Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2007, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2007, Side 4
Fréttastofa Stöðvar 2 logar í deilum. Eftir að fréttakonunni Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur var sagt upp störfum fyrir helgi hafa tölvupóstar flakkað manna á milli þar sem uppsögnin er fordæmd og óskað eftir skýringum frá nýráðnum fréttastjóra, Steingrími Sævarri Ólafssyni. Óróa gætir inn- an fréttastofunnar vegna ráðningar Steingríms og brottreksturs Þóru. Kristinn Hrafnsson, fréttamað- ur Stöðvar 2, sendi harðort bréf á starfsmenn fréttadeildarinnar þar sem hann segir uppsögnina lúalega og lítilmannlega. Hann telur fram- komu Steingríms í garð Þóru Kristín- ar og annarra starfsmanna deildar- innar óboðlega og skorar á hann að segja satt og rétt frá um brottrekstur- inn. Kristinn minnir alla á að hlutverk fréttamanna sé að leita sannleikans og því sé betra að hann sé á hreinu innanhúss. Sjálf segir Þóra Kristín enga hald- bæra skýringu hafa fengist fyrir upp- sögninni og bendir á að fyrir tveimur mánuðum hafi henni verið lýst sem lykilstarfsmanni fréttastofunnar af fyrrverandi fréttastjóra, Sigmundi Erni Rúnarssyni. Hún mótmælir ráðningu Steingríms í starf fréttastjóra þar sem hann hafi of mikil pólitísk tengsl. Ekki inni í myndinni Í svörum Steingríms vísar hann alfarið á bug öllum fullyrðingum um að uppsögnin tengist stjórnmál- um á nokkurn hátt og segir harðorða kveðju Kristins vera honum sjálfum til minnkunar. Steingrímur var ráð- inn upplýsingafulltrúi í forsætisráðu- neytinu í valdatíð Halldórs Ásgríms- sonar. Steingrímur segir aftur á móti að ákvörðunin um brottreksturinn hafi verið tekin áður en hann tók við störfum og bendir á forvera sinn, Sig- mund Erni, núverandi forstöðumann fréttasviðs. „Þóra Kristín hefur kosið að telja þetta pólitíska ákvörðun. Hún verð- ur bara að eiga það við sjálfa sig. Ég frestaði uppsögninni þegar ég tók við og skoðaði málið út frá eigin forsend- um. Síðan komst ég að sömu niður- stöðu og forveri minn,“ segir Stein- grímur Sævarr í svarbréfi. Hann segir ákvörðunina um að segja Þóru Krist- ínu upp vera fullkomlega faglega og að til standi að bæta við starfsfólki á fréttastofunni. „Við erum langt því frá að draga saman seglin. Ég er að búa hér til öðruvísi lið og því fylgir að ég þarf að fara yfir starfsmannamálin. Þóra Kristín var einfaldlega ekki inni í myndinni hjá mér.“ Benda hvor á annan Kristinn gefur lítið fyrir skýring- ar Steingríms á uppsögninni. Hann segir Sigmund hafa hafnað því alfarið að hafa ákveðið brottreksturinn. „Það vekur sérstaka athygli að Steingrímur skuli hafa erft þá ákvörðun frá forvera sínum að reka Þóru Kristínu. Ég hafði samband við Sigmund Erni og bar þetta upp á hann. Sigmundur sagði þetta vera alrangt. Þarna stendur því orð gegn orði,“ segir Kristinn. Er blaðamaður hafði samband við Þóru Kristínu og bar undir hana sam- skipti Kristins og Steingríms vísar hún því á bug að einhver annar en Stein- grímur standi að baki uppsögninni. Hún segist hafa fengið það staðfest hjá yfirstjórn fyrirtækisins er hún gekk frá starfslokum sínum á föstudag. „Þetta var einfaldlega ekki svona. Ég trúi því ekki eitt augnablik að Sigmundur Ernir hafi komið þarna nokkuð nærri enda væri það í algjöru ósamræmi við þau skilaboð sem ég hafði fengið frá honum skömmu áður en Steingrímur var ráðinn til fyrirtækisins. Mér finnst þessi uppsögn ekki stórmannleg og eftir þessar