Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2007, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2007, Blaðsíða 14
mánudagur 3. september 200714 Sport DV með boltann Skot að marki Skot á mark rangStöður hornSpyrnur aukaSpyrnur gul Spjöld rauð Spjöld áhorfendur:50,461 newcastle wigan harper, taylor, rozehnal, Cacapa, n’Zogbia, Smith (martins 66), geremi, butt, milner, owen, Viduka (ameobi 46). kirkland, melchiot, granqvist, bramble, kilbane, landzaat (Skoko 29), brown, Scharner, koumas (bent 58), Sibierski (boyce 48), heskey. maður leiksins Chris Kirkland Wigan 65% 24 6 4 9 15 2 0 40% 7 1 7 1 20 3 1 1:0owen 87 arsenal nálgast toppinn Arsenal sigraði Portsmouth 3–1 í bráðfjörugum og spennandi leik þar sem fjögur mörk fengu að líta dagsins ljós og eitt rautt spjald. Arsenal hélt áfram góðri byrjun sinni á tímabilinu með 3–1 sigri á liði Portsmouth í bráðfjörugum leik. Leikmenn Arsenal byrjuðu leikinn af krafti og strax á 6. mínútu skor- uðu þeir fyrsta mark leiksins. Eft- ir mistök í vörn Portsmouth slapp Robin Van Persie einn í gegn og var hann felldur af David James, mark- verði Portsmouth, dómarinn dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu og var það Emmanuel Adebayor sem steig á punktinn og kláraði hann vítaspyrn- una örugglega. Arsenal hélt áfram að pressa stíft og var Adebayor ná- lægt því að bæta við öðru marki sínu þegar hann rétt missti af boltanum eftir fyrirgjöf frá Alexander Hleb. Á 35. mínútu bætti Arsenal við öðru marki sínu í leiknum, var það Cesc Fabregas sem skoraði eftir að hann fylgdi eftir skalla Gilberto Silva eft- ir hornspyrnu. Þetta var fjórða mark Fabregas á tímabilinu. Arsenal hefði getað bætt við sínu þriðja marki nokkrum mínútum seinna þegar Adebayor átti hlaup upp kantinn en slök fyrirgjöf hans flaug yfir fría Arsenal-menn í teignum. Fyrri hálf- leikurinn var algjörlega eign Ars- enal-manna og hefðu þeir hæglega getað bætt við fleiri mörkum. Ars- enal byrjaði svo síðari hálfleikinn af sama krafti og var Philippe Sender- os nálægt því að bæta við marki en David James varði skalla hans eftir hornspyrnu vel. Arsenal einum færri Á 50. mínútu gerðist svo um- deilt atvik þegar fyrrnefndur Send- eros fékk rautt spjald, Kanu, fram- herji Portsmouth, var sloppinn einn í gegn og Senderos virtist fella hann fyrir utan teig, dómarinn dæmdi hik- laust aukaspyrnu og rautt spjald stað- reynd. Í kjölfarið á þessu atviki fengu Portsmouth sitt fyrsta almennilega tækifæri í leiknum. Nígeríumaður- inn John Utaka tók góða aukaspyrnu sem Manuel Almunia, markvörð- ur Arsenal, varði vel en boltinn datt beint fyrir fætur Seans Davis, miðju- manns Portsmouth, en honum tókst einhvern veginn að þruma boltanum yfir fyrir opnu marki. Á 55. mínútu bætti Arsenal við sínu þriðja marki, fékk aukaspyrnu við hornfánann, tók hana stutt og Tomas Rosicky skoraði með föstu skoti frá vítateigs- horninu, einkar klaufalegt hjá leik- mönnum Portsmouth sem voru ekki með á nótunum. Strax í næstu sókn minnkaði Kanu svo muninn fyrir Portsmouth með marki eftir fyrir- gjöf, ákveðinn heppnisstimpill var yfir markinu en Kanu skaut í löppina á sér og inn. Á 70. mínútu hefði Ars- enal átt að bæta við marki þegar Abou Diaby skallaði framhjá í færi sem virtist vera auðveldara að skora en að klúðra. Stuttu síðar varði Alm- unia glæsilega eftir hörkuskot Glens Johnson, sem nýlega var keyptur til Portsmouth frá Chelsea. Leikmenn Portsmouth voru hættulegri það sem eftir lifði leiks og hefðu hæglega getað skorað annað mark en Manuel Almunia átti góðan leik og varði oft á tíðum mjög vel. „Liðið er á réttri leið“ Cesc Fabregas, maður leiksins, var ánægður í leikslok, hrósaði liðs- heildinni og sagði að liðið væri á réttri leið „ Enn og aftur sýndum við að liðið er á uppleið, við erum orðn- ir mun betri varnarlega og við vitum að við getum skorað mörk. Við spil- um sem lið og þetta lítur vel út hjá okkur.“ sagði Cesc Fabregas ánægð- ur eftir leikinn. Kolo Toure, fyrirliði Arsenal í fjarveru William Gallas, tók í sama streng og hrósaði liðinu „ Við spiluðum á móti mjög góðu liði, þetta var erfitt fyrir okkur eftir að Senderos var rekinn út af en við vor- um einbeittir allan leikinn og lið- ið spilaði mjög vel.