Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.01.2014, Blaðsíða 8

Fréttatíminn - 03.01.2014, Blaðsíða 8
Gleðigjafinn Dorrit virðist annt um ís- lenska þjóð og vill henni allt gott, fyrir utan að leggja í sameiginlegt púkk með sköttum af tekjum sínum og eignum. Hún vill að innfæddir sjái um sig sjálfa án hennar aðstoðar. Björn Valur Gíslason, varaþingmaður VG, hefur horn í síðu forsetafrúarinnar. 70% vatn? Dagskrárgerðin á RÚV hefur lengst af verið álíka mikið í heimsklassa og ís- lenska brauðskinkan. Pawel Bartozek varpaði bombu í umræðuna um RÚV í grein í Fréttablaðinu. Birgitta Corleone Það má segja að ég sé guð- móðir þeirrar hugmyndafræði sem er á bak við þessa síðu. Birgitta Jónsdóttir, Pírati, sór af sér lekasíðuna ljost.is en kannast þó við krógann. Aular! AWBP eru amatörar í WikiLeaks leik. Þeir töpuðu trúverðugleikanum kortéri eftir að þeir byrjuðu og munu ekki endur- heimta hann. Egill Helgason jarðaði samtökin Asso- ciated Whistleblower Press, sem standa á bak við síðuna ljost.is. V Verkalýðshreyfingin er gríðarlega sterkt afl í samfélaginu. Eins og með alla sem búa yfir miklu afli er mikilvægt að með það sé farið af gætni og skynsemi. Enginn vafi er á því að heildarhreyfing launþega getur náð fram mikilli krónutöluhækkun í kjarasamningum beiti hún öllu afli sínu og beittasta tóli, verk- fallsvopninu. Atvinnulífið lætur fyrr eða síðan undan enda þolir ekkert fyrirtæki langa stöðvun. Um það höfum við mýmörg dæmi þegar skrifað var upp á tékka til þess að losna úr herkví, tékka sem menn beggja vegna borðs vissu að voru innistæðulausir. Frægastir að endemum slíkra kjarasamninga eru svokallaðir sólstöðusamningar frá árinu 1977. Þeir, meðal annars, leiddu til efnahagslegs ófarnaðar sem endaði í þeirri skelfingarstöðu að innan fárra ára fór verðbólga yfir 100 prósent. Ekki tókst að vinna bug á óðaverðbólgunni fyrr en með þjóðarsáttar- samningunum 1990 með þríhliða kjarasamn- ingi milli verkalýðshreyfingar, atvinnurekenda og ríkisins. Með þeim sögufrægu samningum var lokst klippt á áralangar víxlhækkanir launa og verðlags. Með því að leggja sameigin- lega til verðbólgudraugsins var markað upphaf að auknum stöðugleika í efnahagsmálum. Sá efnahagslegi stöðugleiki er hins vegar viðkvæmur. Það vita samningsaðilar og þar reynir á ábyrgð þeirra við hverja samninga- gerð. Þar þarf að feta þröngan stíg þar sem meginmarkmiðið hlýtur að vera að bæta kaup- mátt launþega. Krónutöluhækkun er einskis virði ef verðbólga étur hana strax upp. Fyrir jól var gengið frá kjarasamningum milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, það er að segja meginþorra þeirra en formenn nokkurra aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins undir- rituðu ekki kjarasamninginn – sem kemur til atkvæða nú í janúar. Augljós ágreiningur er á milli Gylfa Arn- björnssonar, forseta Alþýðusambands Íslands, og forystumanna þess minnihluta, um 4 pró- sent félagsmanna ASÍ, sem gengu gegn samn- ingunum. Þar fer meðal annarra fyrir Vil- hjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, sem telur að með samningunum hafi verkalýðshreyfingin brugðist láglauna- fólki. Forseti ASÍ er annarrar skoðunar. Hann segir að valið hafi í raun staðið á milli tveggja leiða, annars vegar milli langtímauppbygg- ingar lífskjara á grundvelli stöðugleika og auk- innar framleiðni eða skammtímalausna þar sem sækja á meiri launahækkanir með verk- fallsátökum ef með þarf. Að baki þessu liggur, segir Gylfi, spurningin hvort verkalýðshreyf- ingin eigi, megi eða þurfi að hafa einhverjar áhyggjur af því hvaða áhrif launahækkanir hafi á afkomu fyrirtækja og hins opinbera