fréttir velti ég því fyrir mér hversu lágt menn geti komist,“ segir Þóra Kristín. Ósmekkleg uppsögn Þóra Kristín segist líta á uppsögn- ina sem afar góð meðmæli. Hún hefur áhyggjur af því að pól- itískur frétta- stjóri hyggist móta undirmenn sína. „Ég hef aldrei unn- ið með Steingrími og þess vegna hefur hann engar forsendur til þess að leggja mat á mín störf. Þetta eru sennilega bestu meðmæli með mín- um störfum sem ég hef fengið á ferl- inum að maðurinn geti ekki starfað með mér. Honum hefur greinilega þótt erfitt að móta mig eftir hans höfði, eins og hann hefur sagst ætla að gera við fréttamenn stöðvarinnar,“ segir Þóra. Kristinn tekur undir gagnrýni á ráðningu Steingríms þar sem hann hafi nýlega gegnt embætti upp- lýsingafulltrúa Halldórs Ásgrímssonar, fyrr- verandi forsæt- isráðherra. „Lengst af var núver- andi frétta- stjóri talsmað- ur á höfuðbóli stjórnarheim- ilisins. Þeg- ar hann skipt- ir um föt og gerist oddamaður í aðhaldi almennings gagn- vart valdhöfum grípur hann til þess ráðs við fyrsta hent- ugleika að reka aðalfrétta- manninn í pólitískum fréttum. Smekklegt!“ segir Kristinn. Þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir náðist ekki í Sigmund Erni Rúnarsson, fyrrverandi fréttastjóra Stöðvar 2. mánudagur 3. september 20074 Fréttir DV Efast um lögmætið Landvernd og Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi hafa óskað eftir opinberri rannsókn á útgáfu á leyfi til jarðhitarann- sókna í Gjástykki. Landsvirkjun sótti um leyfi til rannsóknanna 8. maí og tveimur dögum síðar gaf Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra leyfið út, tveimur dögum fyrir kosningar. Í tilkynningu frá samtökun- um segir að margt bendi til þess að iðnaðarráðuneytinu hafi ekki gefist ráðrúm til þess að standa rétt að útgáfunni. Svo virðist vera sem ráðuneytið hafi ekki leitað umsagna hjá Orkustofnun eða Umhverfisstofnun, þrátt fyrir að skýr lagaákvæði séu til um að svo skuli gert. Einnig er óljóst hvort landið sé þjóðlenda eða í einka- eign. Vilja samtökin að leyfið verði afturkallað Bætt heilbrigðiskerfi Eftirlit og gæði heilbrigðis- þjónustu verða betur tryggð og heilbrigðisyfirvöldum verður settur skýrari rammi en áður. Á laugardaginn tóku gildi ný lög um heilbrigðisþjónustu sem samþykkt voru á Alþingi í vor. Markmið þeirra er að mæla skýrar fyrir um grunnskipulag hins op- inbera heilbrigðisþjónustukerfis. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðu- neytinu segir að lögin byggist á því grundvallarsjónarmiði að haldið skuli uppi öflugu heil- brigðiskerfi sem allir landsmenn hafi jafnan aðgang að. Ný lög um landlækni tóku einnig gildi en helstu breytingarnar frá því áður eru þær að landinu verður skipt upp í heilbrigðisumdæmi en í hverju umdæmi skal vera viðun- andi heilbrigðisþjónusta. Frístundakort á Skagaströnd Foreldrum barna á Skaga- strönd gefst nú kostur á að fá 15 þúsund króna styrk fyrir hvert barn sem tekur þátt í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Kortin tóku gildi á laugardaginn og gilda í eitt ár. Magnús B. Jónsson, sveit- arstjóri Skagastrandar, segir að frístundakortin dragi töluvert úr kostnaði fyrir stórar fjölskyld- ur. Þar með jafni þau möguleika ungmenna til að taka þátt í slíku starfi, óháð efnahag fjölskyldna þeirra. Kortin ná til starfsemi íþróttafélaga auk hvers konar skipulagðs félags- og tómstunda- starfs. Auk þess gilda kortin fyrir aðra tómstundaiðkun eins og tónlistar- eða