Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2007, Page 11
DV Fréttir þriðjudagur 23. október 2007 11
Aðstoðarborgarstjóri Delí á Ind-
landi lést af áverkum sem hann fékk
í kjölfar átaka við villta apa. Áverk-
ana hlaut Sawinder Jeet Singh Baj-
wa aðstoðarborgarstjóri þegar hann
féll niður af svölum húss síns þegar
hann reyndi að reka hóp apa á brott.
Apar hafa lengi verið stórt vanda-
mál í borginni, en þeir verða sífellt
árásargjarnari og öruggari með sig.
Aparnir ráðast inn í hof borgarinn-
ar og láta þar greipar sópa um mat-
væli auk þess sem þeir vekja ótta hjá
þeim sem sækja hofin heim. Talið er
að þeir apar sem réðust inn á heimili
aðstoðarborgarstjórans hafi komist í
gegnum nærliggjandi hof og upp á
svalirnar þar sem hann sat í mak-
indum og las í dagblaði.
Lausn ekki í sjónmáli
Aparnir hafa hingað til búið í
skógunum umhverfis Delí, en eft-
ir því sem skógarnir minnka eykst
ásókn þeirra í borgina. Árið 2004
brutust apar inn í varnarmálaráðu-
neytið og rifu í tætlur leyniskjöl.
Sama ár fyrirskipaði hæstiréttur
landsins að aparnir yrðu fjarlægð-
ir úr borginni. Öpunum var smal-
að saman og komið fyrir í „apafang-
elsum“ þar til dýraverndunarsinnar
kvörtuðu yfir meðferðinni á dýrun-
um. Þá var ekið með apana í nær-
liggjandi héruð og þeim sleppt þar
í skóglendi. En allt kemur fyrir ekki
og í síðasta mánuði kom næstum
til lokunar flugvallarins í borginni
því apar komust í gegnum gat á
þaki flugstöðvarinnar og inn á ör-
yggissvæðið. Sérfræðingar segja að
eina leiðin til að halda öpunum frá
borginni sé að nota stærri apa til
að hræða þá. Eftirspurn eftir stærri
öpum er nú svo mikil að eigendur
þeirra mala gull og anna vart eftir-
spurn.
Aðstoðarborgarstjóri Delí lést af völdum áverka sinna:
Benazir Bhutto hefur beðið bresk
og bandarísk stjórnvöld um aðstoð
við rannsókn á sprengjutilræðinu
sem beint var gegn bílalest hennar
í síðustu viku. Þar var um að ræða
tvær sprengingar sem kostuðu eitt
hundrað og fjörutíu manns lífið og
sagði Bhutto í viðtali við dagblaðið
The Times að hún hefði enga trú á
opinberri rannsókn í Pakistan. Hún
skellti skuldinni á „öfl innan rík-
isstjórnarinnar“, en ekki á Pervez
Musharraf forseta. Bhutto sagðist
hafa rætt við sendiráðsfulltrúa ým-
issa landa, þar á meðal Bretlands,
þar sem hún óskaði „óháðrar og
hlutlausrar rannsóknar á öllum
þáttum tilræðisins“.
Bhutto hefur gefið Musharraf
forseta upp nöfn þriggja embættis-
manna sem hún telur að vilji hana
feiga og hafi áformað tilræði við
líf hennar, en hún hafi ekki viljað
varpa skugga á samband sitt við rík-
isstjórnina með því að gera nöfnin
opinber.
Setti stuðningsmenn í hættu
Benazir Bhutto aftók með öllu að
hún hefði gert mistök með því að láta
móttöku stuðningsfólks síns vara alla
vegalengdina frá flugvellinum inn í
hjarta Karachi, eða um sextán kíló-
metra vegalengd. Áætlað er að um
milljón manns hafi fagnað Bhutto
þegar hún sneri heim í skugga ásak-
ana um spillingu, eftir átta ára útlegð.
Þrátt fyrir að Bhutto hafi notið sam-
úðar í kjölfar tilræðisins hefur orð-
ið vart gagnrýni á ákvörðun henn-
ar vegna móttökunnar, sem hafi sett
stuðningsmenn hennar í hættu, svo
ekki sé minnst á hana sjálfa, vegna
sprengjutilræðisins sem hún sagði
að henni hefði borist vitneskja um.
Tólf hengdir í Íran
Tólf manns voru teknir af lífi með
hengingu í Íran. Níu manns, þar á
meðal ein kona, voru teknir af lífi í
fjöldaaftöku í Evin-fangelsinu í Teh-
eran og þrír voru hengdir í borginni
Shiraz á þeim stað sem þeir frömdu
glæpi sína sem voru nauðgun. Sakar-
giftir voru morð og nauðganir. Konan
var fundin sek um morð á vinnuveit-
anda sínum árið 2001. Afar sjald-
gæft er að konur séu teknar af lífi í
landinu. Yfirvöld í Íran hafa, að sögn
mannréttindasamtakanna Amnesty
International, tekið tvö hundruð og
tíu af lífi það sem af er þessu ári, sam-
anborið við eitt hundrað sjötíu og sjö
árið 2006.
TALDI SIG EIGA SIGURINN VÍSAN
Vatikaninu og sökuð um andgyð-
inglegan áróður. Kaczynski lofaði
stöðina sem uppsprettu „velferð-
ar og vonar“ og varaði við því að
„árás á Radio Maryja væri árás á
frelsi“.
Eitt sinn var Kaczynski spurður
hvaða augum hann liti Þýskaland,
nágranna Póllands. Hann svaraði:
„Það eina sem ég þekki til í Þýska-
landi eru salernin á flugvellinum í
Frankfurt og það nægir mér.“
Donald Tusk, andstæðingur
Jaroslaws Kaczynski, lýsti því 12.
október í ár þegar hann, snemma
á tíunda áratug síðustu aldar, hitti
Kaczynski í lyftu í pólska þinghús-
inu. Þá dró Kaczynski upp byssu
og sagði: „Það er jafnauðvelt fyrir
mig að drepa þig og hrækja á þig.“
Jaroslaw Kaczynski hafnaði þess-
ari frásögn en viðurkenndi að
hafa gengið með byssu í þinginu
á þeim tíma.
Slóst við apa á svölunum
Benazir Bhutto treystir ekki rannsókn af hálfu ríkisstjórnar:
Stuðningsmenn Samkoma
þar sem fjöldi manns lét lífið
í tilræði við bhutto.
Götumynd frá Delí apar setja meiri
mynd á götulífið en æskilegt er.
Upplýsingar um jarðsprengjur
Frakkar hafa loks gefið stjórnvöldum
í Alsír upplýsingar um hvar Frakkar
lögðu jarðsprengjur þegar frelsisstríð
Alsír stóð yfir. Um er að ræða millj-
ón sprengjur sem komið var fyrir við
landamæri Alsír til að koma í veg fyrir
að herir Frakka yrðu fyrir árásum frá
bækistöðvum í Marokkó og Túnis. Í
dagblöðum í Alsír eru tíðar fréttir af
manntjóni og slysum vegna sprengna
sem lagðar voru árin 1954-1962, og er
yfirleitt um að ræða fjárhirða og börn.
Stuðningsmenn Donalds Tusk Mikill fögnuður braust út þegar fyrstu
útgönguspár voru birtar.
Óskar aðstoðar Breta
og Bandaríkjamanna
Donald Tusk Flokkur hans
vann yfirburðasigur í þing-
kosningum í Póllandi.