Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.01.2014, Blaðsíða 41

Fréttatíminn - 03.01.2014, Blaðsíða 41
Helgin 3.-5. janúar 2014 heilsa 41 Verðlaunum okkur Á leiðinni að settu markmiði er gott að staldra við þegar árangur næst og verðlauna sjálfan sig. Til dæmis þegar það tekst að mæta í ræktina þrisvar sinnum í viku í þrjá mánuði er alveg kjörið að splæsa á sig nýjum æfingabuxum eða nuddi. Með þessum hætti verður leiðin að markmiðinu enn skemmtilegri og léttari. Áramótaheitið á ísskápinn Sama hvort áramótaheitið er að borða hollari mat, mæta reglulega í ræktina, fara daglega út að ganga með hundinn eða hringja oftar í vini sína hjálpar að skrifa markmiðin niður á blað. Enn betra er að setja blaðið svo á áberandi stað og hafa það fyrir augunum sem oftast yfir daginn. Til dæmis er hægt að setja stóran miða á ísskápinn eða á spegilinn á baðherberginu svo áramótaheitið gleymist nú ekki í lok janúar. Svo er líka um að gera að deila áramótaheitinu með vinum, fjölskyldu og vinnufélögum því þá er nær öruggt að hvatning á eftir að berast úr ein- hverri átt. Hreyfing sem ferðamáti Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að hvíla einkabílinn þegar þess er kostur og velja ferðamáta sem felur í sér hreyf- ingu, til dæmis að ganga eða hjóla. Þannig má á einfaldan hátt uppfylla þarfir um lágmarks hreyfingu og njóta þess ávinnings sem því fylgir. Stærstu vöðvar líkamans eru þannig virkjaðir, hjartað fær þjálfun og orkunotkun eykst. Auk þess sem ferðatíminn er nýttur til ókeypis heilsuræktar er þannig hægt að spara kostnað vegna einkabílsins, draga úr umferðarþunga og stuðla að heilnæmara lofti. Upplýsingar af hreyfitorg.is Við bjóðum þig velkomna/-inn í heimsókn til að skoða aðstöðuna - þú getur líka pantað tíma strax með því að hafa samband við okkur í síma 580 8300, eða senda netpóst á kine@kine.is. Mörkin 6, 108 - Reykjavík, sími: 580 8300 - kine@kine.is www.kineacademy.is og www.kine.is Alfreð Finnbogason, atvinnumaður í knattspyrnu: Fyrir stuttu opnuðum við greiningar- og hreyfistúdíó í Mörkinni 6 í Reykjavík og af því tilefni bjóðum við eftirfarandi tilboð. Innifalið í öllum tilboðum er eftirfarandi: - Viðtal þar sem farið er yfir markmið og forsendur. - Nákvæm hreyfigreining hjá sérfræðingi í greiningu og meðferð stoðkerfis (Manual Therapy) með vöðvarafrits-skynjurum og/eða háhraða myndskeiðum til að skilgreina viðfangsefnið. - Greining æfinga með vöðvarafriti til að tryggja að réttar æfingar séu gerðar. - Aðgangur að æfingabanka KINE Academy. KIneacademy combining technology & knowledge Aðferðafræði okkar er þróuð til að auðvelda þér að ná sem mestum árangri á sem skemmstum tíma. Fjöldi ánægðra einstaklinga alls staðar að úr þjóðfélaginu hafa komið til okkar og bætt hreyfigetu sína. VILTU BÆTA ÞIG?! „Ég leitaði fyrst til Kine Academy í desember 2011 og hef átt gott samstarf við þau síðan. Á samstarfstímabilinu hefur staða mín sem fótboltamanns vaxið hröðum skrefum og ég nýt þess nú að spila á meðal þeirra bestu í Evrópu með liði mínu Heerenveen í Hollandi. Ég er staðráðinn í að vinna áfram með Kine Academy þar sem aðferðafræði þeirra, greiningar og þjálfun er mjög fagleg í alla staði. Samstarð við Kine Academy hefur reynst mér gríðarlega vel á íþróttaferli mínum og ég vona að framhald verði á því!“ Tilboð 2 Greining, æfingakerfi og hóp- þjálfun (einstaklingsmiðuð - hámark 6 í hóp) í 6 vikur. Almennt verð kr. 45.000,- Tilboð kr. 39.000,- Tilboð 3 Greining, æfingakerfi og einkaþjálfun (8 tímar) í 6 vikur. Almennt verð kr. 71.000,- Tilboð kr. 59.990,- Tilboð 1 Greining og æfingakerfi fyrir einstakling (mætt tvisvar í u.þ.b. klst. hvort skipti). Almennt verð kr. 24.990,- Tilboð kr. 21.000,- Ertu að fást við vandamál í stoðkerfinu s.s. verki, slit og stirðleika? Viltu fyrirbyggja meiðsli eða þarftu endurhæfingu eftir áverka eða aðgerð? Engar afsakanir Stundum er það þannig að fólk leiðist auð- veldlega af beinu brautinni í líkamsrækt- arátakinu þegar röskun verður á daglegri rútínu vegna anna, veðurs eða veikinda fjölskyldumeðlima. Engin ástæða er þó að gefast upp heldur finna leiðir til að hreyfa sig heima og mæta svo aftur í ræktina í fullu fjöri eins og ekkert hafi í skorist þegar fer að róast aftur. Í stofunni eða á svefn- herbergisganginum er hægt að taka góða upphitun í nokkrar mínútur, til dæmis með því að hoppa jafnfætis á staðnum, gera froskahopp, háar hnélyftur eða sippa. Svo er alveg kjörið að taka nokkr- ar góðar styrktaræfingar eins og stólinn en í þeirri æfingu fær fólk sér sæti á ímynduðum stól við vegg með hné í 90° og heldur stöð- unni í 50 til 60 sekúndur til að byrja með. Svo er hægt að endurtaka æfinguna tvisvar til þrisvar sinnum. Sama má segja um plankann sem er alltaf góður og tekur ekki mikið pláss og þjálfar nokkra vöðvahópa í einu. Arm- beygjurnar góðu henta einnig vel í heima- þrekinu sem og einfaldar kvið- og bakæf- ingar. Þeir sem treysta sér til geta stundað flóknari æfingar og staðið á höndum eða haus. Munið að teygja vel á eftir æfinguna. Þegar aðstæður leyfa ekki ferð í ræktina er miklu betra en ekkert að gera nokkrar styrktaræfingar heima. Ljósmynd/GettyImages/NordicPhotos
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.