eða hagkerfið í heild sinni. „Hinn kaldi veruleiki er að laun eru lang stærsta efnahagsstærðin – um 2/3 af landsframleiðslu – og því óhjá- kvæmilegt að launahækkanir hafi umtalsverð áhrif á hagkerfi landsins,“ segir Gylfi. Hann setur síðan launahækkunina sem samið var um fyrir jól í verðbólgulíkan og ber þær saman við hækkun sem Vil- hjálmur Birgisson var meðal annars tals- maður fyrir. Gylfi segir nýgerða kjara- samninga hvorki raska samkeppnisstöðu útflutningsgreinanna né hafa áhrif á gengi krónunnar. Gangi það eftir, segir hann, má búast við að 12 mánaða verðbólgutaktur lækki strax í næsta mánuði niður undir verðbólgumarkmið Seðlabankans þannig að í lok samningstímans verði kaupmáttur 1-1,5 prósent hærri en í nýliðnum desember. Ljóst sé hins vegar að gengi krónunnar stæði ekki af sér 13-15 prósent launahækkun ef hin leiðin hefði verið farin. Þá hefði farið í gang hefðbundin víxlverkun gengis, launa og verðlags með þeim afleiðingum að verðbólgan gæti farið allt að 14 prósent. Það þýddi að í lok samningstímans væri kaupmáttur svipaður og eða lægri en hann er nú „en verðbólgan í hæstu hæðum með ófyrirsjáanlegum afleið- ingum fyrir hag okkar félaga í formi hækk- unar á vöxtum og aukinnar skuldsetningar almennings...“ Það þarf ekki lengi að velta því fyrir sér hvor leiðin er skynsamlegri og í þágu launafólks. Í nýgerðum samningum var afli verkalýðs- hreyfingarinnar beitt af skynsemi. Krafa til fyrirtækjanna er jafn augljós. Verðhækkunum verður að halda í skefjum. Tvær leiðir – önnur fær, hin ófær Afli beitt af skynsemi Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@ frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.  Vikan sem Var Gerðu enn betri kaup á þvottavélum og þurrkurum frá Bosch Bosch er rótgróið þýskt vörumerki og eru Bosch heimilistækin þau mest seldu í Evrópu. Opið virka daga frá kl. 11 - 18 og á laugardögum frá kl. 11 - 16. Tilboð gilda til 18. janúar 2014. Þvottavél WAS 28465SN Tekur mest 8 kg. Orkuflokkur A+++. Hámarksvinduhraði: 1400 sn./mín. Kolalaus mótor með 10 ára ábyrgð. Mjög hljóðlát. 15 mín. hraðkerfi. Húðverndarkerfi (ECARF gæðavottun). Tilboð: 139.900 kr. Fullt verð: 179.900 kr. Þurrkari WTE 84103SN Tekur mest 7 kg. Orkuflokkur C. Gufuþétting, enginn barki. 40 mín. hraðkerfi. Krumpuvörn. Tilboð: 99.900 kr. Fullt verð: 129.900 kr. Þvottavél WAE 28271SN Tekur mest 7 kg. Orkuflokkur A+++. Hámarksvinduhraði: 1400 sn./mín. Tilboð: 119.900 kr. Fullt verð: 149.900 kr. 2,3 kg – fyrst og fre mst ódýr og snjöl l 599 kr.kassinn Verð áður 795 kr. kassinn Klementínur, 2,3 kg 25%afsláttursafaríKarKlementínur Þetta er mitt líf Uppbyggjandi og áhugvert námskeið fyrir alla. Á námskeiðinu er allað um forsendur lífshamingju, eingu sjálfsmyndar og kenndar leiðir til að losna frá því að stjórnast af öðrum. Fjallað er um undirstöðuatriði í hugrænni atferlismeðferð og viðtalstækni og kennt hvernig veita megi stuðning án stjórnunar og íhlutunar. Önnur viðfangsefni námskeiðisins eru m.a. andlegt ofbeldi í daglegu lí, „ættarfylgjur“, fullkomnunarárátta, „ertt fólk“ og andlegur þroski. Námskeiðið er haldið í Síðumúla 33 og fer fram í litlum hópum sem hittast einu sinni í viku í 4-8 vikur. Námskeiðinu fylgir einstaklingsviðtal sem tekið er áður en námskeiðið hefst. Hægt er að panta viðtal og skrá sig á námskeiðið í síma: 694-7997 eða með tölvupósti á netfangið: astakro@ismennt.is Ráðgjafa-og sálfræðistofa Ástu Kristrúnar Ólafsdóttur Síðumúla 33, annari hæð til hægri. www.astaolafsdottir.is Einstaklingsviðtöl - Fyrirlestrar- Námskeið - Hópavinna 8 viðhorf Helgin 3.-5. janúar 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.