Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2007, Blaðsíða 16
þriðjudagur 23. október 200716 Sport DV
Barcelona, tapaði sínum leik um helg-
ina gegn Villareal 3-1 og vill vænt-
anlega bæta upp fyrir það í Meist-
aradeildinni. Barca mætir Rangers í
Skotlandi.
Deco meiddist um helgina og kom
okkar maður, Eiður Smári Guðjohn-
sen, inn á í hans stað og lék á miðj-
unni í 3-1 tapi Barca gegn Villareal.
Yaya Toure, Gianluca Zambrotta,
Rafael Marquez og Samuel Eto‘o eru
allir meiddir í Barca.
Eiður gæti því fengið langþráð
tækifæri með Barca og á miðjunni
en hann sagði í viðtali við heimasíðu
liðsins að þar liði honum ágætlega
og gæti vel leyst þá stöðu. Spili Eið-
ur Smári í kvöld getur hann ekki spil-
að með öðru liði í Meistaradeildinni
fari hann frá liðinu í janúar. Sagt er að
hann hafi neitað að koma inn á í síð-
asta leik Barca í Meistaradeildinni til
að hafa þann möguleika eftir áramót.
Rangers er í fantaformi og sýnd
veiði en ekki gefin. Stemningin á
þeirra heimavelli er ótrúleg og nokk-
uð sem rólegir Spánverjar eiga ekki að
venjast. Þeir unnu Old Firm-slaginn
á móti grönnum sínum í Celtic um
helgina 3-0 og hafa ekki tapað í Meist-
aradeildinni í ár.
„Ég veit vel hversu góðir þeir eru.
Messi er frábær en við trúum því að
við getum unnið þennan leik. Ég
veðja á 1-0 heimasigur,“ sagði Carlos
Cuellar, leikmaður Glasgow Rang-
ers. „Ég veit að stuðningsmenn okk-
ar vildu frekar vinna Celtic-leikinn en
þennan en sem Spánverji vil ég vinna
Barcelona meira en allt.“
Carlos Puol, fyrirliða Barcelona,
kemur gott gengi Rangers-manna
á óvart. „Ég hefði ekki trúað því að
Rangers gæti verið við toppinn í riðl-
inum en svona hlutir gera fótboltann
svo skemmtilegan. Ég hefði veðjað á
að við og Lyon kæmumst upp úr riðl-
inum en núna er öldin önnur og Skot-
arnir eiga góða möguleika á að fylgja
okkur í 16 liða úrslitin. Að spila í Glas-
gow er alltaf gaman út af stemning-
unni en Barca fer með það því mark-
miðið að vinna leikinn. Ég hef séð
Rangers spila og liðið berst vel, í Lyon
spilaði það mjög vel. En við erum
sterkari en það þarf að sanna það í
Glasgow.“
Í hinum leik riðilsins mætast Stutt-
gart og Lyon. „Við höfum náð góðum
úrslitum í síðustu leikjum og við þurf-
um að byggja ofan á það. Við kom-
umst ekkert upp úr riðlinum með því
að vinna í Stuttgart en það er mikil-
vægt að vinna,“ sagði Alain Perrin,
stjóri Lyon, en hans lið
getur hrein-
lega ekkert
í Meistara-
deildinni en er
efst í frönsku
deildinni.
Wenger vill meira í afmælisgjöf
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hélt
upp á 58 ára afmælið sitt í gær með
því að horfa á Newcastle-Tottenham
í sjónvarpinu og skipuleggja slaginn
við Slavia Prag. „Ég hef nú ekki verið
beint þekktur fyrir það að halda upp
á afmælið mitt. Þetta árið verður eins
og svo oft áður, voða venjulegt kvöld.
Ég borða einhvern góðan mat og
horfi á leikinn með konunni minni.
Hún horfir líka á fótbolta, í hreinskilni
verður hún að gera það. Það sem liðið
getur gefið mér í afmælisgjöf er betri
spilamennska en gegn Bolton. Maður
vill alltaf gera betur og við þurfum að
nýta okkur þann anda sem er í liðinu
núna.“
PSV tekur á móti Fenerbahce og
þurfa Hollendingarnir sigur ef þeir
ætla sér að komast áfram. „Þeir eru
mjög sterkt og gott lið en ég tel okkur
jafnoka þeirra og veit að við eigum
góða möguleika á að vinna þennan
leik,“ sagði Ronald Koeman, þjálfari
PSV. „Við vitum að við þurfum sig-
ur til að komast áfram og það mun
hjálpa okkur að við erum á heima-
velli. Við ætlum okkur að taka fjögur
stig úr næstu tveimur leikjum.“
Sevilla náði loks sigri
Sevilla tapaði fjórum
leikjum í röð í deildinni
spænsku áður en liðið
beit loksins frá sér um
helgina og vann Levante
2-0. Sevilla fór frá því að vera eitt af
toppliðunum í það að vera um miðja
deild. Sigurinn kom á góðum tíma
fyrir leikinn gegn Staua Búkarest sem
hefur enn ekki hlotið stig.
