Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2007, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2007, Síða 2
„Efnin fundust utandyra. Hann kann- ast ekki við að eiga þau,“ segir Jón Eg- ilsson, lögmaður Jóns „bónda“ Gunn- arssonar kraftlyftingamanns sem var handtekinn á fimmtudag eftir að sterar fundust í garðinum hjá honum en var sleppt að lokinni yfirheyrslu. „Hann skilur ekkert í því af hverju þetta ætti að vera þarna,“ segir Jón Egilsson. Hundruð steraskammta Karl Steinar Valsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn staðfestir að lagt hafi verið hald á mikið magn af sterum í töfluformi og vökvahylkjum, sam- tals einhver hundruð töflur og hylki. Málið er enn á frumstigi og eru efnin í nánari skoðun. Jón Egilsson segir að garðurinn sé öllum opinn og við fjölfarna braut. Jón bóndi kraftlyftingamaður býr í raðhúsi og aðspurður segist Jón Eg- ilsson telja að garðurinn sem um ræðir tilheyri Jóni bónda einum. Jón bóndi er þekktur meðal áhugamanna um kraftlyftingar, hann hefur keppt í þeim áratugum saman og unnið til fjölda verðlauna. Hann er mörgum kunnugur sem rekstrar- aðili líkamsræktarstöðvarinnar Gym 80 við Suðurlandsbraut. Jón hefur lengi starfað sem einkaþjálfari og á einnig að baki góðan árangur í vaxt- arrækt. Sviptur heimsmeistaratitli Í október í fyrra varð hann heims- meistari í kraftlyftingum þegar hann keppti í flokki öldunga á heims- meistaramóti á vegum Alþjóðakraft- lyftingasambandsins sem haldið var í Texas í Bandaríkjunum. Jón varð einnig heimsmeistari í sama flokki árið áður. Í fyrra féll hann þó á lyfja- prófi og var sviptur heimsmeistara- titlinum. Jón hafði áður fallið á lyfjaprófi þegar hann keppti á heimsmeist- aramóti í kraftlyftingum í Austur- ríki 1996. Þar sem fall hans í fyrra var túlkað sem endurtekið brot var hann úrskurðaður í ævilangt keppn- isbann. Síðan þá hefur honum ekki verið heimilt að keppa á mótum sem tengjast Alþjóðakraftlyftingasam- bandinu eða Ólympíuhreyfingunni, jafnvel þótt um aðrar íþróttagreinar en kraftlyftingar sé að ræða. Jón get- ur eftir sem áður keppt á mótum þar sem lyfjapróf eru ekki við lýði. Formaður Kraftlyftingasambandsins Jón bóndi starfaði um tíma sem formaður Kraftlyftingasambands- ins en sagði af sér í febrúar eftir að rúmlega þrjátíu þúsund steratöflur og vökvahylki fundust á heimili hans og fleiri stöðum. Um er að ræða einn stærsta sterafund hér á landi. Jakob Baldursson, núverandi for- maður Kraftlyftingasambands Ís- lands, segir Jón ekki lengur meðlim í félaginu en þeir sem fallið hafa á lyfjaprófi mega hvorki starfa innan þess né Íþróttasambands Íslands. Jón tók þó þátt í aflraunakeppni á árshátíð Kraftlyftingasambandsins í sumar og bar sigur úr býtum. Við vinnslu fréttarinnar náðist ekki í Jón Gunnarsson. þriðjudagur 23. október 20072 Fréttir DV Veiða 60 þúsund tonn af loðnu Erlendum skipum verður heimilað að veiða um 50 þúsund tonn af loðnu í íslenskri lögsögu á veiðitímabilinu milli 2007 og 2008. Norskum skipum er heimilað að veiða rúm 39 þúsund tonn en veiðarnar mega mest stunda 25 skip í einu en veiðitímabili norsku skipanna lýkur þann 15. febrúar. Færeyskum skipum er heimilað að veiða alls 10.250 tonn og mega mest tíu skip stunda veiðarnar í einu. Þá mega grænlensk skip veiða alls 10.164 tonn. Færeysku skipunum verður heimilt til 15. febrúar að ráðstafa tveimur þriðju aflans til manneldisvinnslu utan Íslands eða um borð í veiðiskip- unum. InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Umhverfismat er skylda Skipulagsstofnun skyldar sveit- arfélagið Ölfus til að framkvæma umhverfismat við deiliskipulags- breytingar vegna fyrirhugaðra framkvæmda við stækkun Hellis- heiðarvirkjunar. Að mati stofnun- arinnar eru lögin skýr í þessum efnum. Sveitarfélagið fór fram á að stofnunin endurskoðaði afstöðu sína þar sem um óverulegar breyt- ingar á skipulagi væri að ræða sem hefðu ekki áhrif á heildaráhrif virkjunarinnar á umhverfi hennar. Á það var ekki fallist og sveitarfé- laginu gert skylt að framkvæma umhverfismatið. Hægt er að kæra úrskurðinn til umhverfisráðherra innan mánaðar. Metfjöldi brautskráðra Aldrei hafa fleiri nemend- ur útskrifast úr framhalds- og menntaskólum landsins en á síð- asta skólaári. