Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2007, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2007, Page 30
mánudagur 3. september 200730 Síðast en ekki síst DV Sandkorn n Á bloggsíðunni katrinsnae- holm.blog.is segir síðuhald- ari frá óhugnanlegri sögu af ósýnilegum vini þriggja ára sonar síns. Hann lék öllum stundum við strák sem hann kallaði Reyni. Ein- hverju sinni stóð Katrín við upp- vask. „Ég leit snöggt við og sá þá dreng standa við eldhúsborð- ið og horfa glettnislega á mig... hann var jafnraunverulegur og mín eigin börn.“ Fáeinum dögum síðar er hún að taka úr þvottavélinni og finnur þar húfu sem á stendur Reynir Ingi. Sonur hennar segir þetta húfu vinar síns, en enginn ná- granni, bekkjarfélagi né vinur kannast við nafnið eða húfuna. Stuttu seinna lauk vinasam- bandi þeirra Reynis en ástæð- una finnið þið á síðunni. n Plötusnúðurinn og ofurbar- þjónninn Óli Hjörtur hyggst leggja land undir fót. Kappinn, sem hefur rekið skemmtistað- inn Qbar undanfarna mán- uði og verið aðalmað- urinn á Prikinu um árabil, ætlar að halda út til Kaup- mannahafn- ar. Þar ætlar Óli að fara að vinna á Íslendingabarnum Jolene‘s bar sem er rekinn af Dóru Takefusa. Óli fer þó ekki án þess að kveðja vini sína og ætlar að halda dúndurkveðju- partí á Qbar áður en hann fer utan. n Íslenska kvikmyndin Astr- ópía hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur en nýver- ið var myspace-síða kvik- myndarinnar opnuð. Slóðin er myspace.com/astropia en þar má sjá umfjöllun og ljós- myndir úr kvikmyndinni en inni á síðunni má einnig finna myspace-síður hjá karakter- um úr myndinni, þeim Flóka og Pésa. Þeir sem skrá sig sem vini Astr- ópíu inn á myspace geta einnig átt von á glaðningi en nokkr- ir heppnir hljóta miða fyrir tvo á myndina eða geisladisk með tónlistinni úr myndinni. Hver er konan? „Ég er tuttugu og sjö ára, tveggja barna einstæð móðir.“ Hvar ólstu upp? „Ég ólst upp í Reykjavík, en mín- ar bestu, bestu æskuminningar eru frá Svíþjóð en þar dvaldi ég sumrin 1986 og 1987. Ég bjó svo síðar í Sví- þjóð í eitt ár þegar fósturpabbi minn var í framhaldsnámi. Ég tala sænsku eins og Svíi en það er ekki af því að ég er svo dugleg að fara þangað, til þess vinn ég allt of mikið, heldur er ég mjög dugleg við að sanka að mér Svíum og þannig viðheld ég sænsk- unni. Ég ber mjög sterkar taugar til landsins – ég elska Svíþjóð!“ Hvað drífur þig áfram? „Trúin á sjálfa mig og það sem ég er að gera. Orkumikið fólk og trúin á framtakssemi. Stöðnun er dauði!“ Hver eru áhugamál þín? „Nýi litli hundurinn minn og dýr almennt. Ég hef óbilandi áhuga á því sem ég geri og vinn mjög mikið. Ef ég er ekki að vinna hangi ég með börn- unum mínum, Dóróteu sem er sjö ára og Natani Birni sem er níu ára. “ Eftirminnilegasta bókin? „Þær bækur sem koma fyrst upp í hausinn á mér eru kennslubæk- ur mömmu en hún er ljósmóðir. Ég skoðaði mikið allar myndirnar sem voru í bókunum á meðan hún var í námi. Börn og fóstur eru mér mjög hugleikin og þaðan fæ ég mikinn innblástur. Fólki lítur lífið stundum sjálfsögðum augum.“ Eftirminnilegustu tónleikar? „Ég fór á Bjarkartónleika þeg- ar ég var, að mig minnir, tólf ára. Ég var bara saklaus lítil stelpa. Ég stóð fremst á tónleikunum fyrir miðju og var í sæluvímu. En svo leið yfir mig. Ég var dregin upp úr þvögunni og mér hent inn í eitthvað herbergi þarna baksviðs þar sem ég fékk að jafna mig. Þetta var mikil upplifun.