Fréttatíminn - 03.01.2014, Blaðsíða 33
Helgin 3.-5. janúar 2014 heilsa 33
Augnheilbrigði
Hvarmabólga og þurr augu.
Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni sem finnst í mörgum
jurtum og dýrum sem lifa í mjög þurru umhverfi. Trehalósi eykur viðnám
þekjufrumna hornhimnunnar gegn þurrki.
Fæst í öllum helstu apótekum.
Thealoz dropar
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna
hornhimnunnar gegn þurrki. Droparnir eru án
rotvarnarefna og má nota með linsum.
Blephagel gel
Blephagel er dauðhreinsað gel án
rotvarnarefna, ilmefna og alkóhóls. Gelið
vinnur vel á hvarmabólgu, veitir raka og mýkir
augnlokin. Það er hvorki feitt né klístrað.
Blephaclean blautklútar
Blephaclean eru dauðhreinsaðir blautklútar án
rotvarnar- og ilmefna sem vinna vel á
hvarmabólgu. Hjálpa við hjöðnun á þrota í
kringum augun.
É g hef tekið eftir því að ef fólk byrjar að nota óvönduð hjól þá getur það skemmt reynslu þess af hjólreiðum.
Það er staðreynd og á við í flest öllu sporti,“
segir Hákon Hrafn Sigurðsson, doktor í
lyfjafræði og margfaldur Íslandsmeistari í
þríþraut. Hákon segir að nauðsynlegt sé að
huga að nokkrum grundvallaratriðum ef
fólk ætlar sér að byrja að stunda hjólreiðar
daglega eða nota þær sem samgöngumáta.
„Fyrsta ráðið er fjárfesta í alhliða hjóli,
fjallahjóli eða „hybrid“ borgarhjóli, fólk á
ekki að fá sér „racer“ hjól eða mjög sérhæft
hjól og best er að miða við að kaupa ekki of
dýrt hjól né of ódýrt. Það er kannski erfitt
að finna meðalveginn í því en það er mín
reynsla þegar ég er að hjálpa fólki í þessu er
að fólk gefst mjög fljótt upp ef það er á ekki
nógu góðu hjóli eða jafnvel lélegu hjóli,“
segir Hákon. Segir hann að ódýrari og
óvandaðri hjól séu oft of þung sem og gírar
og bremsur virki ekki nógu vel.
„Það er kannski hægt að miða við að fólk
fjárfesti í hjóli á verðbilinu 80-120 þúsund
krónur ef það hefur hug á því að taka hjól-
reiðarnar alvarlega. Ef það kaupir sér ódýrt
hjól og fer af stað og gírarnir og bremsurnar
virka ekki þá aukast líkurnar á því að það
gefist upp. Sama máli gildir með hlaupaskó
fyrir þá sem vilja gera útihlaup að lífsstíl,
það þarf að vanda valið,“ segir Hákon.
Mikið er um að fólk vilji byrja nýjan lífsstíl
á nýju ári og mjög margir eiga til að fjárfesta
í heilsu á þeim tíma.
„Ef fólk ætlar að byrja að hjóla um áramót
þá er mjög gott að fá sér nagladekk strax.
Það er ekki sniðugt að taka áhættu ef fólk
er að byrja. Það er líka almenn skynsemi að
klæða sig eftir veðri,“ segir Hákon. Segir
hann marga jafnvel hrædda við að fara í
hjólabuxur með púðum en þær séu þó mun
þægilegra en aðrar buxur. Aðalatriðið segir
Hákon vera að klæðast fötum sem anda vel.
„Það er annað sem ég hef tekið eftir sem er
að fólk fer bara í einhver föt og það er allt í
lagi ef fólk er að hjóla stuttar vegalengdir,
eins og 1-2 kílómetra. Ef fólk er að hjóla
lengri vegalengdir er erfitt að vera í venju-
legum fötum. „Svo er það annað þegar fólk
klæðir sig of vel og það svitnar mikið. Ef fólk
er að fara hjóla lengra en 2-3 kílómetra þá
mæli ég með að fólk fái sér hjólaföt,“ segir
Hákon.
„Ef fólk er ekki í réttu fötunum þá getur
það orðið til þess að fólk hættir að hjóla. Það
hefur dregið úr fólki að svitna of mikið. Þú
þarft að finna út hvaða fatnaður hentar þér
og ef fólk þraukar í 1-2 vikur og finnur sig
þá er líklegra að það muni gera hjólreiðar að
lífsstíl,“ segir Hákon.
Hann segir að byrjendur verði að gera ráð
fyrir því að fyrstu hjólreiðarferðirnar í vinnu
til dæmis geti orðið skrautlegar eða þangað
til fólk finnur hjá sér hver rétti fatnaðurinn
er sem og rétta leiðin.
„Í raun er það ekki slæmt að fólki sé kalt
fyrstu 10 mínúturnar, sérstaklega ef áætlun-
in er að hjóla einhverjar vegalengdir. Þegar
maður er kominn aðeins af stað og manni er
mjög heitt þegar maður byrjar þá segir það
sig sjálft að eftir 10 mun það vera of heitt,“
segir Hákon.
„Það er ákveðinn þröskuldur sem fólk þarf
að komast yfir. Hjólreiðaferðin verður ekki
æðisleg fyrsta daginn eða annan daginn
og fólk þarf að fara rólega til að byrja með.
Það er mjög óskemmtilegt að hjóla í roki og
rigningu en hætturnar eru mestar þegar
mikil hálka er. Það er leiðinlegt að heyra af
fólki sem er að byrja að hjóla og dettur og
brotnar,“ segir Hákon.
Segir hann að fáanleg nagladekk séu
mjög góð og vönum hjólreiðamönnum nægi
að vera með nagladekk að framan. „Það er
hægt að fá mjög gróf nagladekk og þá fer
maður hægar en þá hentar flestum að fá
miðlungs gróf dekk og það þarf líka að passa
vel upp á að hafa réttan þrýsting í dekkjun-
um. Ef þú ert að hjóla með lítið í dekkjum þá
kemstu ekkert áfram,“ segir Hákon.
Hákon segir að hjólreiðar á veturna hafi
aukist ár frá ári. „Það má segja að Reykja-
víkurborg sjái mjög vel um hjólreiðastígana
og hún á hrós skilið en það er því miður
ekki svo gott í hinum nágrannasveitarfélög-
unum.’’
María Elísabet Pallé
maria@frettatiminn.is
Margir ætla að breyta um lífsstíl um áramótin og hafa vinsældir hjólreiða aukist mikið
á síðustu árum. Hákon Hrafn Sigurðsson, margfaldur Íslandsmeistari í þríþraut, gefur
þeim góð ráð sem huga að því að nota hjólreiðar sem samgöngumáta á nýju ári.
„Það tekur um 2 vikur að aðlagast
nýjum hjólreiðalífsstíl“
Hákon Hrafn Sigurðsson ráðleggur fólki að kaupa
góð hjól og velja réttan klæðnað.
Mynd/Hari