Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2007, Blaðsíða 20
mánudagur 3. september 200720 Sport DV
með boltann
Skot að marki
Skot á mark
rangStöður
hornSpyrnur
aukaSpyrnur
gul Spjöld
rauð Spjöld
áhorfendur: 26.881
blackburn
manchester city
friedel, emerton, Samba, nelsen,
Warnock, bentley, Savage
(kerimoglu 17), dunn, pedersen,
Santa Cruz (derbyshire 86),
mcCarthy (ooijer 63).
Schmeichel, Corluka, richards,
dunne, garrido, ireland (onuoha
70), johnson (mpenza 32),
hamann, petrov (geovanni 76),
elano, bianchi.
maður leiksins
Ryan Nelsen Blackburn
40%
17
8
12
6
25
3
1
60%
8
2
4
3
4
0
3
1:0mcCarthy 13.
manchester Unit-ed sigraði Sund-erland með einu marki gegn engu á Old Trafford. Sigur-markið gerði Lou-is Saha sem spilaði
sinn fyrsta leik á tímabilinu eftir erfið
meiðsli. Sunderland veitti Manchest-
er United harða mótspyrnu enda
þekkti Roy Keane vel til leikaðferðar
Manchester United eftir að hafa spil-
að þar í mörg ár.
Það var snemma ljóst að leikurinn
myndi verða erfiður fyrir Manchest-
er United. Sunderland lá til baka og
freistaði þess að beita skyndisóknum
en Manchester United hélt boltanum
langtímum saman án þess að ná að
ógna marki Sunderland nægilega til
þess að skora. Ekkert gekk fyrir fram-
an markið í fyrri hálfleik. Hlutirnir
fóru í raun ekki að gerast fyrr en Lou-
is Saha kom inn á í síðari hálfleik fyr-
ir Andersson sem spilaði sinn fyrsta
leik fyrir Manchester United en hann
var afar slakur. Saha breytti leikn-
um til hins betra og færin létu ekki
á sér standa. Tevez fékk meira pláss
til þess að athafna sig með tilkomu
Saha og Craig Gordon varði þrívegis
vel frá Paul Scholes, Chris Eagles og
Carloz Tevez á stuttum tíma. Sigur-
markið kom loks á sjötugustu mín-
útu þegar Louis Saha skallaði horn
Owen Heargreaves í netið.
Eftir það var aðeins spurningin
hvort mörkin yrðu fleiri en gestirn-
ir ógnuðu marki Manchester United
sjaldan.
Fyrir mark Saha var fátt um fína
drætti hjá Manchester United og
herbragð Sunderland ætlaði að virka
fullkomlega. Minna mæddi á Craig
Gordon í leiknum en menn ætluðu
fyrir leikinn en hann hefði getað gert
betur í markinu sem Sunderland
fékk á sig. Það er góðs viti að Louis
Saha stóð sig vel í þessum leik en lið-
ið hefur vantað bit í sóknarleikinn að
undanförnu þar sem Wayne Rooney
og Ronaldo hefur vantað. Þeir verða
þó væntanlega báðir til taks eftir hálf-
an mánuð þegar Manchester United
fer til Liverpool í heimsókn á Good-
ison Park.
Louis Saha var yfir sig ánægður
að vera kominn á knattspyrnuvöll-
inn á nýjan leik eftir erfið meiðsli.
„Núna veit ég nákvæmlega hvernig
maður á að koma í veg fyrir meiðsli.
Það geri ég með því að hlífa mér en
það vil ég ekki gera. Allir leikmenn
sem spila með Manchester United
spila af 100% krafti og ef ég meiðist
er það vegna þess að ég, líkt og aðrir
leikmenn liðsins, vil leggja mig fram
af fullum krafti.“ Það tók Manchester
United 72 míntútur að brjóta á bak
aftur varnarmúr Sunderland og Roy
Keane var vonsvikinn í lok leiksins.
„Það var gaman að koma hingað aft-
ur en úrslitin gera daginn verri. Ég
reyndi að hugsa ekki mikið um það
að ég væri að koma aftur á Old Traff-
ord. Aðdáendur Manchester United
hafa alltaf verið frábærir, jafnvel þeg-
ar ég var að valda öllum í klúbbnum
vonbrigðum þegar ég var leikmað-
ur stóðu áhorfendur á bak við mig.