“ Hverjir eru þínir áhrifavaldar? „Mamma vinkonu minnar, hún Magna Fríður Birnir, en sonur minn er einmitt skírður í höfuðið á henni. Hún er ótrúleg manneskja.“ Ferðast þú mikið innanlands? „Nei, alls ekki. Ég fór til Seyðis- fjarðar í sumar á hátíðina Lunga, en við í Nakta apanum hönnuðum boli fyrir hátíðina. Þetta var í fyrsta skipti sem ég kom á þennan landshluta. Ég bjóst ekki við því, en þessi staður er ótrúlegur. Þarna er fullt af listafólki og mikill kraftur. Það eru örfáir bæir á landinu sem eru svona sérstakir.“ Uppáhaldsflíkin? „Ég var að fá eina flík að gjöf. Hún er frá dönskum textílhönnuði sem hannar prjónaefni og hefur meðal annars hannað fyrir Henrik Vibskov. Hún gaf mér lambhúshettu með augu tígrisdýrs á hökunni. En ég get samt ekki notað hana eins mikið og ég vil, því það er kannski kjánalegt að fullorðin kona gangi með lamb- húshettu allan daginn. En ég prófaði að hafa hana bara á hálsinum og það er alveg að virka.“ Ef ekki hönnuður, hvað þá? „Þá væri ég að vinna í dýragarði.“ Hvaða þýðingu hefur það fyrir ykkur að hanna fyrir H&M? „Þetta er mikil viðurkenning fyr- ir okkur. Virkilega spennandi og skemmtilegt. Svo er þetta vissulega frábær auglýsing.“ Hvað væri það skemmtilegasta sem gæti komið fyrir þig þessa dagana? „Að milljón mundi detta ofan á hausinn á mér. Ég mundi nota hana til þess að borga flugmiða til út- landa, framleiðslu og sitthvað fleira. Ég mundi klára hana á tveimur dög- um.“ Hvað er fram undan? „Ég er að fara til San Diego og svo til Parísar að sýna. Svo fer að stytt- ast í Airwaves-hátíðina en fyrir hana erum við að hanna boli og fleira. Þessi helgi er að mínu mati besti tími ársins. Eiginlega bara eins og jólin.“ MAÐUR DAGSINS NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ DV Á DV.IS DV er aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr. á mánuði Stöðnun er dauði Sara María Eyþórsdóttir, hönnuður og annar eigenda verslun- arinnar nakta apans og Forynju, stendur í stórræðum. nakti apinn, hljómsveitin steed Lord og grafíski hönnuðurinn siggi eggerts eru öll að hanna mynstur og myndir á heila fatalínu. Davíð Oddsson á það sameigin- legt með Björgólfi Guðmundssyni að vera hátt settur banka- maður... Björgólfur Guðmundsson á það sameigin- legt með Elton John að hafa átt breskt knattspyrnu- lið... Elton John á það sameiginlegt með Bubba Morthens að hafa skemmt í afmælisveislu í frystigeymslu... Bubbi Morth- ens á það sameiginlegt með Sigríði Beinteinsdóttur að hafa átt Range Rover af fínustu gerð... Sigríður Beinteinsdóttir á það sameigin- legt með Páli Óskari Hjálmtýssyni að hafa keppt í Eurovision... Páll Óskar Hjálmtýsson á það sameiginlegt með Jóni Ásgeiri Jóhannessyni að hafa smekk fyrir flottum fötum... Jón Ásgeir Jóhannesson á það sameiginlegt með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að hafa orðið sundurorða við Davíð Oddsson. Tengsl Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á það sameiginlegt með Davíð Oddssyni að hafa verið utanríkisráðherra... Í DAG Á MORGUN HINN DAGINN Veðrið +12 4 +96 +11 2 +9 4 +10 7 +12 4 +15 5 +10 5 +12 4 +10 4 +12 9 +16 6 +9 13 +8 5 +10 6

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.