Fréttatíminn - 03.01.2014, Síða 32
32 heilsa Helgin 3.-5. janúar 2014
Lífrænar og
glútenlausar
Maískökur
Fjölkornahrískökur
Hrískökur með Quinoa korni
Betri líðan í hálsi, herðum og baki
undir leiðsögn sjúkraþjálfara
Skráning á www.bakleikfimi.is
og í síma 897 2896
Hádegis- og eftirmiðdagstímar
í sundlaug Hrafnistu við Laugarás.
Með sambaívafi í Heilsuborg, Faxafeni 14
Hefst 7. janúar
Bakleikfimi
Staðið við
áramótaheitið
Árið 2014 er gengið í garð, fullt af nýjum möguleikum og vænt-
ingum. Eftir mikið át og veisluhöld er samviskubitið eflaust farið að
naga marga og er líklegt að einhver áramótaheitin feli í sér átak
um aukna hreyfingu eða breytt mataræði. Fréttatíminn fékk Hörpu
Melsteð, sjúkraþjálfara, Crossfit þjálfara hjá Crossfit Hafnarfirði og
fyrrverandi landsliðskonu í handbolta, til að veita ráðleggingar um
hvernig við getum staðið við áramótaheitin metnaðarfullu.
Þ að getur oft verið erfitt að byrja aftur að stunda reglulega hreyfingu eftir
langt hlé. Ef fólk hefur ekki hreyft
sig lengi og ákveður að nú sé tími
til kominn að taka sig á þarf fyrst
að finna út hvernig ætlunin er að
gera það,“ segir Harpa Melsteð,
sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfun
Kópavogs og Crossfit-þjálfari hjá
Crossfit Hafnarfirði. Hún segir
nokkuð ljóst að ef fólki finnst ekki
gaman að fara í líkamsrækt en
ætli samt að pína sig þangað muni
það endast stutt. Nær sé að finna
eitthvað sem fólk virkilega langar
að gera og hefur áhuga á. „Í dag
eru valmöguleikarnir svo margir
þegar kemur að líkamsrækt og alls
kyns hreyfingu að sumir hverjir fá
valkvíða. Það er að minnsta kosti
óhætt að segja að það er engin
afsökun lengur að finna ekki neitt
við sitt hæfi. Til dæmis er hægt að
velja um að fara í dæmigerða lík-
amsrækt, fjallgöngur, hlaupahópa,
hjólreiðar, sund, zumba, crossfit,
boot camp, metabolic, yoga og
bardagaíþróttir svo eitthvað sé
nefnt.“ Harpa mælir líka með því
að fólk skoði síðuna hreyfitorg.
is sem er gagnvirk vefsíða sem er
ætlað að stuðla að aukinni hreyf-
ingu landsmanna og er hlutverk
vefsins að brúa bilið á milli þeirra
sem leita eftir þjónustu og þeirra
sem standa fyrir hreyfitilboðum.
Setjum okkur raunhæf
markmið
Algengt er að fólk setji sér mark-
mið í upphafi árs, til dæmis að
losna við aukakílóin, hlaupa mara-
þon eða bæta sig í bekkpressu eða
Muscle up sem er ein af flóknari
æfingunum í Crossfit,. Harpa segir
mikilvægt þegar fólk er að setja sér
markmið að taka með inn í jöfnuna
hvernig ætlunin sé að ná þeim. „Þá
kem ég að kjarna málsins en hann
er að markmiðin verða að vera
raunhæf fyrir hvern og einn. Ef ég
set mér markmið um að ætla að
hlaupa maraþon á árinu þá er ekki
þar með sagt að það markmið sé raunhæft
til dæmis fyrir vinnufélaga minn. Til að
ná settum markmiðum þarf oft og tíðum
að breyta um lífsstíl. Það þarf að stunda
æfingarnar og huga að góðu mataræði.“
Harpa segir það einnig geta hjálpað
mikið til við að halda sér við nýársmark-
miðin að æfa í góðum félagsskap. „Reynið
að draga einhvern með ykkur í þá hreyf-
ingu sem þið veljið. Það verður allt svo
mikið skemmtilegra og auðveldara í góðum
félagsskap.“
Best að byrja rólega
Ráðlegging Hörpu til þeirra sem eru að
byrja aftur að stunda hreyfingu eftir langt
hlé er að byrja rólega og auka svo álagið
smám saman. „Algengustu mistökin sem
fólk gerir þegar það byrjar aftur, er að
byrja með alltof miklum látum. Það á að
taka allt með trompi en því miður er það
gjarnan ávísun á að fólk gefist upp. Það
getur verið erfitt að byrja aftur, fólk fær
harðsperrur og óþægindi í kroppinn en
þolinmæðin þrautir vinnur allar. Ég mæli
með því að fólk gefi þessu smá tíma því lík-
aminn jafnar sig, svo framarlega sem æft
er skynsamlega.“ Hún segir þó misjafnt
hvað þessi „erfiða“ byrjun vari lengi en ef
fólk þrauki og komist yfir þennan erfiða
þröskuld ætti allt að fara í rétta átt.
Sé fólk að byrja í fyrsta sinn að stunda
hreyfingu mælir Harpa með því að leita að-
stoðar hjá fagfólki. „Biðjið fagaðila um að
setja upp æfingaáætlun eða fáið ráðlegg-
ingar hjá þjálfara. Alls ekki henda ykkur
beint út í djúpu laugina. Það er svo mikil-
vægt að gera hlutina rétt og vel því það
minnkar líkurnar á meiðslum og ofálagi.
Ef farið er skynsamlega af stað þá er lík-
legra að árangur náist en það getur samt
sem áður tekið tíma. Þegar árangurinn fer
að skila sér er það besta gulrótin okkar til
að vilja gera enn betur.“ Harpa segir einnig
mjög sniðugt að skrá æfingarnar niður í
einhvers konar dagbók til að fylgjast með
árangrinum. „Höfum í huga að lykilatriði
til að ná góðum árangri er að æfa skyn-
samlega og rétt, borða hollan og góðan
mat og hvílast vel.“
Harpa Melsteð
segir mikilvægt
að finna hreyfingu
sem fólk virkilega
langar að stunda
og hefur áhuga
á og setji sér
raunhæf markmið.
Ljósmynd/Hari
Það verður
allt svo
mikið
skemmti-
legra og
auðveldara
í góðum
félagsskap.