Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2007, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2007, Blaðsíða 10
Hann var skrýtinn fyrri hálfleikurinn á Víkingsvelli í gær. Víkingar byrj- uðu leikinn mun betur og voru lík- legri en Valsmenn til að skora fyrsta markið. Það tókst ekki hjá heima- mönnum en hins vegar tókst gest- unum það, ekki einu sinni heldur þrisvar. 0-3 í hálfleik og dagskránni svo gott sem lokið. Valsmenn héldu áfram að þjarma að heimamönnum og enduðu með því að skora 5 mörk á móti einu marki Víkings. Það eina sem skyggði á sigur Vals var meiðsli Helga Sigurðssonar sem virtist togna aftan í læri. Valsmenn spiluðu fast í byrjun og þannig þurfti sjúkralæknir Víkinga þrisvar að hlúa að sínum mönnum eft- ir harðar tæklingar gestanna. Gunnar Kristjánsson fékk dauðafæri sumars- ins en Gunnar er nú ekki þekktur fyrir sín þrumuskot með hægri fæti og sá fótur brást honum illilega á 18. mín- útu. Stóð þá nánast ofan í marki Vals en slöku skoti hans var bjargað hetju- lega af nafna hans Einarssyni. Þrjú mörk Vals á 13 mínútum Eftir fjörugar upphafsmínútur færðist ró yfir leikinn þó að barátt- an hafi áfram verið hörð. Á 29. mín- útu fengu Valsmenn tvö horn í röð og skoruðu úr því síðara. Þar var að verki téður Gunnar Einarsson. Ingvar Kaale fór í skógarferð í teignum, hitti ekki hornspyrnu Guðmundar Bene- diktssonar, og Gunnar stóð einn og óvaldaður og skallaði í netið. Þremur mínútum síðar skoraði Guðmundur sjálfur og var það gull af marki. Fiskaði aukasyrnu við víta- teigslínuna, sparkaði laust til Bjarna Ólafs sem stoppaði boltann og Guð- mundur hamraði boltann í stöng og inn. Frábært mark. Á 43. mínútu skoraði Baldur Að- alsteinsson fallegt en umdeilt mark. Líkt og Guðmundur fiskaði hann aukaspyrnu sem Víkingar voru skilj- anlega ósáttir við. Baldur sótti auka- spyrnuna, um það verður ekki deilt. Víkingar voru í óðaönn að stilla upp varnarveggnum og biðu eftir flauti dómarans, Sævars Jónssonar, sem kom aldrei og Baldur tók sénsinn, þrumaði í gegnum vegginn og í netið fór boltinn. 3-0 í hálfleik. Víkingar fengu færi, Valsmenn skora Fjórða markið skoraði Dennis Bo á 52. mínútu eftir sendingu Bald- urs Aðalsteinssonar. Sendingin var vissulega góð en varnarleikur Vík- inga var ekki til eftirbreytni. Víkingar neituðu þó að leggja árar í bát og þegar stundarfjórðung- ur var liðinn af leiknum fengu þeir tvö fín færi. Fyrst aukaspyrna Gunn- ars Kristjánssonar sem Kjartan varði og síðan átti Stefán Sveinbjörnsson frábært skot sem small í þverslánni. Skömmu síðar, eða á 63. mínútu, skoraði Egill Atlason fyrir Víking. Slapp þá í gegnum vörnina og skor- aði úr þröngu færi vinstra megin. Skotið var fast en vitur maður sagði eitt sinn að góðir markverðir eiga ekki að fá á sig mark á nærstöng. Valsmenn virtust slegnir út af laginu í smástund en hrukku aftur í gírinn góða og á 70. mínútu bitu þeir aftur frá sér. Pálmi Rafn nýtti sér mistök Milos og skoraði. Send- ing kom frá hægri og Milos ætlaði að skalla frá en ekki vildi betur til en að hann hrökk til Pálma sem þakk- aði pent fyrir sig og þrumaði fram- hjá Ingvari í markinu. Hafi færi Gunnars í fyrri hálfleik verið gott fékk hann keimlíkt í þeim síðari en aftur brást hægri fóturinn honum og nú bjargaði Barry Smith á línu. Erfitt framundan hjá Víkingum Valsmenn spiluðu á köflum stór- góðan fótbolta og það er ekki tilvilj- un að liðið er