Fréttatíminn - 03.01.2014, Qupperneq 4
Gleðilegt nýtt ár
á hreinum bíl
RainX er nú í boði á öllum
þvottastöðvum Löðurs
Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is - Sími 544 4540
Nýja seðlinum vel tekið
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Stormur og hríðarveður á veStfjörðum, eN
aNNarS hægari viNdur og væg leySiNg.
höfuðborgarSvæðið: Milt í veðri
og sMá skúrir.
SNjókoma eða Slydda N- og Na-til, eN þurrt
S- og Sv-laNdS. víða um froStmark
höfuðborgarSvæðið: Bjart, freMur
hægur vindur og hiti nærri núlli.
hveSSir aftur á laNdiNu og eNN SNjóar
á veStfjörðum. leySiNg Syðra.
höfuðborgarSvæðið: Bjart fraMan af,
en slydda uM kvöldið.
heldur undarlegt tíðarfar
hún er heldur óvenjulega mild þessi na-
átt sem leikur um landið þessa dagana
og merkilegt að hitinn skuli verða þetta
2 til 4 stig um hávetur. nær þó ekki til
vestfjarða. Þar er hiti við frostmark og
kemur til með að snjóa í hvössum
vindi meira og minna fram á
sunnudag. rigning eða slydda
með köflum annars á landinu,
einkum þó austan- og suð-
austanlands. útlit er fyrir að
þessi tíð haldist til 8. janúar
eða svo.
4
0 2
3
4
0
-1 1 2
0
-2
-1 0 -2
-3
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
F yrirburaforeldrum liði betur ef þeir vissu að það væri búið að tryggja að hjúkrunarfræð-
ingar og læknar sem taka á móti
fyrirburum í ungbarnaeftirlitinu
fengju sérstaka þjálfun eða stuðning
í heilsugæslunni til að undirbúa
sig undir hlutverkið,“ segir Drífa
Baldursdóttir, móðir fyrirbura, en
samkvæmt upplýsingum frá Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins hefur
sú ákvörðun verið tekin að færa
ung- og smábarnavernd fyrirbura
yfir á almennar heilsugæslustöðvar
og leggja niður sérhæfða miðlæga
þjónustu við þennan hóp sem hefur
verið í boði á höfuðborgarsvæðinu.
Breytingin mun taka gildi um mán-
aðamótin janúar – febrúar en það
stendur til að skorið verði niður um
100 milljónir króna á þessu ári hjá
heilsugæslunni.
Fyrirburaforeldrar óttast að
þjónustan muni ekki vera eins góð
og áður og sendu formlegt bréf til
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
þar sem þeir lýstu áhyggjum sínum
og óskuðu þess að áform um þessa
breytingu yrði endurskoðuð. „Það
var svo mikil ánægja með þjón-
ustuna sem nú er verið að leggja nið-
ur. Foreldrar eru því hræddir um að
það góða starf detti niður og að það
verði síðan í raun tilviljunarkennt á
hversu góðri heilsugæslustöð fólk
lendir. Það er svo gott að hafa ein-
hvern sem hefur mikla reynslu og
þekkingu til að tala við þegar maður
er heima með lítinn fyrirbura,“ segir
Drífa.
Samkvæmt formlegu svari frá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
mun sparnaðurinn við lokunina
nema um 6 milljónum króna á ári.
Drífa segir foreldra áhyggjufulla
og segist hafa sjálf upplifað það að
fara í ungbarnaskoðun með fyrir-
bura þar sem hjúkrunarfræðingur-
inn vissi mjög lítið um fyrirbura.
„Það er svo mikill munur að hafa
aðgang að manneskju sem er með
mikla reynslu og getur frætt mann
og staðfest fyrir manni hvað er
eðlilegt og hvað ekki,“ segir Drífa.
„Fyrsta árið hjá foreldrum sem eru
með lítinn fyrirbura er mjög erfitt
því að fólk er með áhyggjur af öllu
sem tengist svefni, næringu, vexti
og frávikum og það er mikið álag,“
segir Drífa.
Þórunn Ólafsdóttir, hjúkrunar-
forstjóri hjá Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins, segir ákvörðunina
hafa verið að hluta til þess að mæta
niðurskurði. „Við myndum aldrei
fara í þessar breytingar ef við
teldum að þær hefðu einhver áhrif
á gæði þjónustunnar. Við erum vak-
andi fyrir þeim vandamálum sem
geta komið upp varðandi fyrirbura
þar sem meiri hætta er á ákveðnum
þroskafrávikum hvað þennan hóp
varðar. Það verður nákvæmlega
fylgst með þessum börnum eins og
verið hefur og við erum að gera ráð
fyrir að það séu ákveðnir fagaðilar
á stöðvunum, hjúkrunarfræðingar
og læknar, sem sinni þessu. Við
erum að auka sérhæfi þeirra aðila
með námskeiðum og fræðslu,“ segir
Þórunn.
