Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2007, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2007, Blaðsíða 7
DV Fréttir mánudagur 3. september 2007 7 Dansrá› Íslands | Faglær›ir danskennarar Borgartún 6 | 105 Reykjavík | sími 553 6645 | fax 568 3545 | dans@danskoli.is | www.dansskoli.is VI‹ BJÓ‹UM UPP Í DANS Innritun og uppl‡singar í síma 553 6645 e›a á dansskoli.is Mambó Tjútt Freestyle Break Salsa Brú›arvals Barnadansar Samkvæmisdansar Sérnámskei› fyrir hópa N‡justu tískudansarnir Börn – Unglingar – Fullor›nir Fulltrúar Landhelgisgæslunnar og Land- spítalans funda í dag vegna þyrlulækna: Fleiri þyrlulæknar kosta meiri peninga Fulltrúar Landspítala – háskóla- sjúkrahúss gengu á fund Landhelgis- gæslu Íslands á föstudagsmorgun til þess að ræða málefni lækna um borð í þyrlum Landhelgisgæslunnar. „Spítalinn og Landhelgisgæsl- an eiga í viðræðum þessa dagana um það hvort hægt sé að bæta við læknum á þyrluvaktirnar,“ segir Már Kristjánsson, sviðsstjóri lækninga á slysa- og bráðasviði Landspítalans. „Það þarf að leysa þetta mál en það kemur óhjákvæmilega til með að kosta peninga,“ segir hann. DV sagði frá því á miðvikudag að Friðrik Sigurbergsson, einn reynd- asti þyrlulæknir landsins, hygðist hætta störfum á þyrluvaktinni vegna óánægju með að tvær flugáhafnir væru á bakvakt hverju sinni en að- eins einn læknir. „Við þurfum einhvern veginn að endurskipuleggja okkar starf þannig að hægt verði að manna báðar vakta- línurnar,“ segir Már. Hann bendir á að þessi vandi hafi blasað við mönn- um þegar Bandaríkjaher yfirgaf land- ið og Landhelgisgæslan þurfti að stækka þyrluflotann. Enginn læknir var þó um borð í þyrlum Bandaríkja- hers. Már segir að um mönnun lækna í þyrlur Landhelgisgæslunnar gildi samningur milli spítalans, Landhelg- isgæslunnar og dómsmálaráðuneyt- isins. „Þegar þessi samningur var gerður var bara um að ræða lækni á eina þyrlu á vegum Landhelgisgæsl- unnar. Nú er staðan breytt og það þarf að finna flöt á þessu,“ segir Már. Hann segir að með uppsögn sinni sé Friðrik Sigurbergsson að lýsa afstöðu sinni til þeirrar stöðu sem nú sé uppi á teningnum. Friðrik sagði í samtali við DV að sér væri til efs að skynsamlegt væri að fara í þyrluleiðangra án lækn- is. „25 til 30 sinnum á ári lendum við í því að beita verulegum læknis- fræðilegum inngripum, til þess ann- aðhvort að bjarga lífi viðkomandi einstaklings eða koma í veg fyrir ör- kuml,“ sagði hann. sigtryggur@dv.is Gæsluþyrla Landhelgisgæslan og Landspítalinn eiga nú í viðræðum um hvernig manna skuli læknavaktir fyrir þyrlur Landhelgisgæslunnar. Alls hefur 49 fastráðnum flugmönnum verið sagt upp hjá Icelandair á árinu. Jóhannes Bjarni Guðmunds- son, formaður FÍA, segir ekki rétt að ástæðan sé skortur á leiguverkefnum. Flugmenn eru ósáttir við að Icelandair nýti sér ódýra starfskrafta erlendis og segi upp flugmönnum sem barist hafa fyrir sínum réttind- um. Atvinnuflugmenn ætla að kynna starfsemi starfsmannaleiga fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur í haust. FENGU UPPSAGNARBRÉFIÐ MEÐ RÁÐNINGARSAMNGNUM Alls hefur 49 fastráðnum atvinnuflug- mönnum verið sagt upp störfum hjá Icelandair, en ekki 25 eins og fram hefur komið. 