á þeim stað sem það er á. Vörnin var þétt með Atla Svein í fararbroddi, miðjan sterk þar sem Pálmi, Baldur og Bjarni skiptust á að sækja á meðan Sigurbjörn sinnti skítverkunum af stakri prýði og sóknarleikurinn, með hinn síunga Guðmund Benediktsson fremstan í flokki, var fersk og alltaf að búa eitt- hvað til. Merkilegt nokk voru Víkingar betri fyrstu tuttugu mínúturnar í leiknum. Eftir fyrsta markið hins vegar hrundi leikur liðsins eins og spilaborg. Liðið var seinheppið í leiknum og sjálfu sér verst. Gunnar Kristjánsson hefði átt að koma lið- inu yfir og hefur væntanlega sofið illa í nótt. Valsmenn spiluðu fast og Víkingar fundu svo sannarlega fyr- ir því. Margir leikmenn liðsins eru væntanlega með marbletti eftir við- ureign gærkvöldsins. Liðið situr í næstneðsta sæti deildarinnar þegar þrjár umferð- ir eru eftir, það leikur næst í Kefla- vík, svo gegn ÍA uppi á Akranesi og lokaleikurinn er gegn FH á heima- velli. Ef ekki á illa að fara þurfa Vík- ingar að hysja upp um sig buxurnar því getan er svo sannarlega til stað- ar, en trúin á verkefnið virðist lítil. Getumunurinn kom í ljós Bjarni Ólafur Eiriksson lék sinn besta leik með Valsmönnum í sum- ar. Hann var að vonum sáttur með úrslitin og spilamennskuna hjá sín- um mönnum. „Þetta var allt að því fullkominn leikur. Þeir voru kannski eitthvað sterkari í byrjun en heilt yfir var þetta mjög fínt hjá okkur. Það var mikil stöðubarátta og mér fannst þeir ekkert betri en við fyrsta hálftímann. En þegar leið á leikinn fannst mér getumunurinn koma í ljós. Annað markið kom tiltölulega snemma eftir fyrsta markið og svo það þriðja og það eiginlega drap þetta.“ Erfitt að afsaka 1-5 tap Grétar Sigfinnur Sigurðsson þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Hann var að vonum dauf- ur í dálkinn eftir leikinn. „Þetta hrundi náttúrulega hjá okkur sem er kannski skiljanlegt þar sem við fáum þrjú mörk á okkur með skömmu millibili. Mér fannst reyndar mjög lélegur dómur þarna í tveimur af þessum aukaspyrnum sem þeir fengu. Maður samt getur ekki afsak- að 5-1 tap með því að kenna dóm- aranum um.“ Grétar var sammála því að orðin ef og hefði gætu lýst leiknum vel. Ef Gunnar hefði nýtt færið í stöðunni 0-0, hefði dómar- inn ekki flautað aukaspyrnur og svo framvegis. „Algjörlega, þess vegna er svona súrt að fá á sig svona mörk þar sem dómarinn er greinilega að klúðra þessu. Það hlýtur að sjást í sjónvarpi. En svo valta þeir yfir okkur. Þeir eru með sjálfstraustið í botni og við þarna niðri, misstum mig og Hörð út af. Talandi um Hörð, kannski hefði Bjarni Ólafur átt að fá rautt fyrir tæklinguna sem hann tók á hann. Þetta var allavega mjög gróft.“ Grétar sagði að þó vissulega sé erfitt prógramm eftir fyrir Víking sé hann hvergi banginn. „Öll lið geta unnið alla og það hefur sannað sig bæði á síðasta ári og núna þannig að það þýðir ekkert að vera banginn.“ mánudagur 3. september 200710 Sport DV ÍÞRÓTTAMOLAR Emil byrjaði torino og reggina, lið emils Hallfreðssonar, gerðu 2-2 jafntefli í ítölsku a-deildinni í í gær. emil var í byrjunarliði reggina, en var tekinn af velli á 72. mínútu. reggina hefur 2 stig eftir 2 leiki, en Juventus og roma eru efst með 6 stig. Ísland Vann lúx Íslenska landsliðið í körfuknattleik karla sigraði Lúxemborgara með 89 stigum gegn 73 í b-deild evrópumótsins í Lúxemborg á laugardag. Heimamenn höfðu betur framan af og voru yfir í hálfleik 