Javi Navarro er enn
frá vegna meiðsla
en Fredi Kanoute
er kominn aftur.
Tom De Mul sem
kom til Sevilla frá
Ajax í
sumar
spilaði sinn
fyrsta leik
fyrir Sevilla um
helgina og sagði
að sigur yrði að
vinnast gegn Staua.
„Sigurinn um helg-
ina mun hjálpa okkur að róa lið-
ið fyrir Meistaradeildina. Það er
nauðsynlegt að vinna Staua til
að komast í næstu umferð.“ Inter Mil-
an vann Emil Hallfreðsson og félaga í
Reggina um helgina þar sem Adria-
no skoraði loksins fyrir Inter. Adriano
sem hefur ekkert getað í 18 mánuði
fyrir Inter neitaði að taka í höndina á
Roberto Mancini þjálfara þegar hann
var tekinn af velli. „Málinu er lokið af
okkar hálfu,“ sagði forseti Inter Mass-
imo Moratti. „Það sýnir ákveðinn kar-
akter að vera fúll yfir að þurfa að fara
af velli, þó svo það megi setja spurn-
ingarmerki við innáskiptinguna,“
sagði forsetinn í léttum dúr.
Erfiður leikur
Manchester United tek-
ur á móti Dynamó frá Kænugarði
og mun eiga erfiðan leik fyrir hönd-
um að sögn Alex Ferguson, stjóra
Manchester United. United er efst í
sínum riðli með sex stig. „Við erum í
góðri stöðu þar sem Sporting vann
Dynamo. Við spilum við Kiev í
næstu tveimur leikjum og þeir verða
að vinna okkur, sem er gott. Við get-
um þá beðið eftir því hvað þeir ætla
að gera og sótt á skyndisóknum.
Kiev hefur alltaf verið erfitt heim
að sækja. Við gerðum 0-0 jafntefli
við þá fyrir nokkr-
um árum og þetta
verður erfiður
leikur.“
Í hinum leik
riðilsins tek-
ur Roma á móti
Sporting. Róm-
verjar gerðu ótrú-
legt 4-4 jafntefli við
Napoli á laugardag og hafa því að-
ens unnið einn af síðustu sex leikj-
um sínum. „Við þurfum að gleyma
leiknum við Napoli og byrja að ein-
beita okkur að næsta leik. Við þurf-
um að vinna Sporting ef við ætlum
okkur að komast í 16 liða úrslit. Til að
vinna þurfum við að fækka mistök-
um okkar,“ sagði Luciano Spalletti,
þjálfari Roma.
Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Barcelona, er í leikmannahópi liðsins sem mætir
Glasgow Rangers í kvöld í Meistaradeild Evrópu. Báðir risarnir frá Spáni, Barca og
Real Madrid, töpuðu leikjum sínum um helgina.
BEnEdikt BóaS hinrikSSon
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
Byrjar Eiður
á miðjunni?
Tímabilið er búið hjá david Beckham og félögum í L.A. Galaxy eftir tap á sunnudag:
SPILAR EKKI AFTUR FYRR EN Í APRÍL
Á sunnudag endaði tímabilið hjá
David Beckham og félögum hans í
Los Angeles Galaxy. Þeir töpuðu fyrir
Chicago Fire 0-1 og komust fyrir vikið
ekki í úrslitakeppnina. John Thorring-
ton skoraði sigurmarkið undir lokin en
hann var eitt sinn á mála hjá Manchest-
er United.
Beckham hefur verið meiddur síð-
an í ágúst en kom inn á gegn Fire í stöð-
unni 0-0 þegar hálftími var eftir. Ga-
laxy var búið að vinna sjö leiki í röð án
Beckhams en tapaði þegar hann sneri
til baka. Beckham gat lítið sem ekkert í
leiknum en þjálfari hans, Frank Yallop,
var með útskýringuna á hreinu. „Mað-
ur sá að hann var þreyttur. En hann átti
þó nokkrar langar sendingar og auka-
spyrnurnar eru alltaf hættulegar.“
Beckham kom til Galaxy meiddur á
ökkla. Hann lék fimm leiki og skoraði
eitt mark. Hann meiddist síðan aftur,
núna á hné, og var frá í sjö vikur. Ga-
laxy-liðið vann aðeins einn leik með
Beckham í liðinu, 2-0 gegn DC United
þar sem Beckham skoraði eitt og lagði
upp annað. Hann lék samtals í 252
mínútur og það er varla hægt að segja
að fyrsta tímabilið hans í Bandaríkjun-
um hafi gengið eins og í lygasögu.