24 flugmenn sem fengu fastráðningarsamning síðastliðið vor fengu uppsagnarbréf í sama umslagi og ráðningarsamninginn. Jóhannes Bjarni Guðmundsson, formaður Félags íslenskra atvinnu- flugmanna, segir flugmennina 24 reyndar hafa vitað það frá upphafi að um sumarstarf gæti verið að ræða, enda hafi það verið auglýst sem slíkt. „Ég get þó ekki annað en undrast þau orð Guðjóns Arngrímssonar að ástæðan fyrir þessum uppsögnum sé samdráttur í leiguflugi,“ segir hann. Hann vísar þarna til frétta frá því fyrr í sumar um að Icelandair væri að færa leiguverkefni dótturfélagsins Loftleiða til lettneska flugfélagsins Latcharter, sem einnig er í eigu Icelandair. Á fund með ráðherra Mikillar óánægju gætir meðal at- vinnuflugmanna með þá þróun að verkefni færist á hendur ódýrara vinnuafls. Starfsmannaleigur hafa ver- ið reknar í flugi um langt skeið. Í gegn- um þær hafa flugmenn með erlend skírteini unnið fyrir íslensk flugfélög á borð við Jetex og Air Atlanta. Þetta fer þannig fram að Flugmála- stjórn gefur út svokallaða fullgildingu á erlent flugskírteini. Með þessu móti geta flugmenn hvaðanæva úr heimin- um unnið fyrir félög með íslensk flug- rekstrarleyfi. Hópur meðlima í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna hefur pantað fund með Jóhönnu Sigurðardóttur félags- málaráðherra til þess að kynna þessa stöðu mála fyrir ráðherranum. Stéttarfélagið eflist Jóhannes Bjarni segir þróunina varasama. „Þetta skekkir samkeppnis- stöðu fyrirtækja á borð við Icelandair, sem þrátt fyrir allt reyna að fara eftir lögum og leikreglum,“ segir hann. Íslenskir atvinnuflugmenn telja að komast mætti hjá miklum hluta ár- legra uppsagna ef leiguverkefni yrðu ekki færð til Latcharter, eða ef þeir mættu vinna við þau verkefni sem fé- lagið tekur að sér. Viðræður milli Fé- lags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair um þetta hafa staðið frá því í júní. Síðast var fundað á föstudags- morgun. Kjarasamningar Félags ís- lenksra atvinnuflugmanna eru lausir um áramót og gert er ráð fyrir að málið verði tekið upp í samningaviðræðum. Bogi Agnarsson, flugstjóri og með- stjórnandi í Félagi íslenskra atvinnu- flugmanna, segir að nú sé unnið að því að styrkja félagið með því að sam- ræma samninga þeirra sem fljúga fyr- ir Air Atlanta og eitt sinn tilheyrðu Frjálsa flugmannafélaginu en nú FÍA. Engir skattar greiddir Þeir flugmenn sem rætt hefur verið við segja starfsmannaleigur í flugi ekki frábrugðnar starfsmannaleigum sem séð hafa um erlenda verkamenn við virkjunarframkvæmdir. Fyrir íslensk flugfélög vinni flugmenn og flugfreyj- ur sem séu hér á landi um lengri eða skemmri tíma. Þetta fólk þurfi að not- færa sér íslenska velferðarþjónustu án þess nokkurn tímann að greiða skatta eða tryggingargjald hér. Jó- hannes Bjarni segir að um tiltölulega nýjan vanda sé að ræða hér á landi, en vandamálið sé alþekkt víða um Evr- ópu. „Við erum með sterkt stéttarfélag á bak við okkur og vinnum auðvitað að því að hér sé farið að leikreglum.“ SiGtryGGur Ari JóhAnnSSon blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is Félag íslenskra atvinnuflug- manna Jóhannes bjarni guðmundsson segir að Félag íslenskra atvinnuflugmanna muni vinna gegn þeirri þróun að leiguverkefni séu færð frá fastráðnum flugmönnum og í hendur ódýrra starfskrafta hjá starfsmannaleigum. icelandair guðjón arngrímsson sagði í síðustu viku að ástæðan fyrir uppsögnum flugmanna væri slök staða í leiguverkefn- um. Þessu trúa flug- menn ekki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.