49-36. Íslendingar réðu lögum og lofum í síðari hálfleik og unnu öruggan 16 stiga sigur. Logi gunnarsson var stigahæstur Íslendinga með 21 stig en þeir Fannar Ólafsson og páll axel Vilbergsson komu næstir með 15 stig. ...En tapaði fyrir Hollandi Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta steinlá fyrir því hollenska á ásvöllum, 52-73, á laugardag. Þar með er ljóst að liðið á ekki lengur möguleika á að vinna riðilinn sinn í b-deild evrópu- keppninnar. Íslenska liðið byrjaði leikinn illa og lenti strax 4-18 undir og eftir það var á brattann að sækja. Helena sverrisdóttir var stigahæst í Íslenska liðinu með 12 stig. Hildur sigurðardóttir skoraði 11 róbErt skoraði siGurmarkið róbert gunnarsson tryggði gummersbach 24-23 sigur á minden í þýska handboltanum um helgina með marki tíu sekúndum fyrir leikslok. róbert skoraði fimm mörk en guðjón Valur sigurðsson var markahæstur í liði gummersbach með sex mörk. einar Örn Jónsson skoraði tvö mörk fyrir minden. Þá skoraði alexander petersson sex mörk fyrir Flensburg sem rúllaði yfir Wilhelmshaven, 35-25. einar Hólmgeirsson skoraði tvö mörk fyrir liðið. Haukar oG stjarnan mEistarar mEistaranna bikarmeistarar Hauka sigruðu Íslandsmeistara stjörnunnar í árlegum leik í meistarakeppni HsÍ í kvennaflokki. markahæstar í liði Hauka voru þær Hanna g. stefánsdóttir sem gerði 13 mörk, ramune pekarskyte með 8. Í liði stjörnunnar skoraði sólveig Lára Kjærnested 7 mörk og alina patrache 5. Í karlaflokki sigruðu bikarmeistar stjörnunnar Íslandsmeistara Vals með 26 mörkum gegn 25. markahæstir hjá stjörnunni voru björgvin Hólmgeirsson með 8 mörk en gunnar Ingi Jóhannes- son var með 5. Hjá Val var Fannar Friðgeirsson markahæstur með 7 mörk en arnór gunnarsson var með 5 mörk. Þetta voru tveir síðustu leikirnir sem stjarnan spilar í ásgarði en liðið mun spila heimaleiki sína í mýrinni héðan í frá. Sport 3 5 3 4 4 4 4 3 6 5 4 13 9 4 3 3 3 0 Ingvar Þór Kale Arnar Jón Sigurgeirsson Milos Glogovac Gunnar Kristjánsson Sinisa Kekic (75.) Grétar Sigurðarson (49.) Stefán Sveinbjörnsson Þorvaldur Sveinsson Hörður Bjarnason (20.) Jón Björgvin Hermannsson Höskuldur Eiríksson Kjartan Sturluson Barry Smith Gunnar Einarsson Atli Þórarinsson Sigurbjörn Hreiðarsson Helgi Sigurðsson (17.) Pálmi Pálmason Baldur Aðalsteinsson (80.) Rene Carlsen Bjarni Ólafur Eiríksson Guðmundur Benediktsson (78.) TÖLFRÆÐI SKOT Á MARKIÐ SKOT AÐ MARKI SKOT VARIN HORNSPYRNUR RANGSTAÐA GUL SPJÖLD RAUÐ SPJÖLD 18 10 8 8 1 3 0 1 5 VÍKINGUR VALUR (29.) Gunnar Einarsson, (32.) Guðmundur Benediktsson, Baldur Aðalsteinsson (43.), Dennis Bo Mortensen (52.), Pálmi Pálmason (71.) 5 6 7 8 8 6 9 8 6 7 9 VARAMENN: (20.) Egill Atlason 4, (49.) Valur Úlfarsson 4, (75.) Pétur Svansson VARAMENN: Leikmaður jónsson - X, Leikmaður Jónsson - X, Leikmaður Jónson - X (63.) Egill Atlason MAÐUR LEIKSINS: Pálmi Rafn Pálmason VÍkingAR Lágu Í VALnuM bEnEdikt bóas Hinriksson blaðamaður skrifar: benni@dv.is Valsmenn halda press- unni á FH-inga en liðið vann Víking 1–5 í gær á Víkingsvelli. Helgi sigurðsson meiddist í leiknum og óvíst með þátttöku hans gegn Spáni og Norður-Írlandi. númer þrjú dennis bo mortensen kom inn á í stað Helga sigurðssonar og skoraði mark númer þrjú. nautsterkur dennis bo mortensen kom ferskur inn á í stað Helga sigurðssonar.dV mynd stEfán @..hofundarmerking:<b>-<p>

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.