Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.01.2014, Blaðsíða 50

Fréttatíminn - 03.01.2014, Blaðsíða 50
50 bíó Helgin 3.-5. janúar 2014  Frumsýnd The secreT LiFe oF WaLTer miTTy Í slenskt landslag hefur verið áberandi í bandarískum stórmyndum undanfarin misseri og ekki sér fyrir endann á þeim ósköpum öllum. Landslagið sem við þreytumst seint á að stæra okkur af hefur þó hingað til verið ígildi framtíðar- eða furðuheima í til dæm- is myndum eins og Oblivion og Prometheus. Í The Secret Life of Walter Mitty er Ísland sjálft hins vegar í fyrsta sinn sögusvið kvikmyndar af þessari stærðargráðu en hingað stefnir Ben Stiller hinum dagdreymna Walter Mitty í heljar- innar ævintýraför. Stiller sækir innblástur til hinnar margróm- uðu smásögu The Secret Life of Walter Mitty, eftir James Thurber, og lausbyggir mynd sína á henni. Thurber birti söguna í fyrsta sinn í The New Yorker 1939 en í henni segir hann frá gauðinu Walter Mitty sem flýr leiðinlega veru- leikann og ekki síst endalaust nöldur eiginkonu sinnar inn í heim dagdrauma. Þar er Walter mikil hetja sem lætur aldrei bugast og til dæmis breytist ökuferð með frúnni í æsilegan flugleið- angur þar sem bílnum er gefið í botn þannig að hann umbreytist í flugvél. Í mynd Stillers er Mitty myndritstjóri hjá tímaritinu Life, hálf ósýnilegur og uppburðar- lítill, og flýr inn í ævintýraheima þar sem hasar, hetjudáðir og rómantík eru alls ráðandi. Óvænt uppákoma sem ógnar starfsöryggi hans og vinnufélaga hans verður til þess að hann leggur upp í ævintýraferð í raunveruleikanum og upp- lifir meiri hættur og hasar en í nokkrum dag- draumi. The Secret Life of Walter Mitty var kvik- mynduð 1947 og þá var spéfuglinn Danny Kaye í titilhlutverkinu. Í þeirri útgáfu var Mitty prófarkarlesari glæpasagna og undir hælnum á móður sinni sem ofverndaði hann. Þau leiðindi hrekja hann í ævintýraheima í huganum en dagdraumarnir rætast þegar dularfull kona lætur hann fá litla, svarta bók sem hún segir að vísi á hollensku krúnudjásn- in sem hafa verið týnd síðan í seinni heims- styrjöldinni. Mitty sogast þar með inn í flókið samsæri og kemst að raun um að það er meira en að hugsa það að vera hetja í raunveruleik- anum. Aðrir miðlar: Imdb: 7,5, Rotten Tomatoes: 47%, Me- tacritic: 54% Ben Stiller eyddi drjúgum tíma á Íslandi í fyrra sumar við gerð kvikmyndarinnar The Secret Life of Walter Mitty. Landinn fylgdist áhugasamur með endalausum fréttum af Stiller og kvikmyndagerðinni og nú er afraksturinn loksins kominn í íslensk kvikmyndahús. Myndin er laus- byggð á samnefndri smásögu James Thurber frá árinu 1939. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Ben Stiller í ævintýrum á Íslandi Ben Stiller tekur hinn dagdreymna Walter Mitty sínum tökum í The Secret Life of Walter Mitty sem hann bæði leikstýrir og fer með aðalhlutverkið í. Spilaborgin og Borgen Kvikmyndatímaritið Empire hefur tekið saman drjúgan lista yfir þá sjón- varpsþætti sem þóttu bera af á árinu 2013. Þar kennir vitaskuld ýmissa grasa og þættir sem notið hafa mikilla vinsælda á Íslandi eru áberandi. Fyrsta sería House of Cards er að sjálfsögðu á listanum ásamt þriðju þáttaröð Game of Thrones og fimmtu þáttaröð Breaking Bad sem hlýtur að teljast með því allra besta sem gert hefur verið fyrir sjónvarp frá því útsendingar hófust. Stelpurnar í Girls komast einnig á blað sem og breski öskurapinn og löggutöffarinn Luther. Mannætan geðþekka Hannibal, sem Mads Mikk- elsen leikur með tilþrifum er einnig á listanum og sá mæti leikari James Spader kemur nýr inn á listann með þættina The Blacklist. Timothy Olyphant hefur haldið uppi fjörinu sem byssuglaða löggan Raylan Givens í fjórum þáttaröðum Justified sem er á listanum. Justified byggja á sögum Elmore heitins Leonard um Raylan og er einhvers konar nútíma vestri af bestu sort. Frændur vorir Danir halda uppi heiðri Norðurlandanna á listanum yfir bestu sjónvarpsþættina en Borgen skýtur þar upp kollinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.