En það sem stendur upp úr er tapið
því mér fannst eins og við værum að
fara að fá eitthvað úr leiknum,“ seg-
ir Keane. Þrátt fyrir að illa hafi geng-
ið undanfarnar vikur og liðið tapað
fjórum leikjum í röð lætur Keane það
ekki á sig fá. „Það hefði verið gaman
að vinna fjóra leiki í röð en við erum
sáttir við stöðu okkar í deildinni. Við
vissum að þetta myndi verða erfitt
enda hefur það komið á daginn,“ seg-
ir Keane.
Saha skorar
Louis saha var góður í leiknum
og skoraði sigurmarkið.
Blackburn er ósigrað í tíu leikjum í röð í ensku deildinni.
blackburn á siglingu
Leikurinn byrjaði fjörlega og fengu
bæði lið fín færi á fyrstu tíu mínút-
um leiksins. Benni McCarthy skor-
aði svo fyrsta og eina mark leiksins á
13. mínútu þegar hann fylgdi vel eftir
hornspyrnu og potaði boltanum yfir
línuna. Roque Santa Cruz átti skalla
sem Kasper Schmeichel, markvörður
City, hafði varið en McCarthy var rétt-
ur maður á réttum stað og skoraði.
Skömmu síðar fékk Richard Dunne
gula spjaldið sem átti eftir að reynast
honum dýrt spaug. Mike Dein dómari
veifaði gula spjaldinu sex sinnum og
því rauða tvisvar í leiknum. Almennt
álit ensku blaðanna var að hann hefði
átt slakan dag. Dunne hafði verið eins
og naut í flagi fram að því og meðal
annars straujað Robbie Savage sem
þurfti að yfirgefa völlinn. Hann fór frá
Ewood Park á hækjum og var á leið á
sjúkrahús að láta mynda löppina.
Dunne var áfram í miðju bardag-
ans og bjargaði á línu, þegar Morten
Gamst skaut úr hornspyrnu. Rétt fyr-
ir hlé vildu gestirnir fá víti þegar virt-
ist brotið á Rolando Bianchi en ekkert
var dæmt.
Heimamenn urðu fyrir áfalli þeg-
ar Tyrkjanum Tugay var vikið af velli
með tvö gul. Bæði fyrir peysutog. Tíu
mínútum síðar fór Richard Dunne
sömu leið. Tæklaði Santa Cruz og var
lítið annað hægt en að gefa honum
sitt annað gula spjald. Heimamenn
fengu síðan fín færi til að bæta við og
voru líklegri að gera það heldur en
gestirnir að jafna. Blackburn hefur
nú ekki tapað tíu leikjum í röð, sé síð-
asta tímabil einnig tekið með í reikn-
inginn. Liðið spilaði á köflum mjög
skemmtilegan fótbolta og það skyldi
enginn afskrifa þá. Hveitibrauðsdag-
ar Manchester City eru hins vegar á
enda og liðið þarf að hysja upp um sig
buxurnar.
„Mér fannst við frábærir,“ sagði
Mark Hughes, stjóri Blackburn.
„Við vorum klárlega fyrsta flokks.
Manchester City er mjög gott lið ef
það fær tíma á boltanum og við vor-
um einfaldlega ekki tilbúnir í það. Við
spiluðum góðan fótbolta og tökum
þessi þrjú stig fegins hendi.
Savage er ekki brotinn, hann fékk
á sig tæklingu þar sem hann brotnaði
í fyrra og þetta leit ekki vel út í byrjun
en það er allt í lagi með hann,“ sagði
kampakátur Hughes.
benni@dv.is
Kominn með tvö á tímabilinu
benni mcCarthy skoraði mark
blackburn í leiknum.
saha
sá um sunderland
Louis Saha spilaði sinn fyrsta leik fyr-
ir Manchester United og tryggði sigur-
inn gegn Sunderland með sigurmark-
inu í síðari hálfleik.
með boltann
Skot að marki
Skot á mark
rangStöður
hornSpyrnur
aukaSpyrnur
gul Spjöld
rauð Spjöld
áhorfendur: 75,648
manchester united
sunderland
Van der Sar, brown, ferdinand,
Vidic, evra, eagles (fletcher 66),
hargreaves, Scholes, nani
(o’Shea 84), anderson (Saha 46),
tevez
gordon, nosworthy, mcShane,
higginbotham, Collins,
leadbitter, yorke, etuhu (miller
82), Wallace (Stokes 82), Chopra,
jones (murphy 69)
maður leiksins
Owen Hargreaves Man. Utd.
63%
20
9
2
6
10
1
0
37%
6
0
0
0
7
2
0
1:0Saha 72
Lærifaðir og lærlingur
alex Ferguson og roy
Keane mættust í fyrsta
skipti á hliðarlínunni.