Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2007, Qupperneq 4
þriðjudagur 23. október 20074 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Kastaði kókaíni
úr bíl á ferð
Lögreglan á Akranesi stöðv-
aði á föstudagskvöld bifreið í
venjubundnu eftirliti. Aðrir
lögreglumenn
á óeinkenndri
bifreið fylgdust
með úr fjarlægð
þegar bifreið-
inni var gefið
stöðvunar-
merki. Þeir
komu auga á
hönd sem var
stungið út um
afturglugga á bifreið-
inni og hvítu skýi sem þyrlað-
ist út í loftið. Í fyrstu kannað-
ist enginn í bifreiðinni við neitt
misjafnt en þegar lögreglumenn
höfðu safnað saman efni sem sat
á bifreiðinni og gert á því efna-
greiningu viðurkenndi farþegi í
aftursætinu að hann hefði losað
sig við kókaín.
Með 11 grömm
af amfetamíni
Lögreglan á Akranesi
stöðvaði á laugardag
ökumann bif-
reiðar sem
grunaður var
um akstur
undir áhrif-
um fíkni-
efna. Grunur
lögreglu reyndist
á rökum reistur en
ökumaðurinn reyndist vera
með liðlega ellefu grömm af
amfetamíni í fórum sínum.
Við yfirheyrslu viðurkenndi
maðurinn að eiga efnin og að
hafa neytt fíkniefna áður en
akstur hófst. Þá tók ölvað-
ur næturhrafn upp á því að
mölva glerflösku í götu fyrir
framan lögreglubíl aðfaranótt
sunnudags. Hann var um-
svifalaust færður á lögreglu-
stöð og má búast við sektum
fyrir brot á lögreglusamþykkt.
Brotist inn
í gróðurhús
Lögreglan á Selfossi hafði í
nógu að snúast í síðustu viku.
Meðal þess sem lögreglan fékk
inn á borð til sín var þjófnaður úr
gróðurhúsi í Hveragerði aðfara-
nótt miðvikudags. Brotist var inn
í tvö hús og úr öðru húsinu var
stolið átta gróðurhúsalömpum
en þremur úr hinu. Slíkir lampar
eru gjarnan notaðir til að rækta
kannabisplöntur. Þá fótbrotnaði
maður í Vaðnesi þegar tréplanki
slóst í fót hans er hann og félagar
hans voru að losa bifreið úr festu.
Stal fötum
Brotist var inn í fataversl-
unina Click á Eyrarvegi 35 á
Selfossi í fyrrinótt.
Öryggisvörður frá Securitas
kom að versluninni snemma í
gærmorgun og kom auga á að
rúða hafði verið brotin í versl-
uninni. Við nánari athugun
kom í ljós að farið hafði verið
inn í verslunina og rótað til í
fatnaði. Töluverðu magni af
fatnaði var stolið úr verslun-
inni ásamt sjóðsvél. Ekki ligg-
ur fyrir hver þarna var að verki
en hans er nú leitað.
VONANDI EKKI NJÓSNIR
„Ég vil ekki trúa því að hér sé á ferð-
inni einhvers konar njósnaforrit þar
sem okkur er ekki treyst til að vinna
okkar vinnu,“ segir Þorgerður L.
Diðriksdóttir, formaður Kennara-
félags Reykjavíkur. Hún furðar sig á
nýju tímaskráningarkerfi Reykjavík-
urborgar.
Ríflega átta þúsund starfsmönn-
um Reykjavíkurborgar verður gert
skylt að stimpla sig í og úr vinnu þeg-
ar lokið verður við að innleiða nýtt
viðverukerfi. Kerfið heitið Vinnu-
Stund og heldur utan um tíma- og
fjarvistarskráningar starfsmanna.
Búið er að innleiða kerfið hjá flest-
um stofnunum borgarinnar, þessa
dagana er verið að koma því fyrir í
leikskólum og næstir í röðinni eru
grunnskólarnir.
Hafist var handa fyrir rúmu ári og
er áætlað að viðverukerfinu verði að
fullu komið fyrir síðla næsta árs. Um
er að ræða kerfi þar sem starfsmenn
borgarinnar hringja inn mætingu
og hið sama á við þegar vinnu lýkur
dag hvern. Á vefsvæði VinnuStundar
geta notendur fylgst með skráning-
um sínum og gert leiðréttingar ef á
þarf að halda.
Leysir klukkuna af hólmi
Anna Helgadóttir, launafulltrúi
á starfsmannaskrifstofu Reykjavík-
urborgar, hefur umsjón með inn-
leiðingu viðverukerfisins sem hún
segir ætlað í allar stofnanir borgar-
innar. Hún segir kerfið leysa af gömlu
stimpilklukkuna. „Þetta er heilmik-
ið batterí hjá okkur. Þegar eintakl-
ingur mætir í vinnuna eða yfirgefur
vinnustaðinn hringir viðkomandi úr
borðsíma úr vinnu sinni og tilkynn-
ir viðveruna. Þannig er fylgst með
mætingunni og þetta kemur í stað
stimpilklukkunnar,“ segir Anna.
Þorgerður er undrandi yfir því
að heyra skyndilega að innleiða eigi
kerfið í grunnskólana. Hún bendir
á að engin umræða hafi farið fram
með kennarastéttarinni um mál-
ið. „Þetta er eldfimt mál. Ég undr-
ast þá staðreynd að viðverukerfið
hefur ekki verið nokkurn skapaðan
hlut í umræðunni. Það hefur engan
veginn verið leitað álits hjá stéttinni
eða félaginu. Einhvern veginn hefur
þetta verið unnið í þegjanda hljóði
og skólarnir eru bara næstir,“ segir
Þorgerður.