Þórunn segir að hjúkrunar-
fræðingar í ungbarnaverndinni séu
að horfa fyrst og fremst á vöxt og
þroska barnsins og fylgist með að
það dafni eðlilega. „Ef það koma
frávik þá er foreldrum barnanna
vísað á göngudeild Landspítalans
en börnin eru þar fyrir í eftirliti eftir
þörfum,“ segir Þórunn. Segir hún
að þjónustukönnun verði lögð fyrir á
meðal foreldra til að kanna ánægju
með þjónustuna að 18 eða 24 mán-
uðum liðnum og að brugðist verði
við þeirri niðurstöðu. Drífa Baldurs-
dóttir bendir foreldrum á vefsíðu
sem hún hefur haldið úti, fyrirburar.
is, sem og Facebook-hóp sem heitir
fyrirburaforeldrar en reynslan sýnir
að foreldrum finnst ómetanlegt að
fá ráð hjá öðrum á þessu viðkvæma
tímabili eftir fæðingu fyrirbura.
maría elísabet Pallé
maria@frettatiminn.is
„fimm þúsund króna seðillinn var
orðinn of umfangsmikill sem stærsti
seðillinn fyrir útgáfu tíuþúsund króna
seðilsins. hlutfall hans af öllum seðlum í
umferð var komið upp í 85 prósent, sem
er allt of hátt,“ segir guðmundur tómas-
son, framkvæmdastjóri fjármálainnviða
seðlabankans. Þetta var helsta ástæða
þess að þann 24. október síðastliðinn
var nýr tíu þúsund króna seðill settur
í umferð. Markmið útgáfunnar var að
fækka seðlum í umferð og á sama tíma
gera greiðslumiðlun liprari og hag-
kvæmari. Því takmarki hefur verið náð
því notkun fimm þúsund króna seðilsins
hefur minnkað töluvert. um 550 þúsund
tíu þúsund króna seðlar eru nú í umferð
eða um 5,5 milljarðar króna. alls eru um
47 milljarðar króna í umferð utan seðla-
bankans svo nýi seðillinn er 12,5 prósent
af andvirði allra seðla í umferð.
guðmundur segir hlutfall verðmæt-
asta seðilsins hafa verið orðið óeðlilega
hátt miðað við það sem viðgengst
erlendis. „Með því að setja verðmeiri
seðil í umferð þá gerum við ráð fyrir að
hluti af fimm þúsund króna seðlinum
skili sér inn og það hefur þegar gerst.
á móti þessum 5,5 milljörðum sem eru
í umferð af tíu þúsund króna seðlinum
hefur komið nokkuð stór hluti inn af
fimm þúsund króna seðlinum. Með því
spörum við því það minnkar vinnu við
að flokka seðlana og dregur úr veltu
þeirra. að draga úr veltu seðlanna eykur
nýtingu þeirra því þeir fara illa á því að
velta mjög oft þar sem þeir eyðast og
skemmast." -hh
Bankinn sér tækifæri í
olíuiðnaði
íslandsbanki tekur þátt í, undir handleiðslu
spareBank1 sMn í noregi, endurfjármögn-
un fjögurra olíuskipa norska skipafélagsins
havila. sambankalánið hljóðar upp á 475
milljónir norskra króna eða 9 milljarða
íslenskra króna en vilhelm Már Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs
íslandsbanka, segir íslandsbanka hafa
getu til að lána til erlendra verkefna vegna
sterkrar stöðu í erlendum gjaldeyri.
vilhelm Már segir bankann auk þess vilja
styðja við uppbyggingu innlendra og
erlendra fyrirtækja í atvinnugreinum sem
bankinn hefur sérþekkingu í og lánið til
havila vera mikilvægt skref á leið bankans
til aukningar á þátttöku í leit að olíu og
gasi á Norður-Atlantshafi. „Við erum fyrst
og fremst að horfa til sjávarútvegs sem
bankinn hefur góða reynslu af en ekki
síður til þjónustugeirans við olíuiðnaðinn.“
hann segir bankann vera bæði að horfa til
skamms tíma með þátttöku í verkefnum
í noregi, þar sem olíuiðnaðurinn er mjög
þróaður, en auk þess til lengri tíma því
bankinn sér ísland fyrir sér sem þátt-
takanda í þjónustu við drekasvæðið eða
við olíuleit á austur-grænlandi. „Þetta er
góður bissness að vera í og áhættudreifing
fyrir okkur að taka þátt í noregi en við
erum ekki síður að horfa lengra fram í
tímann, því þegar og ef þessi iðnaður nær
fótfestu á íslandi viljum við vera í lykilstöðu
til að þjónusta hann.“ -hh
Heilbrigðismál Þjónusta við Fyrirbura breytist
Tryggja þarf nægilega
þekkingu á fyrirburum
um næstu mánaðarmót mun sérhæfð þjónusta við fyrirbura á höfuðborgarsvæðinu leggjast
niður og þjónustan færast yfir á heilsugæslustöðvar þar sem fyrirburar munu fara í reglulegt
ungbarnaeftirlit. foreldrar fyrirbura hafa áhyggjur af breytingunni.
foreldrar fyrirbura upplifa
mikið álag fyrsta árið eftir
fæðingu. Ljósmynd/Hari
4 fréttir helgin 3.-5. janúar 2014