Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.01.2014, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 03.01.2014, Blaðsíða 24
24 matur & vín Helgin 3.-5. janúar 2014  vín vikunnar Italia Pinot Grigio Gerð: Hvítvín. Þrúga: Pinot Grigio. Uppruni: Ítalía, 2012. Styrkleiki: 12,5% Verð í Vínbúð- unum: 1.799 kr. (750 ml) Umsögn: Þrátt fyrir mjög stórfenglega nafngift er þetta vín kannski ekki það besta sem kemur frá Ítalíu. En miðað við verð og eiginleika vínsins þá sómir þetta sér vel í þessum flokki. Fínasta hvítvín svona eitt og sér. Spier Chardonnay Gerð: Hvítvín. Þrúga: Char- donnay. Uppruni: Suður- Afríka, 2012. Styrkleiki: 14,5% Verð í Vínbúð- unum: 2.612 kr. (750 ml) Umsögn: Spier er nýtt á íslenskum markaði. Þetta er ágætur nýja heims Chardonnay með ferskleika og biti en samt löngu og vanillukenndu eftirbragði. Eins og gott Chardonnay á að vera. Stag's Leap Karia Chardonnay Gerð: Hvítvín. Þrúga: Char- donnay. Uppruni: Bandaríkin. Styrkleiki: 13,5% Verð í Vínbúð- unum: 5.965 kr. (750 ml) Umsögn: Stag's Leap er eitt frægasta vínhús Napa svæðisins í Kaliforníu. Rauð- vínin frá þessum framleiðanda eru ekkert minna en stórkostleg og á þessum bænum er heldur ekkert gefið eftir í hvítvíninu. Vínið er ferskt, flókið og fagurt. Í guðs lifandi bænum ekki drekka það of kalt. Þetta vín nýtur sín best við 10-12 gráður. Nú er það hvítt Algengt er að fólk strengi heit um áramót og ákveði að halda í við sig þegar kemur að veislumat samfara aukinni mætingu í líkamsrækt. Það er hins vegar vissara að spenna bogann ekki of hátt og verðlauna sig hæfilega inni á milli lotanna. Það gerir Fiskikóngurinn sem hér að neðan færir okkur dýrindis humaruppskrift. Það verður svo nægur tími til að koma sér í kjólinn fyrir jólin. Með humrinum og öðru fiskmeti er rétt að drekka góð hvítvín. Rétt er að minna fólk á að hafa hvítvínið ekki of kalt. Það á ekki síst við um Chardonnay-þrúguna sem nýtur sín alls ekki nógu vel beint úr ísskápnum. Chablis er eitt aðalhérað Frakklands og þar með vínheims- ins. Það hérað er þekkt fyrir stórkostleg Chardonnay-vín sem eru allt í senn flókin, bragðmikil og í góðu jafnvægi. Laroche Chablis er gott dæmi um fínt vín á fínu verði frá Chablis- héraðinu en það er vel hægt að fara í dýrari og flottari vín. Það er um að gera að prófa sig áfram en þetta er ekki leiðinlegur staður til að byrja á.Laroche Chablis Gerð: Hvítvín. Þrúga: Chardonnay. Uppruni: Frakkland, 2012. Styrkleiki: 12,5% Verð í Vínbúðunum: 2.898 kr. (750 ml) Undir 2.000 kr. 2.000-4.000 kr. Yfir 4.000 kr.    Höskuldur Daði Magnússon Teitur Jónasson ritstjorn@frettatiminn.is Fréttatíminn mælir með Réttur vikunnar Stóru veislurnar um jól og áramót eru að baki en Fiskikóngurinn Kristján Berg er enn í hátíðarskapi. Hann færir okkur hér girnilega humaruppskrift og mælir með góðu hvít- víni með. 2 kg humar (stærð skiptir ekki máli, en betra að hafa milli humar eða stóran humar) Humarinn klipptur og hreinsaður. Síðan grillaður á grilli á 250 gráður, efst í ofninum. 5 mínútur. At- hugið, ekki krydda fiskinn áður en hann er grillaður. Krydd- blanda. - 100 g smjör, brætt í potti. - 1 dl soja sósa - 1 stk, chiliduft, eða einn ferskur smátt skorinn lítill chili, rauður - 6-8 hvítlauksrif, smátt söxuð - safi úr einni stórri sítrónu - 1/2 teskeið hvítur pipar - 1,5 matskeið púðursykur - 1 búnt smátt söxuð steinselja - svartur pipar úr kvörn, eftir smekk Öllu blandað saman á pönnu og hitað aðeins með smjörinu. Þegar humarinn er tilbúinn úr ofninum, þá er kryddblöndunni blandað saman við. Humarinn er borinn fram með hvítlauksbrauði og fersku salati, ásamt góðu hvítvíni. Humar að hætti Kóngsins Laurent Miquel l'Artisan Chardonnay Gerð: Hvítvín. Þrúga: Chardonnay. Uppruni: Frakkland. Styrkleiki: 13% Verð í Vínbúðunum: 2.299 kr. (750 ml) SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS! MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711 ALAN PARTRIDGE: ALPHA PAPA (14) STALKER (16) SUN: 20.00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.