Fréttatíminn - 03.01.2014, Side 15
úttekt 15 Helgin 3.-5. janúar 2014
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
VÍB styður Víking Heiðar Ólafsson til góðra verka.
Við óskum landsmönnum öllum gæfu
og gengis á nýju ári. Viðskiptavinum
VÍB og þeim þúsundum sem tekið
hafa þátt í fræðslufundum okkar
þökkum við árangursríka samfylgd
á liðnu ári.
MEÐ ÞÖKK FYRIR ÁRANGURSRÍKT SAMSTARF
Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is
facebook.com/VIB.stofan | @vibstofan | www.vib.is
Nýlega var VÍB valið besta íslenska eignastýringar fyrirtækið af breska fjármálaritinu World Finance.
Horft var til margra þátta, s.s. árangurs síðasta árs, fjárfest ing ar aðferða, þjónustu og
fræðslu. Við erum afar stolt af þessum verðlaunum og ekki síður ánægð með að Íslendingar
segjast myndu leita fyrst til okkar ef þeir þyrftu á eignastýringarþjónustu að halda.*
Kynntu þér árangurinn, aðferðirnar og fjárfestingarkostina sem öfluðu okkur
viðurkenningar og trausts.
* Skv. netkönnun Capacent Gallup í maí 2013.
vildu ljúka því verki fyrir 17. júní
2014 en löngu er orðið ljóst að það
tekst ekki.
Lítið hefur enn sem komið er
borið á fréttum um að opinber
hátíðarhöld séu í vændum til að
fagna afmælinu líkt og gert var
þegar 50 ára afmæli lýðveldisins
var fagnað á Þingvöllum árið 1994.
Hins vegar er Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra
þekktur áhugamaður um þjóð-
menningu hvers konar, hefur tekið
sér meiri völd á því sviði en fyrir-
rennarar hans höfðu. Í stjórnar-
sáttmála ríkisstjórnarinnar er
þessa klausu að finna: „Ríkis-
stjórnin mun vinna að því að auka
virðingu fyrir merkri sögu lands-
ins, menningu þess og tungumál-
inu, innanlands sem utan.“ Það
kemur því á óvart ef ríkisstjórnin
mun ekki, þrátt fyrir blankheit
ríkissjóðs, gangast fyrir einhvers
konar hátíðarhöldum til þess að
minnast 70 ára afmælis lýðveldis-
ins þann 17. júní.
100 ár frá fyrri heimsstyrjöld
Fyrri heimsstyrjöldin braust
út þann 28. júlí 1914 og þeirra
tímamóta verður minnst víðs
vegar um heiminn allt árið. Við
fjöllum um þennan mikla hildar-
leik annars staðar í blaðinu í dag.
Bretar, Frakkar, Rússar og Banda-
ríkjamenn börðust við Þjóðverja,
Austurrísk-ungverska heimsveldið
og Tyrkneska heimsveldið í styrj-
öld sem stóð allt til 11. nóvember
1918 og lagði undir sig Evrópu
allan þann tíma. Þetta var fyrsta
stóra styrjöldin sem hershöfð-
ingjar, þjálfaðir í hernaðartækni
fyrri alda, háðu með vopnum
og drápstólum sem voru afurðir
20. aldar tækni. Mannfall í fyrri
heimsstyrjöldinni var enda gríðar-
legt. Staðfest er að hún kostaði 10
milljónir manna lífið á vígvellinum
en auki er talið að um 30 milljónir
hafi særst eða týnst í átökunum og
þeim hörmungum sem þau höfðu í
för með sér.
Sjálfstæðiskosningar Skota
Fimmtudaginn 18. september
2014 ganga Skotar, 16 ára og eldri,
að kjörborðinu til þess að ákveða
hvort þeir vilji slíta sambandinu
við Stóra Bretland og stofna sjálf-
stætt ríki í Skotlandi.
Þótt kannanir bendi til
þess að drjúgur meirihluti
Skota vilji áfram vera
hluti af Stóra Bretlandi
hafa síðustu kannanir
bent til þess að sjálf-
stæðissinnar séu örlít-
ið að sækja í sig veðrið
meðal þjóðarinnar.
Stór skoðanakönnun
sem birt var skömmu
fyrir jól sýndi að 27%
landsmanna ætla að
segja já í kosningunni og
greiða þannig sjálfstæðinu
atkvæði, 41% eru ákveðin í að
segja nei en 33% er enn óákveðin.
Óákveðnum hefur fækkað eilítið
frá síðustu könnun og hefur þeim
sem ætla að kjósa með sambands-
slitum fjölgað að sama skapi.
Hrunmál fyrir dómi
2014 verður árið þegar kveðnir verða upp dómar í
flestum af stærstu málunum sem sérstakur saksóknari
hefur unnið að. Þar má nefna að fram undan er aðalmeð-
ferð fyrir dómi í málum sem tengjast meintri markaðs-
misnotkun Kaupþings og Landsbanka og einnig ákvörð-
un um hvort forsvarsmenn Glitnis verði ákærðir fyrir
sams konar brot. Aðalmeðferð í Aurum-málinu svokall-
aða fer fram í apríl. Þar eru Jón Ásgeir Jóhannesson og
Lárus Welding meðal hinna ákærðu og er þeir sakaðir
um umboðssvik gagnvart Glitni vegna sex milljarða
króna láns sem Glitnis veitti til kaupa á félaginu Aurum
Holding. Einnig má vænta þess að dómur Héraðsdóms
Reykjavíkur, sem dæmdi forsvarsmenn Kaupþings í
þunga fangelsisdóma fyrir umboðssvik og markaðsmis-
notkun í Al-Thani málinu, komi til meðferðar í Hæsta-
rétti á árinu.
Pétur Gunnarsson
petur@frettatiminn.is