„Við vorum á góðu róli en tapleik-
irnir í upphafi deildarinnar fóru með
okkur. Við enduðum tímabilið ágæt-
lega, burtséð frá þessum síðasta leik og
megum ekki setja hausinn í bringuna,“
sagði Beckham eftir tapið. Beckham
fær gríðarlega fjármuni fyrir að spila
fótbolta í Bandaríkjunum en nú þurfa
aðdáendur að bíða þar til í apríl til að
sjá Beckham aftur spila fótbolta. Hvað
gerir hann þangað til? Galaxy vill ekki
lána hann neitt þannig að hann getur
bara slakað á í borg englanna, Los Ang-
eles. benni@dv.is
meistara-
deildin
Figo Fer í 100
Luis Figo spilar væntanlega sinn 100.
leik í Meistaradeildinni. Hann hefur
spilað með
barcelona, real
Madrid og inter í
keppninni og
verður fyrsti
Portúgalinn til að
ná þessum
áfanga. Figo
spilaði sinn fyrsta
leik í Meistara-
deildinni 17.
september 1997 á móti Newcastle og
skoraði í 3-2 tapi barcelona. Fjórir aðrir
leikmenn geta náð að spila sinn 100.
leik í Meistaradeildinni á þessu tímabili.
gary Neville hefur leikið 98 leiki, Paul
Scholes 97 og Clarence Seedorf hefur
leikið 96. raúl, leikmaður real Madrid,
er leikjahæsti leikmaður Meistaradeild-
arinnar með 110 leiki.
SimonS Setur belgíSkt met
timmy Simons, fyrirliði PSV, setur
væntanlega belgískt met í kvöld þegar
hann leikur sinn
33. Meistara-
deildarleik gegn
tyrkneska liðinu
Fenerbahce í
eindhoven. Hinn
þrítugi Simons
hefur leikið 32
leiki eins og Filip
de Wilde sem á
belgíska metið.
Simons lék sinn fyrsta Meistaradeildar-
leik 18. september 2002 með Club
brugge í 3-2 tapi liðsins gegn
barcelona. alls lék hann 12 leiki með
liðinu í Meistaradeildinni en hann hefur
leikið 20 leiki fyrir PSV.
tvö lið Skammt
Frá 100 mörkum
dynamo frá kænugarði og Valencia
geta skorað sín eitt hundruðustu mörk í
Meistaradeild-
inni. bæði lið
hafa skorað 98
mörk í keppninni
frá því hún var
sett á laggirnar. 9
lið af því 101 liði
sem tekið hefur
þátt í Meistara-
deildinni hafa
skorað 100 mörk
eða fleiri. real Madrid hefur skorað flest
eða 252 mörk, Manchester united 228
og barcelona 211 sinnum. takist
dinamo að skora tvisvar verður það
fyrsta úkraínska liðið til að skora 100
mörk en Valencia verður þriðja
spænska liðið til að ná þeim áfanga.
Sergi rebrov hefur skorað flest mörk
kænugarðsmanna eða 20 en juan
Sanchez er markahæstur Valencia-
manna með 9 mörk.
53 aF 58
Sex lið eru með fullt hús stiga eftir tvær
umferðir í Meistaradeildinni. Marseille,
Shakhtar
donetsk,
barcelona,
rangers,
Manchester
united og
arsenal. 53 lið af
58 hafa komist
áfram í 16 liða
úrslit eftir að
hafa unnið
fyrstu tvo leikina eða 91% liða. dynamo
kiev, inter, rangers, Spartak og
grasshoppers eru einu liðin sem ekki
hafa komist upp úr riðlunum eftir að
hafa unnið tvo fyrstu leikina. ekkert lið
hefur klúðrað riðlakeppninni eftir að
hafa unnið þrjá fyrstu leikina.
einn í banni og
nokkrir á hættuSvæði
aðeins Fred, leikmaður Lyon, er í
leikbanni þessa umferðina. Hann er í
banni gegn
Stuttgart. kevin
thomson,
leikmaður rang-
ers, fær leikbann
fái hann gult
spjald gegn
barcelona. emm-
anuel adebayor
hjá arsenal og
Ladislav Volesak
hjá Slavia Prag verða dæmdir í bann fái
þeir gult spjald og sömuleiðis diego
Lugano hjá Fenerbahce.
Löng sending á
leiðinni david
bekcham gegn
Chicago. Hans fyrsta
tímabil í bandaríkj-
unum gekk ekki eins
og í lygasögu.
Byrjar vonandi inni á
Xavi og andrés iniesta
eru einu miðjumenn
barca sem eru heilir.