Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2007, Qupperneq 15
DV Sport mánudagur 3. september 2007 15
ArsenAl nálgAst toppinn
Hlað ehf. · Bíldshöfða 12 · Sími 567 5333
www.hlad.is
Hágæða ítalskar gervigæsir
4 gerðir gervigæsa og flotgæsir
Carrylite
Gervigæsir
Carrylite
Belletti spilaði sinn fyrsta leik fyr-
ir Chelsea eftir að hafa verið keypt-
ur frá Barcelona. En hjá Aston Villa
spilaði Zat Knight sinn fyrsta leik eft-
ir að hafa komið frá Fulham í síðasta
mánuði.
Fyrri hálfleikur var frábær
skemmtun og voru heimamenn
staðráðnir í að láta reyna á Bell-
etti í bakvarðarstöðunni og Ashley
Young keyrði á hann í sífellu. Bras-
ilíumaðurinn Beletti er hins vegar
eldri en tvævetur og stóð af sér öll
áhlaup Englendingsins unga. Chel-
sea sótti meira til að byrja með og
var nokkrum sinnum nálægt því að
skora fyrsta markið. Aston Villa var
samt ávallt inni í leiknum og Ga-
briel Abgonahour var nálægt því að
skora þegar hann sneri John Terry af
sér í teignum en skaut beint á Petr
Chech.
Zat Knight skorar í fyrsta
leiknum
Staðan í leikhléi var 0–0 og var það
í raun ótrúlegt þar sem liðin skiptust
á að fá færi allan hálfleikinn.
Síðari hálfleikur var einungis
tveggja mínútna gamall þegar nýi
leikmaðurinn Zat Knight skoraði
með skalla eftir hornspyrnu. Hann
reis yfir John Terry og skallaði knött-
inn af afli inn.
Chelsea menn brugðust við með
stórsókn en allar sóknir stöðvuðust
á varnarmönnum Villa. Sérstaklega
var Jacob Laursen öflugur í leiknum
og hélt hann aftur af Didier Drogba
sem reyndi mikið en lítið gekk hjá
honum.
Villa-menn virtust bíða eftir loka-
flautinu en pressan að marki þeirra
jókst jafnt og þétt.
Þannig þróaðist leikurinn allt þar
til Ashley Young braust upp kantinn
á 88. mínútu. Hann hljóp að marki
og átti slakt skot eða góða sendingu
í veg fyrir Abgonahour sem skoraði
með skoti úr teignum og staðan orð-
in 2-0 og sigurinn tryggður.
Heimamenn áttu sigurinn fylli-
lega skilið enda barðist liðið afar vel
í leiknum og tókst að mestu að halda
sóknarmönnum Chelsea í skefjum.
Spiluðum frábærlega
Martin O’Neill, framkvæmda-
stjóri Aston Villa, var að vonum
ánægður eftir leikinn. „Mér fannst
baráttan til fyrirmyndar. Við héldum
áfram þrátt fyrir að sumir leikmenn
hefðu verið orðnir dauðþreyttir.
Það var ákveðinn heppnisstimpill
yfir síðara markinu en við spiluðum
frábærlega frá upphafi til enda. Nú
erum við búnir að setja markið hátt
og með því að vinna svo frábært lið
eins og Chelsea er vitum við hvað
þarf til þess að standa okkur vel í
þessari deild,“ segir Martin O’Neill.
Jose Mourinho var að vonum
vonsvikinn eftir leikinn og fannst
sínir menn eiga meira skilið úr þess-
um leik. „Við byrjuðum leikinn afar
vel. Við spiluðum við gott lið en eftir
að við fengum á okkur mark í upp-
hafi senni hálfleiks breyttist leikur-
inn. Seinna markið finnst mér engu
skipta ef miðað er út frá leiknum í
heild sinni. Við áttum að vera búnir
að skora á síðustu tuttugu mínútun-
um og það hefði verið sanngjarnt ef
jafntefli hefði verið niðurstaðan.“
vidar@dv.is
Aston Villa sigraði Chelsea óvænt en verð-
skuldað á Villa Park í Birmingham.
ChelseA fékk á bAukinn
með boltann
Skot að marki
Skot á mark
rangStöður
hornSpyrnur
aukaSpyrnur
gul Spjöld
rauð Spjöld
áhorfendur: 37.714
Aston villA
ChelseA
Carson, mellberg, knight,
laursen, bouma, agbonlahor,
reo-Coker, barry, young, moore,
Carew (petrov 79).
mAður leiksins
Martin Laursen, Aston Villa
30%
10
5
1
2
17
4
0
70%
20
2
1
13
12
1
0
2:0knight 47, agbonlahor 88.
Cech, belletti, terry, alex, ashley
Cole, Wright-phillips (joe Cole
63), makelele (kalou 63), essien,
malouda, obi (pizarro 52),
drogba.
Knight Skorar
Zat Knight skoraði fyrra mark Chelsea.
Börðust eins og ljón
nigel reo Coker spilaði vel á
miðju aston Villa og hér tæklar
hann Florent malouda.