Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.01.2014, Blaðsíða 20

Fréttatíminn - 03.01.2014, Blaðsíða 20
Þ etta er kannski eins og að fara úr litlum Yaris yfir á jeppa – eða kannski er aðeins meiri munur, en þetta er mjög gaman og maður brettir bara upp ermar og gerir það sem maður þarf að gera. Fólk þorir frekar að gera nýja hluti þegar það er yngra og þess vegna er þetta svolítið óvanalegt. Maður var auðvitað mjög varkár fyrst og fannst eins og maður væri að keyra yfir alla,“ segir Sigrún Hlöðversdóttir, bóndi og vörubílstjóri á bænum Bíldsfelli, í Grímsnes- og Grafningshreppi. Sigrún býr með eiginmanni sínum á Bíldsfelli en á fjögur börn sem nú eru farin að heiman. Árið 2007 breyttu hjónin til en þau höfðu verið með 500 kinda fjárbú og breyttu fjárhúsinu í geymslu undir húsbíla og hjólhýsi og reka nú fyrirtækið Bíldsverk ehf. „Þá fór ég með manninum mínum mikið í að keyra en hafði tekið meira prófið árið 1987 til að fá að keyra skólabíl. Þá varð maður að hafa meirapróf til þess að keyra gegn gjaldi. Ég ætlaði ekki að verða vörubíl- stjóri, það var ekki hugsunin þegar ég tók prófið,“ segir Sigrún. „Það tók nú svolítið á að fara upp í þennan stóra bíl og fara að keyra. Við erum að vinna í sumarbústöðum hérna í kring og upp undir Geysi og Hafravatn. Við erum með gröfu líka og starfið byggist mikið á því að keyra með efni og svo kemur maðurinn minn efninu á rétta staði, jafnar út og vinnur með það,“ segir Sigrún. Hjónin eru í undirbúningsvinnu fyrir sumarbústaði og vegi. „Í raun tók þetta við af búskapnum en við erum enn með 30 rollur sem við höfum mikið til fyrir börnin því að það er svo gaman að fá lömbin á vorin,“ segir Sigrún. „Sauðburðurinn er í maí og við kíkjum á þær eftir hentugleikum. Þær eru úti í haga yfir sum- arið og það er ekki mikið sem þær trufla okkur,“ segir Sigrún. Ekki hefur verið mikið hægt að keyra vörubíl í þess- um landshluta í desember en það hefur verið fljúgandi hálka. „Maður þarf að hafa hugann við aksturinn því að maður stoppar ekki einn tveir og þrír. Þetta er eins og annað sem maður byrjar á og það tekur bara tíma að venjast. Það tók tíma að venjast því hversu mikið pláss bílinn tók á veginum en í dag finnst mér þetta ekkert mál,“ segir Sigrún. Hjónin fjárfestu í nýjum vinnu- bíl í sumar sem Sigrún segir að sé bara draumur að keyra. „Við erum keyra töluvert efni úr Þórustað- anámunum við Selfoss og ég hef aðeins verið að moka sjálf en ekki mikið því ég er ekki komin með alvöru próf á það. Við erum með stóran traktor og 17 tonna vagn sem ég keyri stundum á milli,“ segir hún. Sigrún segir starfið mjög fjöl- breytt og að henni líki mjög vel útiveran. Segir hún konurnar ekki margar sem sinni þessu starfi en meira hafi verið um það að ungar konur hafi verið að keyra í gamla daga. Þess vegna taki fólk vel eftir henni þegar hún mæti bílum á vegunum. „Það er mjög gaman þegar maður er að mæta fólksbíl- um þá er fólk oft mjög hissa að sjá mig undir stýri. Konur eru farnar að gera svo margt sem þær gerðu ekki áður.“ Rólegasti tíminn er í desember og janúar hjá hjón- unum því þá er ekki hægt að fara í framkvæmdir og jarðvinnu út af snjó, frosti og hálku. Sigrún segir töluverða uppbyggingu vera á svæðinu. Verið sé að laga vegi aðkomu að bústöðum og að vinnan sé oft mjög fjölbreytt. „Það kemur manni í raun alltaf á óvart hvað verður mikið að gera þegar sól fer að hækka á lofti. Við tökum ekki mikið sumarfrí því þetta er aðal vertíðin okkar og við tökum aðeins frí á vorin og svo á haust- in,“ segir Sigrún. „Ég sé sjálfa mig í þessu starfi alveg í einhver ár í viðbót en við höfum aðeins minnkað við okkur. Starf- ið er líka svo fjölbreytt en ég hef líka verið í girðingar- vinnu, að setja niður tré, skipuleggja, þökuleggja, raða grjóti og laga til í kringum bústaði og það er svo skemmtilegt þegar maður sér svona mikinn mun eftir á.“ „Svo hefur það komið fyrir líka á veturna að menn hringja til að fá aðstoð við að ryðja snjó til þess að komast að bústaðnum sínum. Maðurinn minn lenti til dæmis í því núna í desember,“ segir Sigrún, „að draga upp Breta sem var í bústað í Þingvöllum,“ segir Sigrún. María Elísabet Pallé maria@frettatiminn.is Maður brettir bara upp ermar og gerir það sem þarf að gera Sigrún Hlöðversdóttir bóndi breytti til fyrir nokkrum árum og hóf að keyra vörubíl en hafði áður verið með 500 kinda fjárbú ásamt eiginmanni sínum. Hún sér ekki eftir breytingunum og nýtur sín í nýju hlutverki en nóg hefur verið að gera í uppbyggingu á Suðurlandi. Sigrún segir að auknar framkvæmdir við bústaði og vegi tengjast að hluta til aukinni leigu til ferðamanna. Sigrún Hlöðversdóttir byrjaði að keyra vörubíl þegar hún var komin á fimmtugsaldurinn. Mynd/Ruth Örnólfsdóttir Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t KjúKlingamáltíð fyrir 4 Grillaður kjúklingur – heill Franskar kartöflur – 500 g Kjúklingasósa – heit, 150 g Coke – 2 lítrar* *Coca-Cola, Coke Light eða Coke Zero 1990,- Verð aðeins + 1 flaska af 2 L 20 viðtal Helgin 3.-5. janúar 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.