Fréttatíminn - 03.01.2014, Síða 31
SÚPERFORM
FITNESS FORM
FITNESSBOX
KETILBJÖLLUR FIT PILATES
STOTT PILATES
BOOTY BALLETPEAK PILATES
NÝR LÍFSTÍLL
HÁMARKSBRENNSLA
LÍFSTÍLLSTYRKURBREN
NSLA/MÓTUN HARDCORE
HERÞJÁLFUN
MEÐGÖNGUNÁMSKEIÐ
MÖMMUTÍMAR
28 DAGA HREINSUN
FIT-EXTREME
UNGLINGAHREYSTI
Nánari upplýsingar og skráning á worldclass.is
8. JANÚAR
NÝTT!HÖRKUFORM
OLYMPÍSKAR
KRINGLU ELÍTAN
TONING FREESTYLE FITNESS
NÝ NÁMSKEIÐ HEFJAST
Heilsa
Kynningarblað Helgin 3.-5. janúar 2014
Staðið við
áramótaheitið
Eftir mikið át er samviskubitið
eflaust farið að naga marga.
W orld Class Laugum fagnar 10 ára afmæli sínu á morgun og þá verður ný stöð opnuð í Egilshöll. Hafdís Jónsdóttir,
eða Dísa í World Class, er full tilhlökkunnar
vegna afmælisins og nýju stöðvarinnar í
Egilshöll og segir nýja árið byrja með krafti.
„Námskeiðin hjá okkur byrja 8. janúar. Við
verðum með vinsælustu námskeiðin okkar
að vanda en kynnum að auki glæný, fjölbreytt
og mjög spennandi námskeið eins og Hörku-
form, Toning, Freestyle Fitness, Ólympískar
lyftingar og Kringlu Elítuna sem er framhald
af Hörkuformi og fyrir þá sem eru tilbúnir að
takast á við nýjar áskoranir og stíga skrefinu
lengra til að komast í sitt besta form,“ segir
hún. Skráning á námskeiðin er í fullum gangi
og hvetur Dísa fólk til að skrá sig og tryggja
sér pláss. Í janúar verður sérstakt afmælis-
og opnunartilboð á mánaðarkortum, 4.900
krónur. Hjónum er boðið að kaupa eitt Bað-
stofukort og eitt heilsuræktarkort og uppfæra
heilsuræktarkortið í Baðstofukort.
World Class Laugar 10 ára
World Class opnaði stöðina Laugar 4. janúar
2004. Húsnæði stöðvarinnar er rúmlega
7.000 fermetrar og er með landsins mesta
úrval heilsuræktartækja og hóptíma. Þar er
einnig dansstúdíó og 300 fermetra Sprota-
land fyrir börnin. Að sögn Dísu hefur World
Class frá upphafi lagt mikla áherslu á gæði
þol- og lyftingatækja. „Nýlega tókum við í
notkun nýjustu línuna af þoltækjum frá Lif-
eFitness en í þeim komast notendur á netið
og geta til dæmis valið um að hjóla í París
einn daginn og hlaupa um þjóðgarða Nýja-
Sjálands þann næsta.“ Þá getur þjálfari útbúið
æfingaáætlun fyrir notandann og fylgist með
árangri og ástundun ásamt því að skilja eftir
skilaboð í tækjunum. Einnig er hægt að út-
búa sína eigin æfingaáætlun heima í tölvu og
nálgast hana á æfingunni. „Þetta er bylting í
notkun þoltækja og við erum mjög spennt að
fylgjast þessari þróun,“ segir Dísa.
Opna nýja stöð í Egilshöll 4. janúar
Ný World Class stöð opnar í Egilshöll á
morgun, laugardag. „Stöðin er 2.400 fer-
metra stór og þar verða í boði margvíslegar
nýjungar á borð við Energy+ frá PaviGym
sem er kraftmikið stöðvaþjálfunarkerfi fyrir
hóptíma í tækjasal og er hægt nota til að gera
tölvustýrða æfingaáætlun fyrir einstaklinga
og hópa. Á morgun verðum við með opið hús
í Egilshöll og kynningu á hóptímunum og
allri starfseminni og um að gera fyrir alla að
kíkja.“
World Class Laugum 10 ára og ný stöð í Egilshöll
Mikið verður um dýrðir hjá World Class á morgun því þá fagnar stöðin í Laugum
10 ára afmæli sínu og ný verður opnuð í Egilshöll. Í tilefni tímamótanna verður
sérstakt afmælis- og opnunartilboð allan janúar og kosta mánaðarkortin þá aðeins
4.990 krónur auk þess sem frítt verður í allar World Class stöðvarnar á morgun.
Ný námskeið hefjast svo miðvikudaginn 8. janúar.
Hjá World Class
Egilshöll er
boðið upp á ýmsar
nýjungar, svo
sem Energy+ frá
PaviGym sem er
kraftmikið stöðva-
þjálfunarkerfi
fyrir hópatíma
í tækjasal. Á
myndinni eru
hóptímakennarar
World Class að
læra á nýja kerfið.
Nýja árið byrjar með krafti í World Class og verður
frítt í allar stöðvarnar á morgun, laugardag.
World Class Laugum
fagnar 10 ára afmæli
sínu á morgun.
bls. 32