Von á óánægju
Anna segir innleiðingu Vinnu-
Stundarinnar ganga vel hjá Reykja-
víkurborg og að unnið sé eftir
nákvæmri áætlun. „Við heyrum al-
menna ánægju með kerfið, enda hef-
ur það bara kosti í för með sér. Sam-
kvæmt áætlun er gert ráð fyrir því að
kerfið fari í grunnskólana eftir ára-
mót. Það fara allir starfsmenn borg-
arinnar inn í nýja viðverukerfið, það
er bara svoleiðis,“ segir Anna.
Aðspurð telur Þorgerður mikil-
vægt að kennarar, sem og aðrir, átti
sig á vinnutíma sínum og segir hún
stéttina opna fyrir því að sýna fram
á sína vinnu. Hún segir óánægju
kennara á Akranesi, þar sem stimpil-
kerfi hefur verið reynt, tala sínu máli
og á ekki von á því að kerfinu verði
tekið með fagnaðarópum í grunn-
skólunum. „Við viljum vita hver er
raunveruleg ástæða fyrir því að taka
í notkun stimpilkerfi í grunnskólum.
Það liggur fyrir að vinnutími kennara
er alls ekki staðbundinn að öllu leyti
og hef ég áhyggjur af því að svona
kerfi geti ekki mælt alla vinnu kenn-
ara. Ef kerfinu er hins vegar ætlað
að halda utan um allar vinnustund-
ir kennara og greiða yfirvinnu fyrir
umframstundir fagna ég því að sjálf-
sögðu þar sem það liggur alveg ljóst
fyrir að kennarar vinna langt um-
fram það sem þeir fá borgað fyrir,“
segir Þorgerður.
TrausTi hafsTeinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„ef kerfinu er hins vegar ætlað að halda utan um
allar vinnustundir kennara og greiða yfirvinnu
fyrir umframstundir fagna ég því að sjálfsögðu
þar sem það liggur alveg ljóst fyrir að kennarar
vinna langt umfram það sem þeir fá borgað fyrir.“
Eftir áramót verður stimpilkerfi komið fyrir í öllum grunnskólum
Reykjavíkurborgar þar sem kennarar þurfa að hringja inn viðveru
sína og fjarvistir. Þetta er liður í innleiðingu viðverukerfis í allar
stofnanir borgarinnar sem lýkur síðla næsta árs. Þorgerður
L. Diðriksdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur,
vill ekki trúa því að hér sé á ferðinni
njósnaforrit.
stimpilkerfi væntanlegt eftir
áramót verður viðverukerfi borgarinnar
innleitt í grunnskólana og þá þurfa
kennarar að stimpla sig í og úr vinnu.
n „Karl er alveg hreint með eindæmum
glöggur og vel lesinn maður,“ segir Hjálm-
ar Jónsson, dómkirkjuprestur. „Hann
hefur að sjálfsögðu mjög skýra sjón á
kirkjumálin. Hann er strangheiðarlegur og
alveg hreint leiftrandi húmoristi. Þeir þættir
þurfa þó stundum að víkja.“
n „Hans helstu kostir eru þeir að hann virðist vera
staðfastur og trúr hagsmunum þeirrar stofnunar sem
hann leiðir,“ segir Hjörtur Magni Jóhannsson, fríkirkju-
prestur.
n „Kostir Karls biskups eru margir. Hann hefur ótrúlegt
minni á fólk, stað og stund,“ segir Steinunn Arnþrúð-
ur Björnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Biskupsstofu. „Þetta
er ótvíræður kostur fyrir biskup sem þarf marga að hitta,
meðal annars á vísitasíum um landið. Hann er lestrarhestur
og fylgist afar vel með og virðist muna allt sem hann hefur
einhvern tíma lesið. Hann er hamhleypa til verka og yfirleitt
fljótur að ganga í verk. Mér finnst alltaf jafnótrúlegt hvað
hann kemst yfir að skrifa fyrir utan það sem beint heyrir til
vinnunni. Þarna á ég til dæmis við bækur sem hann hefur
skrifað, þýtt eða tekið saman. Karl er einnig mikill húmoristi
og þess njótum við sem vinnum með honum,“ segir Steinunn.
n „Hann á það til að vera býsna fastur fyr-
ir, sem þykir oft að vísu vera góður kostur,“
segir Hjálmar Jónsson. „Hann þarf samt
stefnufestu í því starfi sem hann sinnir
og ég held að það sé enginn sem myndi
standa sig betur í starfi
biskups en einmitt hann.“
n „Eins og hann er trúr og stað-
fastur hagsmunum þeirrar stofunar sem
hann leiðir, þá virðir hann hvorki svars né
viðlits málflutning þeirra sem hafa aðra
sýn en hann eða eru á öndverðum meiði.
Það myndi ég segja að væri hans stærsti
galli,“ segir Hjörtur Magni Jóhannsson,
prestur Fríkirkjunnar í Reykjavík, sem hef-
ur áður gagnrýnt Þjóðkirkjuna.
n „Hans helsti galli er kannski sá að hann
kann ekki að segja nei við verkefnum og
vinnur of mikið. Það getur valdið bæði
þreytu og haft áhrif á heilsufar,“ seg-
ir Steinunn Arnþrúður, verkefnisstjóri
samkirkju- og upplýsingamála hjá Bisk-
upsstofu, um biskup Íslands.
Karl SigurbjörnSSon, biSKup ÍSlandS DEBET OG KREDIT
Biskup Íslands karl Sigurbjörnsson þykir
mjög glöggur en er að sama skapi mjög
fastur fyrir sem stundum er galli.