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Brautskráðum háskólanem- endum fjölgaði um tæplega 500, eða nærri 16 prósent, frá árinu áður. Aldursdreifing nemenda var frá 19 og upp í 75 ára. Hlut- fallslega fjölgaði framhalds- skólanemendunum um tæpt prósentustig. Metfjöldi var hjá nemendum sem luku meistara- gráðu en nemendum fjölgaði um 41 prósent milli ára. Þá hafa heldur aldrei fleiri nemendur út- skrifast með doktorspróf. Átak vegna áfengisneyslu Hjálparsími Rauða kross Íslands stendur nú fyrir átaki sem helgað er leiðum til bata vegna áfengis- og fíkniefna- neyslu. Árlega berast allt að 17 þúsund símtöl til Hjálparsím- ans 1717. Símtöl tengd neyslu voru tæplega þúsund í fyrra. Mest var hringt vegna eigin neyslu en einnig vegna neyslu nákominna svo sem maka, for- eldra eða barna. Hjálparsíminn efnir til átaks tvisvar á ári þar sem athygli er vakin á málaflokkum sem snerta hjálparstarfið beint. Rætt var um staðfesta samvist samkynhneigðra á Kirkjuþingi: Ómaklega vegið að kirkjunni „Mér fannst umræðan vera mjög góð og gagnleg og mér sýnist tölu- verður samhljómur vera um að breyta lögum um staðfesta samvist,“ segir Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís- lands. Karl flutti á Kirkjuþingi sem nú stendur yfir tillögu til þingsálykt- unar um Þjóðkirkjuna og staðfesta samvist. Í tillögunni var lögð áhersla á að staðið yrði áfram við hefðbund- inn skilning Þjóðkirkjunnar á hjóna- bandinu og því ekki gert ráð fyrir að samkynhneigðir einstaklingar geti gengið í hjónaband. Prestum verði hins vegar heimilt að staðfesta sam- vist samkynhneigðra. Verði lögum breytt munu prestar fá heimild til að staðfesta samvist tveggja einstakl- inga og mun Kirkjuþing þá virða samviskufrelsi presta. „Ef þessi lög verða staðfest mun Kirkjuþing veita heimild til þess að prestar Þjóðkirkjunnar annist það að staðfesta samvistina. Það var ágætur samhljómur á þinginu um þetta. Það kemur líka fram í þessari tillögu að álit kenningarnefndar, sem rætt hef- ur verið í kirkjunni, verði samþykkt af hálfu Kirkjuþings. Kirkjuþing ítrekar það að áfram verður staðið við hefð- bundinn skilning á hjónabandinu sem sáttmála karls og konu. Þarna verður þá um að ræða tvö hliðstæð sambúðarform.“ Karl segir að kirkjan hafi ver- ið beitt miklum þrýstingi og mörg ómakleg orð hafi fallið í umræð- unni undanfarin ár. Kirkjan hafi verið gagnrýnd fyrir afturhalds- semi. Sannleikurinn sé hins veg- ar sá að með tillögunni er verið að ganga töluvert lengra en í öðrum nágrannalöndum. „Orðræðan hefur verið mjög neikvæð í garð kirkjunn- ar í þessum efnum. Hún hefur ver- ið ásökuð fyrir að standa í vegi fyr- ir þróun þessara mála. Ég hef ekki verið sáttur við þá orðræðu sem ég tel hafa verið mjög ómaklega. Ég tel að okkar kirkja hafi tekið vel á móti fólki og hún mun áfram gera það.“ einar@dv.is Kirkjuþing umræðan á kirkjuþingi í gær var góð og gagnleg, segir karl Sigurbjörns- son, biskup Íslands. Jón „bóndi“ Gunnarsson, fyrrverandi heimsmeistari í kraftlyftingum, var handtek- inn eftir að sterar fundust í garðinum hans. Þrjátíu þúsund steratöflur og vökvahylki höfðu áður fundist á heimili Jóns bónda en hann segist ekkert kannast við sterana sem fundust undir sólpallinum í garðinum hans í síðustu viku. „efnin fundust utan- dyra. Hann kannast ekki við að eiga þau.“ Erla HlynSdóttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is STERAR Í BAKGARÐINUM Jón „bóndi“ Gunnarsson jón var sviptur heimsmeistaratitli eftir að hann féll á lyfjaprófi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.