listnám. InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Steingrímur Sævarr Ólafsson, nýráðinn fréttastjóri Stöðvar 2, stendur í deilum við undirmenn sína vegna uppsagnar Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur fréttakonu fyrir helgi. Bréfaskriftir ganga manna á milli þar sem harðorðar ásakanir koma fram. Steingrímur kennir Sigmundi Erni Rúnarssyni, fyrrverandi fréttastjóra, um brottreksturinn en hann neitar því alfarið. DEILA Á STEINGRÍM BalduR guðmundSSon blaðamaður skrifar: baldur@dv.is Miklar umferðartafir urðu á Reykjanesbraut eftir að dagskrá lauk á Ljósanótt, sem haldin var hátíðleg í Rekjanesbæ um helgina. Umferðin til Reykjavíkur var mjög hæg í kjölfar flugeldasýningarinnar á laugardags- kvöldið en dæmi eru um að ferðin frá Reykjanesbæ til höfuðborgarinn- ar hafi tekið tvo klukkutíma. Lögreglan á Suðurnesjum segist ekki vita hvers vegna umferðin gekk jafnhægt og raun ber vitni en telur allt eins víst að þeir fyrstu sem fóru heim eftir flugeldasýningu hafi ekki verið að flýta sér. Þá hafi umferð frá flugvellinum verið töluverð þar sem fjórar stórar þotur hafi flutt farþega til landsins um kvöldið og hafi það haft mikil áhrif. Sex umferðaróhöpp áttu sér stað á laugardaginn og að- faranótt sunnudags en öll voru þau minniháttar. Fimmtíu lögreglumenn voru á vakt þegar mest lét, en að sögn lögreglunnar fór hátíðin í heildina vel fram. Mörg þúsund manns skemmtu sér í miðbænum þegar mest lét. Fjöl- margir listamenn komu fram, með- al annars Garðar Thor Cortes, sem söng sig inn í hjarta tónleikagesta á laugardagskvöldinu. Lögregla, barnaverndarnefnd, foreldrar og útideild Reykjanesbæjar starfræktu athvarf í tengslum við hugsanlega ölvun ungmenna og brot á útivist- arreglum. Nokkur afskipti voru höfð af ungmennum sem síðan voru færð í athvarfið þar sem haft var sam- band við foreldra. Fjórir gistu fanga- geymslur fyrir ölvun. Einn þeirra var undir lögaldri, en ekki tókst að hafa uppi á forráðamönnum hans og því var honum leyft að sofa úr sér í fangageymslum. Níu fíkniefnamál komu upp og nokkuð var um pústra og slagsmál. Enginn hefur enn verið kærður. Þá var einn ökumaður tek- inn vegna gruns um ölvunarakstur. Lögreglan segir rigningu og kalt veð- ur hafa haft töluverð áhrif á gesti en rólegt var orðið í bænum um klukku- tíma eftir að skemmtistöðum var lokað. baldur@dv.is Margir gestir á Ljósanótt voru tvo klukkutíma að komast til Reykjavíkur eftir hátíðina: Miklar tafir eftir hátíðahöldin „ég trúi því ekki eitt augnablik að Sigmund- ur ernir hafi komið þarna nokkuð nærri enda væri það í al- gjöru ósamræmi við þau skilaboð sem ég hafði fengið frá honum skömmu áður.“ Sigmundur Ernir Rúnarsson Fyrrver- andi fréttastjóra er kennt um uppsögnina. Hann vísar því að sögn Kristins á bug. Kristinn Hrafnsson telur afar ósmekklegt af fréttastjóran- um að vísa Þóru Kristínu úr starfi og segir málið rammpólit- ískt. Hann segir uppsögnina bæði lúalega og lítilmannlega. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir Fréttakonan gagnrýnir ráðningu steingríms sem hafi augljós tengsl inn í stjórnmál- in. Hún hefur miklar áhyggjur af trúverðug- leika fréttastofunnar. Steingrímur Ólafsson nýráðinn fréttastjóri stendur í deilum við undirmenn sína vegna brottrekstursins. Hann segir forvera sinn hins vegar hafa ákveðið uppsögnina. litadýrð á næturhimninum Ljósanótt fór vel fram en nokkuð var um pústra og slagsmál.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.