður því að hafa innlánin sín
og sækja sér debet- og kreditkort
annað.
Straumi-Burðarási hefur verið
veitt viðskiptabankaleyfi af Fjár-
málaeftirlitinu. Það gerir bankanum
kleift að sækja innlán á þeim mörk-
uðum sem hann starfar á og er vinna
þegar hafin á því sviði. Áframhaldandi
rigning
„Það er vætutíð fram undan.
Eftir langvarandi þurrk og blíðu
hlýtur að fara að rigna,“ segir Einar
Sveinbjörnsson veðurfræðingur sem
bendir á að það skiptast iðulega á
skin og skúrir.
Næstu daga má búast við áfram-
haldandi rigningu, sér í lagi sunnan-
og vestanlands. Á þessum árstíma er
rigningatíðin viðbúin. Úrkomudagar
eru að meðaltali jafn margir í ágúst
og september, eða átján. Það er því
full ástæða til að fara að taka fram
regnfötin.