“ Mikið var talað um sölu Thierrys Henry frá Arsenal í sumar og spekingar töldu að liðið mætti illa við að missa hann, Ars- ene Wenger, þjálfari Arsenal, sýn- ir enn og aftur að hann hefur oftast rétt fyrir sér í sambandi við kaup og sölur og liðið virðist virka mjög vel eftir söluna á besta leikmanni liðs- ins undanfarin ár. Eftir þessa sterku byrjun á tímabilinu hjá Arsenal er liðið til alls líklegt og verður það án efa í titilbaráttunni í vetur ef liðið heldur áfram á þessari braut. Stefán Friðriksson Rekinn út af philippe senderos, varnarmaður arsenal, var rekinn af velli í leiknum. Maður leiksins Fabregas, maður leiksins, skorar annað mark arsenal í leiknum. Markaskorar markaskorararnir ánægðir með leik sinna manna. með boltann Skot að marki Skot á mark rangStöður hornSpyrnur aukaSpyrnur gul Spjöld rauð Spjöld áhorfendur: 60.114 arsenal portsmouth almunia, toure, Senderos, Silva, Clichy, rosicky, fabregas, flamini, hleb (denilson 61), Van persie (diaby 70), adebayor (eduardo 79). james, johnson, pamarot, distin, hreidarsson (kranjcar 46), lauren (pedro mendes 46), muntari, davis (nugent 61), taylor, utaka, kanu. maður leiksins Cesc Fabregas, Arsenal 53% 15 6 1 8 7 1 1 47% 18 8 2 5 13 2 0 3:1adebayor víti 8, fabregas 35, rosicky 59. kanu 60. Michael Owen skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmark fyrir New- castle sem vann Wigan 1–0: owen bjargaði newcastle Michael Owen kom sínu liði New- castle til bjargar gegn Wigan þegar hann skoraði sigurmarkið þremur mínútum fyrir leikslok. Wigan-menn spiluðu megnið af síðari hálfleiknum tíu eftir að Kevin Kilbane fékk rautt spjald. Gestirnir í Wigan lágu í skotgröf- unum í leiknum og leyfðu Newcastle að vera meira með boltann. Heima- menn sköpuðu sér nokkur fín færi en mættu Chris Kirkland, markverði Wigan, í banastuði. Owen, Obafemi Martins og Steve Taylor fengu allir fín færi í leiknum. Kilbane fékk beint rautt spjald þegar hann var sagður hafa lamið olnboganum í Alan Smith í skallaeinvígi. Í endursýningum sést hins vegar að hausinn á Kilbane fór í hausinn á Smith og því var þetta rang- ur dómur. Sigurinn var hins vegar verðskuldaður. Markið frá Owen kom eftir fallegan undirbúning frá Martins sem sendi hárnákvæma sendingu á kollinn á Owen sem skallaði í netið. „Þetta var frábært mark og í heild- ina mjög góð frammistaða hjá mín- um mönnum,“ sagði glaður Sam All- ardyce, stjóri Newcastle, eftir leikinn. „Við réðum lögum og lofum í leikn- um en okkur skorti heppni fyrir fram- an markið. Við klúðruðum nokkrum fínum færum og markvörður þeirra varði einnig nokkrum sinnum vel. Við vorum pirraðir að fara ekki inn í hálf- leikinn 2-0 yfir en vorum staðráðnir í að skapa okkar eigin heppni,“ bætti Allardyce við. Michael Owen var ánægður með sínar fyrstu 90 mínútur. Hann skoraði einnig í vikunni gegn Barnsley í deild- arbikarnum og var Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englands, á vellinum og hefur líklega brosað í kampinn við að sjá Owen skora. McClaren verð- ur líklega með Owen frammi á laug- ardaginn næsta gegn Ísrael í undan- keppni EM. „Það er alltaf gaman að spila 90 mínútur og skora sigurmarkið. Þess vegna er maður nú í þessu. Það er mikið búið að skrifa um að ég gæti ekki spilað heilan leik en það er bara kjaftæði. Hvort sem ég skora eða ekki skiptir það ekki máli. Ég hef getað spilað 90 mínútur lengi en einhvern veginn er það fast í huga margra að ég sé enn meiddur þótt ég hafi meiðst fyrir ári,“ sagði Owen. Chris Hutchings, stjóra Wigan, fannst rauða spjaldið á Kilbane vera strangur dómur. „Þetta var engin smáákvörðun. Ég var virkilega von- svikinn þegar dómarinn lyfti rauða spjaldinu. Dómarinn gerði sig sekan um mistök og þó nokkur skipti var það gegn okkur. Ég er stoltur af mín- um leikmönnum, en vonsvikinn að hafa ekki fengið neitt út úr leiknum.“ benni@dv.is Tveir góðir michael Owen og steve taylor léku vel gegn Wigan. Owen skoraði sigurmarkið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.